Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1988, Blaðsíða 44
60
MÁNUDAGUR 18. APRÍL 1988.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Brigitte Nielsen
- fyrrverandi Stallone - sem var
búin aö finna sér nýjan kærasta,
varö aldeilis fyrir áfalli um dag-
inn. Nýi ksérastinn hennar,
bandaríski fótboltaleikarinn
Mark Gastineu, er giftur en Brig-
itte haföi ekki hugmynd um það.
Þau Mark og Brigitte höföu til-
kynnt trúlofun sína þegar hiö
sanna kom í ljós, aö Mark á konu
sem heitir Joy Gastineu. Brigitte
tók þessu illa í fyrstu, en segir
nú að ef hann skilji viö hana,
verði allt gott á milli þeirra á ný.
Mark hefur lofaö að veröa við
þessu og hefur sótt um skilnað.
Margaret
Trudeau
sem áður var gift kanadíska for-
sætisráöherranum Pierre Trude-
au hefur löngum verið gjörn á að
hneyksla fólk. Pierre var oft í
hinum mestu vandræðum meö
hana vegna yfirlýsingagleði
hennar, en hún lýsti því meðal
annars yfir að hún hefði neytt
eiturlyfja. Nýjustu fréttir af
henni herma að lögregla hafi gert
rassíu á heimili hennar í leit að
eiturlyfjum og fundist hafi
maríjúana í fórum hennar. Hún
á nú yfir höfði sér fangelsisvist.
George Michael
annar helmingur Wham dúetts-
ins sáluga - gengur vel á sínum
sólóferli. Hann gaf út plötuna
Faith sem selst grimmt og nú er
nýhafin hjá honum þriggja mán-
aða hljómleikaferð um Evrópu.
Það er hans fyrsta hljómleikaferð
frá því hann hætti í Wham, og
miðar seljast mjög vel á tónleika
hans.
... í skólanum, er skemmtilegt að vera
- 9. bekkur Grunnskólans á ísaflrði í maraþonkennslu
Siguijón J. Sigurðsson, DV, ísafirði:
Grunnskólanemendur taka upp á
ólíklegustu hlutum til þess að næla
sér í pening í ferðasjóðinn sinn.
Miðvikudaginn 6. apríl sl. stóðu
nemendur 9. bekkjar Grunnskól-
ans á ísafirði upp frá skólaborðun-
um eftir að hafa setið við þau frá
kl. 8 á þriðjudagsmorguninn eða í
rúman sólarhring.
Áður en þessi maraþonkennsla
hófst höfðu krakkarnir gengið í hús
og safnaö áheitum sem skilaði þeim
200.000 krónum í ferðasjóðinn.
Á meðan á þessari maraþon-
kennslu stóð voru aðrir nemendur
skólans í páskafríi. Krakkarnir í
9. bekk höfðu samið við þá kenn-
ara, sem kenna þeim samræmdu
greinarnar, þ.e. íslensku, ensku,
dönsku og stærðfræði, um að
kenna þeim þennan sólarhring.
Fjórjr kennarar skiptu kennslu
þeirra þriggja deilda, sem eru í 9.
bekk, á milli sín, þannig að einn
kennari var ávallt í fríi, en krakk-
arnir fengu stanslausa kennslu.
Nemendur i einni af þremur deildum 9. bekkjar Grunnskólans á Isafirði
Rúnars Vífilssonar kennara.
maraþonkennslu undir stjórn
Fjárhagsleg hlið
óskarsverðlaunanna
Þau mega búast við að hækka í launum og fá fleiri og betri kvikmyndatilboð
i framtíðinni þau Cher og Michael Douglas sem fengu óskarsverðlaunin í
ár fyrir leik i aðalhlutverki.
Það að fá óskarsverðlaun hefur mikla þýðingu íjárhagslega séð. Fjármálas-
érfræðingar hafa verið að spá í það hvað það þýði í peningum að fá stærstu
verðlaunin.
Myndin Síðasti keisarinn hefur þegar halað inn um 600 milljónir króna,
og eftir að hún fékk 9 óskarsverðlaun, er búist við að önnur eins upphæð
komi í kassann. Fyrir einstaka leikara er dæmið náttúrlega ekki eins hátt.
Cher var vön að fá um 25 milljónir króna fyrir hlutverk, en eftir afhending-
una getur hún farið fram á að minnsta kosti 40 milljónir á mynd. Auk þess
verður meiri eftirspurn eftir henni sem leikara, og því úr fleiru að velja.
Michael Douglas var aftur á móti kominn á toppinn í launamálum ef svo má
að orði komast. Hann fékk um 200 milljónir á mynd, og enginn getur búist
við að hækka mikið eftir það. Fyrir hann eru verðlaunin því fyrst og fremst
spurning um heiður.
Aðrar stjörnur, leikstjórar og tæknimenn verða að sjálfsögðu eftirsóknar-
verðari, þótt dæmið sé ekki eins stórt fjárhagslega. Þessi atriöi gera það að
verkum að mikil eftirvænting er í loftinu hjá þeim sem tilnefndir eru til
verðlauna.
Það vakti nokkra athygli við útnefningar þessa árs að enginn bandarískur
leikstjóri var tilnefndur til óskarsverðlauna að þessu sinni. Oskarsverðlauna-
nefndin var lengi gagnrýnd fyrir það að eingöngu bandarísk framleiðsla
virtist hafa möguleika á verðlaunum, en nú er öldin önnur.
Elísabet Taylor er afskaplega ánægð meö nýja gæludýrið sitt og kærir sig
kollótta um læti dýraverndunarmanna. Símamynd Reuter
gibbon-apa
aðgjöf
Milljónamæringurinn Malcolm Forbes og leikkonan fræga, Elísabet Tayl-
or, eru nú á siglingu um Kínahaf á lystisnekkju. Malcolm Forbes gerir allt
til að þóknast kvikmyndastjömunni og nú síðast færði hann Elísabet nýfædd-
an Gibbon-apaunga sem gæludýr.
Dýraverndunarmenn eru æfir út af þessu því að þeir segja að til þess að
komast yfir svona unga verði að drepa móðurina og lífslíkur ungans án
móðurinnar séu hverfandi. En Elísabet er ánægð og það er nóg fyrir Malc-
olm Forbes.