Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1988, Qupperneq 48
62 • 25 • 25
FRÉTTAS KOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir
besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón-
ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Rítstjóm - Auglýsirtgar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Vamariiðsflutniiigar:
Rainbow
- stefhdi
hemum
„Að mínu mati hefur ekki verið
haldið um vamarliðsflutningana
eins og best væri á kosið. Þjóðirnar
hafa ekki haft fullt samráð sín á milli
eins og ráð var fyrir gert í minnis-
blaði ráðherranna. Herinn breytti
útboöinu, meðal annars þannig að
minni líkur eru nú á því að Njarövík
verði uppskipunarhöfn fyrir þessa
flutninga. Útboðið var einnig gert
opnara varðandi bandarísk skipafé-
lög. Það hefur haft þær afleiðingar
•^að Rainbow Navigation hefur stefnt
hernum. Dómarinn í máhnu hefur
ákveðið að útboðinu skuli frestað.
Þetta hefði ekki þurft að koma upp
á ef fullt samráð hefði verið haft við
okkur. Ég gerði ráðamönnum vestra
grein fyrir því að annaðhvort yrði
samið um að Njarðvík yrði áfram
uppskipunarhöfn eöa það yrði
ákveðið einhliða hér heima,“ sagði
Steingrímur Hermannsson.
Steingrímur sagði að PLO hefði
einnig komið til tals á fundum hans
við bandaríska ráðamenn. „Þeir eru
ekki eins hræddir við PLO og margir
hér heima,“ sagði Steingrímur. Hann
sagði bandaríska ráðamenn ekki
hafa sett sig á móti hugsanlegum
fundi hans með talsmönnum hreyf-
ingarinnar. _gse
29 herforíngjar
funda í Keflavík
Stór hópur yflrmanna í bandaríska
hernum er væntanlegur hingað til
lands í næsta mánuði. í hópnum eru
16 hershöfðingjar og 13 ofurstar.
Samkvæmt upplýsingum Eyþórs
^gíydal, fréttafulltrúa bandaríska
hersins á Keflavíkurflugvelli, eru
þetta yfirmenn þess varaliðs land-
hersins sem ráðgert er að senda
hingað ef til ófriðar kemur. Þeir
munu funda með yflrmönnum fasta-
liðsins hér og skoða aðstöðu hersins,
bæði í Keflavík og í Hvalfirði. Þetta
mun vera stærsti hópur háttsettra
manna í Bandaríkjaher sem hingað
hefur komið þessara erinda. -gse
Bílstjórarnir
aðstoða
^SSnDIBiLJRSTÖÐin
LOKI
Svo Hafnfirðingar eru þá
líka vatnslausir!
Stórbnini í Hafnarfirði í nótt:
TJón nemur tujum
milljóna króna
Tugmilljóna tjón varð er Hjól-
barðasólun Hafnarfjarðar eyði-
lagðist í stórbruna í nótt. Slökkvilið
HafnarQarðar var kallaö út um
klukkan hálffjögur f nótt. Slökkvi-
starfi lauk ekki fyrr en um klukkan
tíu í morgun. Tengibygging, sem
er á milli tveggja stórra húsa, var
alelda er slökkvilið kom á vettvang.
Vatnsskortur háði slökkvistarfi
verulega. Einn af þremur dælubíl-
um tæmdi allar vatnslagnir í
hverfinu. Stór tankbíll var fenginn
til að sækja vatn og var hann í stöð-
ugum ferðum þær sex klukku-
stundir sem barist var við eldinn.
Mikinn reyk lagði yfir Hafnaríjörð
þegar eldurinn var hvað mestur.
Páll Jóhannsson, eigandi fyrir-
tækisins, sagði í morgun að tjónið
næmi tugum railljóna króna. Húsin
þrjú eru tryggð fyrir um 40 milljón-
ir. Tvö þeirra eru talin ónýt og
þriðja er mikið skemmt. Húsin eru
tryggð en Páll sagðist ekki vita fyr-
ir víst hvemig tryggingum á lager
og tækjura væri háttað. „Trygging-
ar bæta aldrei það tjón sem hér
hefur orðið,“ sagði Páll Jóhanns-
son.
Páll sagöi aö í húsunum hefðu
verið 12 til 15 þúsund hjólbarðar.
