Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1988, Qupperneq 4
4
LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988.
Fréttir
Greiðsluvandi sjávarútvegsins:
Opinberir sjóðir breyti
skuldunum í hlutabréf
- meðal þess sem niðurfærslunefndin kannar
Nefnd, sem vinnur aö útfærslu
niðurfærslunnar fyrir ríkisstjórn-
ina, beinir nú sjónum sínum sér-
staklega aö greiðsluvanda sjávar-
útvegsins. Á borði nefndarinnar
eru hugmyndir um að opinberir
sjóðir og bankar breyti lánum sín-
um í sjávarútvegsfyrirtækjum í
hlutabréf. Þá eru þar einnig hug-
myndir um víðtæk skúldbreytinga-
lán þar sem skammtímaskuldum
yrði breytt í langtímalán með hag-
stæðari kjörum.
Nefndin lætur nú vinna fyrir sig
úttekt á greiöslustöðu sjávarút-
vegsins til þess að meta hversu
miklum lánum þurfi að létta af
greininni tfi þess að hún geti borið
sig áfram. í dag eru slíkar úttektir
ekki fyrir hendi.
í útreikningum Þjóðhagsstofnun-
ar á stööu sjávarútvegsins, sem
vanalega hefur verið höfð til
grundvallar aðgerða stjórnvalda,
er gengið út frá vissri ávöxtun á
eignum fyrirtækjanna. Þessi aðferð
hefur í mörg ár verið gagnrýnd af
forsvarsmönnum fiskvinnslu og
útgerðar, meðal annars fyrir það
að afskriftir koma til frádráttar
vaxtagjöldum. Nú virðist sem nið-
urfærslunefndin hafi komist að
sömu niðurstöðu.
Eins og fram hefur komið í DV
eiga sæti í nefndinni Ólafur ísleifs-
son, efnhagsráðunautur ríkis-
stjórnarinnar, Jóhannes Nordal
Seðlabankastjóri, Bolli Þór Bolla-
son, defidarstjóri hagdeildar fjár-
málaráðuneytisins, og Árni Kol-
beinsson, ráðuneytisstjóri í sjávar-
útvegsráðuneytinu.
Hlutverk nefndarinnar er að
vinna að tillögum um hvernig
niðurfærsluleiðin verði út-
færð.
í störfum sínum skoðar nefndin
bæði lögbundna niðurfærslu, þar
sem verðlag og vextir eru færðir
niður með lögum, og eins frjálsa
niðurfærslu þar sem markaðinum
sjálfum er ætlað að lækka vexti og
verðlag.
-gse
Óskað rannsóknar landlæknis:
Brast dómgreind
lækna í Keflavík?
Landlæknisembættið vinnur að
rannsókn máls vegna meðhöndlunar
sjúklings á Hefisugæslustöðinni í
Keflavík. Ungur maður var fluttur á
heilsugæslustöðina eftir slys sem
hann varð fyrir í vor. Við rannsókn
og myndatöku á fjórum efstu hálslið-
um mannsins fannst ekkert athuga-
vert.
Ungi maðurinn fann stöðugt tfi
verkja. Læknarnir töldu að um
slæmt mar væri að ræða og það
myndi líða hjá. Hann fór til rann-
sóknar í Reykjavík fjórum mánuðum
eftir slysið. í þeirri rannsókn kom í
Ijós að fimmti hálsliður var skaddað-
ur. Vegna þess hversu seint upp-
götvaðist um meiösli mannsins er
hætta á að hann nái sér seint eða
aldrei að fullu. Hann hefur nú óskað
þess við embætti landlæknis að
rannsakað verði hvort hann hafi
fengið tfihlýðilega læknismeðferð
eftir slysið.
Guðjón Magnússon aðstoðarland-
læknir sagði þetta mál vera á frum-
stigi hjá embættinu. Hann sagðist
vera að safna að sér gögnum um
málið.
„Það er gott og auðvelt að vera
klókur eftir á. Aðstæður tfi frekari
myndatöku eru ekki í Keflavík. Þeg-
ar maðurinn var rannsakaður i
Reykjavík var þaö gert með full-
komnari tækjum og eins var þá vitað
um verkina sem hann hafði haft. Við
munum rannsaka hvort eitthvað
hafi brostið í meðferöinni eða í dóm-
greind læknanna," sagði Guðjón
Magnússon.
-sme
Launamál Pósts og síma:
Óviðurkvæmilegt
af fjármálaráðherra
- segir Matthias Á. Mathiesen
„Hann greiddi nú á réttum degi,
en ég tel þetta óviðurkvæmilegt þó
að ég skfiji þau sjónarmið að Póstur
og sími eigi aö standa 1 skflum.
Hins vegar mega fiárhagsaðstæöur
stofnana, sem háðar eru ákvörðun
ríkisstjórnarinnar, ekki bitna á
starfsfólkinu, það finnast mér ekki
réttar aöferðir," sagði Matthías Á.
