Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1988, Síða 41
53
MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 1988.
Fréttir
Sameiginleg gjaldheimta á Norðuriandi eystra:
„Tel líklegt að
af þessu verði“
- segir Vaitýr Sigurhjamarson, bæjarstjóri Ólafsfjarðar
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii:
„Ég tel líklegt að sameiginlegri
gjaldheimtu verði komið á fyrir
Norðurland eystra,“ segir Valtýr Sig-
urbjarnarson, bæjarstjóri í Ólafsfirði
og formaður Fj órðungssambands
Norðlendinga.
„Það kunna hins vegar að vera
skiptar skoðanir um fyrirkomulag
slíkrar stofnunar og þá ekki síst hvar
hún á að vera staðsett. Ég vona þó
að samkomulag náist rnn þau ágrein-
ingsatriði sem upp kunna að koma
og af þessu verði.“
Valtýr sagöi að af hálfu ríkisins
væri það sett sem skilyröi að viökom-
andi sveitarfélög næðu samkomulagi
um öll mál til þess að heimilt væri
að setja á fót slíka sameiginlega
gjaldheimtu. „Mér finnst þetta ekki
nógu gott og ríkið á ekki að gera
neitt sem gæti orðið til þess að stöðva
slík góð málsagði Valtýr.
Hann sagði að það yrðu aðallega
vinnuveitendur sem myndu notfæra
sér þjónustu slíkrar gjaldheimtu.
Þeir innheimta gjöld fyrir ríkið og
þurfa að koma þeim frá sér. „Stað-
setning sameiginlegrar gjaldheimtu
ætti þó aö mínu mati ekki að vera
vandamál því þaö er hægt að nota
þjónustu banka, sparisjóöa og Pósts
og síma í þessu sambandi," sagði
Valtýr.
Leikklúbburinn Saga á Akureyri:
Björn keyrði af miklu öryggi og fór brautina villuiaust á öðrum besta tíma til þessa.
Villulaus í braut og
með goðan tíma
Safna farareyrí með miðasölu í Zebra
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Samstarf hefur tekist á milli veit-
ingastaðarins Zebra á Akureyri og
Leikklúbbsins Sögu og er markmiðiö
með því að afla farareyris fyrir leik-
klúbbinn sem heldur í utanlandsferð
í sumar.
Þetta samstarf fer þannig fram að
Saga fær ákveðinn fjölda aðgöngu-
miða á veitingastaðinn Zebra á laug-
ardagskvöldum. Félagar í Sögu selja
þessa miða og fá allt andvirði þeirra
í ferðasjóð sinn. Venjulegt „rúllu-
gjald" í Zebra á laugardögum er 600
krónur en lágmarksmiðaverð hjá
Sögu verður 200 krónur en menn
mega greiða meira ef þeir vilja.
Leikklúbburinn Saga fer í haust á
leiklistarhátíð sem haldin verður í
V-Þýskaiandi. Ferðakostnaður fyrir
hópinn, sem þangað fer, nemur um
hálfri milljón króna. Á hátíðinni
mun Saga sýna leikritið Grænjaxla
eftir Pétur Gunnarsson en leikklúbb-
urinn sýndi það á Akureyri sl. vetur.
Miðvikudaginn 15. júní sl. var
hcddin ökuleikni og hjólreiða-
keppni á planinu við kaupfélag
Héraðsbúa. Eins og mörg undan-
farin ár hafa bestu tímar til þessa
verið slegnir út hér á Egilsstöðum.
Að þessu sinni tókst þó ekki að
hnekkja besta heildarárangri én
besti tími í braut var sleginn út og
það meira að segja tvisvar sinnum.
Þegar fjórði keppandi fór brautina
kom besti tími í plani á landinu til
þessa, eða 94 sek„ var það Björn
Björnsson sem átti þennan tíma,
hann var villulaus í brautinni og
fékk 124 refsistig alls. Þessi árang-
ur nægði honum til sigurs. í öðru
sæti varð Ríkharður Már Rík-
harðsson með aðeins 2 villur í
braut og samtals 165 refsistig. í
þriðja sæti varð Jónas Jónasson
með 180 refsistig. Jónas náði lang-
besta tíma í brautinni og bætti tíma
Bjöms um 9 sek. Það varö því Jón-
as sem hlaut Timex úrið frá Nesco
í Kringlunni.
í kvennariöli voru aðeins tveir
keppendur. Bestum árangri náði
Margrét Sigurbjömsdóttir og var
hún með 212 refsistig alls. í öðru
sæti varð systir hennar, Jóhanna
Birna, með 348 refsistig alls.
í hjólreiðakeppninni var þátttaka
fremur dræm.
Bjami Þór Broddason varð í
fyrsta sæti í eldri riðh. Annar varð
Gunnar Jónsson og í þriðja sæti
varð Þómnn Jóhannsdóttir.
Ævar Smári Jóhannsson varð
fyrstur í yngri riðli.
Annar varð Jóhann Þór Ámason
og þriðji Þorkell Hróar Bjömsson.
Bjami Þór hlaut einnig Timex úrið
fyrir besta tíma í braut í hjólreiða-
keppninni.
UTSALA - UTSALA
Við seljum úrval notaðra uppítökubíla I eigu Bílvangs með stórkostlegum
afslætti frá neðangreindum verðum og góðum greiðslukjörum.
Tegund Árg. Km/þús. Verð Tegund Árg. Km/þús. Verð
Chev. Caprice Classic d. ’85 70 850.000 Mazda 323 ’81 95 170.000
Toyota Tercel 4x4 ’84 73 430.000 Opel Kadett Caravan ’85 37 430.000
Chev. Monza SL/E, beinsk. '87 23 495.000 Lada Samara ’86 8 200.000
Chev. Monza SL/E, sjsk. ’87 69 545.000 , Isuzu Gemini ’81 61 120.000
Chev. Monza, 3 dyra ’86 25 450.000 Opel Corsa, 5 dyra ’86 24 365.000
Ford Fiesta ’86 36 300.000 Chev. Caprice Classic '82 61 m 550.000
Saab 900 '80 134 220.000 Toyota Carina II ’87 107 480.000
Honda Accord EX ’81 46m 240.000 Opel Corsa ’87 36 330.000
Suzuki Alto ’81 85 100.000 Opel Kadett ’87 18 470.000
Skelltu þér á ódýran bíl frá okkur fyrir sumarfríið.
OPEL
U
ISUZU
BÍLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687SOO