Þeir eru allir ónýtlr. Dýr og verö-
mikil tæki voru í húsunum og eru
þau efiaust ónýt. Þó er möguleiki
að tæki til hjólbarðaviðgeröa séu
heil. Páll taldi líklegast að eldurinn
hafi kviknað út frá rafraagni. Sjálf-
virkur ræsari fyrir sóiunariæki fór
í gang um klukkan þrjú í nótt.
Slökkviliöi barst tilkynning um
eldinn klukkan 3.25.
Sigurður Þórðarson varaslökkvi-
liðsstjóri sagði að slökkvistarf hefði
gengið vel að því undanskildu að
vatn hefði skort. Þegar hann var
inntur eftir hvort bjarga hefði mátt
meiru hefði vatn veriö nóg, sagðist
Sigurður ekkert vilja um það segja.
Hitt væri ljóst að þegar einn dælu-
bíll tæmir lagnirnar þá væri
nýtingin ekki nándar nærri nóg á
þeim tækjum sem væru til stað-
ar.
Páll Jóhannsson, eigandi Hjól-
barðasólunar Hafnarfjarðar, sagð-
ist ætla að reyna að koma
hjólbarðaviðgerðum í gang sem
fýrst.
-sme
Ný Boeing 737 þota Arnarflugs sést hér á flugi yfir Reykjavík á laugardaginn. Þotan verður á Evr-
ópuleiðum félagsins « sumar. DV mynd Rúnar Siggeirsson
Nýja Amarflugsþotan komin
- sjá viðtal við framkvæmdasfjóra Amarflugs bls. 4
Veðrið á morgun:
Austanátt
ogfrost
víðast hvar
Á morgun verður austan- og
norðaustanátt um allt land og
kalt í veðri. Snjókoma eöa élja-
gangur verður við suður- og
austurströndina en annars þurrt.
Frost verður á bilinu 2 til 8 stig.
Hjarta- og lungnaþeginn:
600 þusund
söfnuðust
Fjölskylduhátíð til styrktar hjarta-
og lungnaþeganum Halldóri Hall-
dórssyni var haldin í Laugardalshöll
í gær. Um tólf hundruð gestir komu
á hátíðina og söfnuðust þar liðlega
600 þúsund krónur.
Þijú félög stóðu fyrir skemmtun-
inni; Breiðablik, Augnablik og Aðall.
Pétur Steinn Guðmundsson, formað-
ur Aðals, sagði í samtali við DV að
hátíðin hefði heppnast í alla staði
mjög vel. Boöið var upp á fjölbreytt
skemmtiatriði og má m.a. nefna að
Tryggvi Eggertsson, KA, var valinn
vítakóngur 1. deildar í handknattleik
1988 eftir spennandi keppni. -JBj
Flugmaður í
vandræðum
Flugmaður lítillar Cessna-vélar
lenti í vandræðum fyrir austan
Reykjavík um sexleytið í gær. Hreyf-
illinn fór að ganga skrykkjótt og
óttaðist flugmaðurinn aö véhn
myndi drepa á sér. Hann hélt því til
Sandskeiðs til öryggis ef hann þyrfti
að nauðlenda vélinni.
Þegar flugvélin var komin yfir
Sandskeið hrökk vélin í lag og fór
að ganga eðlilega. Flugmaðurinn
flaug þá til Reykjavíkur og lenti þar
vandræðalaust.
Líklegt er talið að stífla vegna ísing-
ar hafi myndast í blöndungnum og
hún valdið gangtruflunum. -ATA
Akureyri:
FJórhJól í árekstri
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Farþegi á fjórhjóli fótbrotnaði í
árekstri fjórhjólsins við bifreið í Eik-
arlundi á laugardagskvöld.
Áreksturinn var harður og tals-
veröar skemmdir urðu á ökutækjun-
um en hjóliö lenti beint framan á
bifreiðinni. Þeir sem sátu fjórhjólið
voru að koma úr Hlíðarfjalli og sam-
kvæmt lögum hafa þeir heimild til
að aka innanbæjar „stystu leið heim“
og munu þeir hafa verið á slíkri leið
er áreksturinn varð.
Að örðu leyti var helgin tíðindalaus
hjá Akureyrarlögreglunni, fáir á ferli
í og við veitingahús bæjarins og ein-
ungis nokkrir minni háttar árekstrar
sem hafa þurfti afskipti af.