Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1988, Page 42
58
MÁNUDAGUR 18. APRÍL 1988.
Regnbogiim/Kínverska stúlkan:
Skuggamynd
Kjnverska stúlkan (China Girl) frá Ve-
storn Picture.
Framleiöandi: Michael Nozik.
Leikstjóri: Abel Ferrara.
Handrit: Nlcholas ST. John
Kvikmyndataka: Bojan Bazelli.
Tónlist: Joe Delia.
Aðalhlutverk: James Russo, David Car-
uso, Sari Chang og Richard Paneb-
ianco.
Það er nokkuð augljóst að Abel
Ferrera og félagar hafa haft stór-
mynd í huga er þeir réðust í gerð
kvikmyndarinnar Kínverska
stúikan (sem ber ekki nafn með
rentu), lítið er til sparað og ýmis
yfirgripsmikil fjölþætt atriði prýða
myndina.
Myndin greinir að mestu frá bar-
áttu ólíkra kynstofna innan
Bandaríkjanna, milli ítala og Kin-
verja, sem löngum hafa viljað halda
sínum siðum og venjum fastmótuð-
um án afskipta annarra. Brooklyn
og Kínahverfi New Yorkborgar eru
bakgrunnur þessarar myndar þar
sem þjóðarbrot Bandaríkjanna
berjast um landsvæði í blóðugum
bardögum. En inntak myndarinnar
er ástarsamband ítalsks stráks og
kínverskar stúlku sem er hörð á
því að berjast fyrir sambandi sínu.
í Kínversku stúlkunni er sem
fyrr segir mest lagt upp úr bardög-
um, sem eru ívið blóðugir á köflum,
og verða til þess að samband pars-
ins fyrmefnda fellur í skuggann og
spennan lognast út af. Myndin
verður fyrir vikiö heldur yfirborðs-
kennd sem verður aö skrifast á
kostnað leikstjórans. Handritið er
um margt vel gert, grátkór ítalanna
og borðsiðir Kínveijanna komast
vel til skila. Og kvikmyndatakan
og umhverfismyndin er með betra
móti. í heild sinni er myndin heldur
gloppótt og ristir grunnt. Vendi-
punkturinn er hið tragíska óvænta
lokaatriði.
-GKr
Leikararnir James Russo og Sari Chang í hlutverkum ástarfuglanna.
Jarðarfarir
Álflieiður Ingimundardóttir, Skála-
gerði 17, Reykjavík, verður jarðsung-
in frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
19. apríl kl. 10.30.
Pálína Jónasdóttir, Dvalarheimilinu
Hlíð, verður jarðsungin frá Akur-
eyrarkirkju mánudaginn 18. apríl kl.
13.30.
Hulda Hafberg, Hörðalandi 18,
Reykjavík, lést 10. apríl síðastliðinn.
Útfór hennar fer fram frá Langholts-
kirkju þriðjudaginn 19. apríl kl. 15.00.
Guðfinna Magnea Árnadóttir, Lind-
arbraut 8, Seltjamarnesi, verður
jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykja-
vík þriðjudaginn 19. apríl kl. 15.00.
Vilhjálmur Birgisson, Ástúni 14, er
lést 2. apríl, verður jarðsunginn frá
Kópavogskirkju mánudaginn 18.
apríl kl. 13.30.
Elínmundur Ólafs, Seljahlíð, Hjalla-
seli 55, er lést í Borgarspítalanum 10.
aprfl, verður jarðsunginn frá Nýju
kapellunni í Fossvogi mánudaginn
18. aprfl kl. 13.30.
Jón Þór Jónsson, sem lést 9. apríl,
verður jarðsunginn frá Kópavogs-
kirkju þriðjudaginn 19. april kl. 13.30.
Halldór Runólfsson verður jarösung-
inn frá Dómkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 19. apríl kl. 13.30.
Emelía Bergmann verður jarðsungin
frá Fosvogskirkju mánudaginn 18.
aprfl kl. 15.00.
Þuriður. Jóhannesdóttir, Ljósheim-
um 18a, Reykjavík, lést í öldrunar-
defld Landspítalans 5. aprfl síðastliö-
inn. Jarðarförin hefur farið fram í
kyrrþey.
Ný hárgreiðslustofa í Gnoðar-
'ogi
týlega hefur verið opnuð glæsileg hár-
•eiðslustofa að Gnoðarvogi 44, og ber
ín heitið Art. Eigendur stofúnnar eru
Menning dv
-------------------------------------------------------
Uppljómuð hljómadýrð
hárgreiðslumeistaramir Elín Jónsdóttir
og Ragnheiður Guðjohnsen. Auk hár-
snyrtiþjónustu eru þar til sölu alhliða
hársnyrtivörur, hárskraut og skartgrip-
ir.
tærasta „músíkkveðskap" síðari
tíma.