Mathiesen samgönguráðherra um
þann ágreining sem spratt upp þeg-
ar fjármálaráðuneytiö lét í veðri
vaka að sjálfstæð opinber fyrirtæki
gætu ekki endalaust safnað skuld-
um hjá ríkinu.
Matthías segist ekki hafa orðið
var við þaö aö órói gripi um sig
meðal starfsfólks en segir að það
hafi ekki tekið þessu þegjandi.
„Fjármálaráðherra hefur sagt að
hann vilji breyta þessu fyrirkomu-
lagi í þá veru aö Póstur og sími
verði sjálfstæð stofnun. Þaö er ver-
ið að vinna að því í samgönguráðu-
neytinu að skoöa Póst og síma fjár-
hagslega og rekstrarlega. Hins veg-
ar getur það ekki gerst með ein-
hliða ákvöröun fjármálaráðherra.
Þetta verður að hafa aðdraganda
og því hef ég skýrt honum frá. Ég
vona að hann beiti ekki svona upp-
hlaupi aftur,“ sagði Matthías Á.
Mathiesen. JFJ
Jón Halldórsson hefur nóg að gera þessa dagana við að hreinsa til i garðin
um VÍÖ hús sitt. nV-munH nl
Bns og stór alda
kæmi niður fjallið
Vegamálastjóri:
Vegagerðin er ekki barnapía
- fyrir Verktakasambandið
„Við erum ekki bamapíur fyrir
Verktakasamband íslands, þeir ættu
ff ekar að snúa sér beint til sinna eig-
in manna og fá þá til að taka upp
aðra starfshætti,“ segir Snæbjöm
Jónasson vegamálastjóri þegar borin
var undir hann harðyrt ályktun
Verktakasambandsins um samninga
Vegagerðarinnar við fyrirtáekið
Plútó/Borgarverk vegna vegagerðar
við Borgarnes.
Borgarverk keypti verktakafyrir-
tækið Plútó daginn eftir að tilboð í
vegagerð við Borgarnes vom opnuð.
Plútó bauð betur en Borgarverk í
verkið.
Á fimmtudag sendi stjóm Verk-
takasambandsins vegamálastjóra til-
mæh þess efnis að hann hætti samn-
ingaviðræðum við Plútó/Borgar-
verk. Vegamálastjóri sagðist ekki
ætla að fara eftir þeim tilmælum.
- Óttast þú ekki að mál Plútó/Borgar-
verks hafi fordæmisgildi þannig aö
einn og sami verktakinn muni í
framtíðinni gera fleiri en eitt tilboð
í útboðsverk og á endanum tapi
Vegagerðin vegna þessa?
„Það getur vel verið að þetta hafi
fordæmisgildi, menn geta reynt alls
konar kúnstir t þessum bransa. En
Vegagerðin mun ekki stoppa samn-
ingana vegna hræðslu," segir Snæ-
björn. Hann bætti því við að þegar
vafamál kæmu upp í samskiptum
Vegagerðarinnar við verktaka þá
væru þau mál athuguð hvert í sínu
lagi.
Snæbjöm var spurður hvort pólitík
hefði verið með í spilinu þegar
ákveðið var að ganga til samninga
við Plútó/Borgarverk. Hann sagði
svo ekki vera. „Hins vegar hafa þing-
menn spurst fyrir um þetta mál,“
sagði Snæbjöm.
- segir Jón Halldórsson á Ólafsfíröi
Gylfi Kiistjánssan, DV, Akureyn:
„Ég.var að koma héma upp Hom-
brekkuveginn þegar fyrri skriðan
féll og drullan fór upp um allan bíl
hjá mér. Ég var hins vegar kominn
inn í hús þegar síðari skriðan féfl og
sá hana steypast niður fjallið," sagði
Jón Halldórsson, sem býr að Hom-
brekkuvegi 7, er DV ræddi við hann
á Ólafsfirði í gærmorgun.
Jón sagði að þegar fyrri skriðan
kom hefði nýlega verið búið að taka
inn barn sem var í vagni við húsið
númer 5 við Hombrekkuveg. Þegar
skriðan hefði verið komin á húsið
hefði ekki verið hægt að komast út
úr íbúðinni á jarðhæð nema út um
glugga á norðurhlið og þar hefði fólk-
ið farið út.
„Ég var uppi á efri hæð hússins
þegar ég sá síöari skriöuna hefja ferð
sína niður fjallið. Vatnsflaumurinn
var svo mikill að það var eins og stór -
alda væri að koma niður fjallið og
svo skall vatnið og drullan yfir húsin
hér fyrir ofan við Hlíðarveg og hélt
síöan áfram hingað niður eftir og hér
var allt á íloti.
. Það fylgdi því mikil ónotatilfinning
að fylgjast með þessu og ég vissi varla
hvað ég átti af mér að gera,“ sagði
Jón. Segjamáaðgarðurinnfyrirofan
hús hans hafi verið þakinn leðju og
aur. I gær var hópur manna þar að
störfum viö hreinsun og greinilega
mikið verk fyrir höndum við að
hreinsa drulluna og dauð tré í burtu
af lóðinni.