„Lauffall" Snorra Hjartarsonar
var tilefni fagurs sönglags, sem
Halldór Vflhelmsson söng ágæta-
vel við harmoníundirleik Marteins
H. Friðrikssonar. Þetta lag er ljóm-
andi dapurt í sér og minnir, einsog
svo margt hjá Hjálmari, á uppljóm-
aða hljómadýrð Jóns Leifs. Þó er
sannarlega ekki um neinskonar
stælingu að ræða. En tilfinningin
er af sömu rótum. Þetta er auðvitað
greinflegast í hreinræktuðum
kirkjuverkum Hjálmars, Gloria,
Credo og Ave Maria. Og þó fyrir-
skriftin á „Gloria in exelcis Deo“
sé mesto, sem lýsir reyndar sterkri
trúarþörf efasemdarmannsins, þá
verður úr þessu hreinn og fyrir-
varalaus dýrðarsöngur.
Þetta voru stuttir tónleikar en
sterkir og uppörvandi. Maöur hefði
einskis óskað frekar en að heyra
þá alla strax aftur. Sérstaklega þó
Credo, sem er að mínu viti einstök
kórperla og meistarastykki.
LÞ
Andlát
Margrct Þorsteinsdóttir, kaupkona,
Versluninni Vík, Reykjavík, er látin.
Hallfríður Þorvarðardóttir, Stóra-
gerði 12, Reykjavík, lést í Landa-
kotsspítala 12. apríl síðastliðinn.
Tapað fundíð
Sýningar
Kvikmyndir
Skotta er týnd,
hvarf fyrir helgi
Skotta er frekar smávaxin, fingerö
og ljós yfirlitum, en dekkri á bak.
Þeir sem hafa séð Skottu, sennilega
í Kópavogi, eru vinsamlegast beðnir
að hringja í síma 44607.
Listasafn Islands
í Listasafni íslands er kynnt vikulega
mynd mánaðarins. Fjallað er ítarlega um
eitt verk í eigu safnsins, svo og höfund
þess. Mynd aprílmánaðar, íslandslag eft-
ir Svavar Guðnason, olíumálverk frá
árinu 1944. Málverkið var keypt til safns-
ins árið 1946. Leiðsögn sérfæðings alla
fimmtudaga kl. 13.30-13.45 og er safnast
saman í anddyri safnsins.
Það voru í einu orði sagt yndis-
legir tónleikar í Kristskirkju í gær.
Tónlistarfélag Kristskirkju hafði
fengið sönghópinn Hljómeyki til að
flytja nokkur kórverk eftir Hjálm-
ar Ragnarsson og inn úr köldu
sólskininu flykktust áheyrendur
fullir eftirvæntingar. Ekki urðu
þeir fyrir vonbrigðum.
Hjálmar stjórnaði sjálfur kórn-
um, sem telur ekki nema tólf
Tónlist
Leifur Þórarinsson
söngvara en ræður þó yfir ótrúleg-
um blæstiga og styrkleika.
Fyrsta lagið á efnisskránni var
samið við gamla íslenska bæn,
„Mariusonur mér er kalt“, og þá
þegar komst á sannheilög og hrein-
ræktuð músíkstemmning. Þetta er
einföld músík á að hlýða, þrátt fyr-
ir slungna kunnáttu höfundar og
Hljómeyki syngur verk Hjálmars Ragnarssonar i Kristskirkju.
einlæga leit að kláru tónmáli. Þetta dásamlegar „Kvöldvísur um sum-
áréttaðist enn frekar í tónverki yfir armál“ Stefáns HarðaV, einhvem
Töfrandi selló
Mischa Maisky leikur hjá Tónlistarfélaginu
Sá mikli og merkilegi sellósnfll-
ingur, Mischa Maisky, lék fyrir
Tónlistarfélagið í Gamla bíói á
laugardaginn. Með honum var
ágætur píanisti, Steven Hoogen-
berk frá Hollandi, en Maisky er,
einsog mörgum má vera kunnugt,
rússneskur flóttamaður búsettur í
París.
Við heyrðum Maisky leika með
sinfóníunni um daginn sellóhlut-
verkið í Don Quixote eftir Strauss,
og einhvemveginn naut hann sín
ekki við þær aðstæður, ekki í mín-
um eyrum. En á þessum tónleik-
um, sem hófust með C dúr svítunni
eftir Bach, var svo sannarlega ótví-
ræður og beinskeyttur snillingur á
ferðinni. Allar era nú einleikssvít-
ur Bachs yndislegar, djúp og inni-
leg músík sem á sér fáar hliðstæður
í veröldinni. En í höndum Maiskys
varð þó þessi þriðja, í C dúr, einsog
ný af nálinni. Töfrar sellóleikarans
eru slíkir að þrátt fyrir óbrigðula
tækni og þaulhugsaöa byggingu
framsagnarinnar, þá er leikur hans
svo upprunalegur og ferskur að
manni finnst að tónverkin verði til
Tónlist
Leifur Þórarinsson
á staðnum. Þannig var einnig í són-
ötu fyrir selló og píanó eftir Sjosta-
kóvíts, þar sem tilfinningabogi
sorgar og gleði er spenntur til hins
ýtrasta. Og leikur Hoogenberks var
í fullu samræmi við þetta, ghtrandi
sterkur og hreinn.
Á síðari hluta efnisskrárinnar
vora Arpeggione Schuberts og
svíta úr Pulcinella eftir Stravinsky.
Þar var sama sagan, ótrúleg músík-
upfplifun sem gleymist víst seint
þeim sem á hlýddu.
LÞ