Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1988, Blaðsíða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1988, Blaðsíða 64
62 • 25 • 25 FRÉTT ASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið- hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Rítstjórn - Augiýsíngar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Þorsteinn Pálsson: Frekari skattheimta kemur ekki til greina - Qárlagahallinn vonbrigði „Frekari skattheimta umfram þaö sem er á þessu ári kemur ekki til greina," sagði Þorsteinn Pálsson for- sætisráðherra. „Þegar viö sjálfstæöimenn gengum til samstarfs við Alþýöuflokk og Framsóknarflokk í fyrra féllumst viö á verulega aukna skattheimtu til þess aö ná jöfnuöi í ríkisfjármálum. Við teygðum okkar mjög langt í því efni til móts við samstarfsflokka okk- ar og lengra en viö sjálfir töldum vera þörf fyrir. Þaö eru okkur því mikil vonbrigði að það skuli ekki skila jöfnuöi í reynd þó það hafi skil- aö jöfnuöi í fjárlögunum sjálfum. Jafnmikill halli á ríkissjóði og skýrsla Ríkisendurskoðunar bendir til að muni verða sýnir okkur að vandinn verður ekki leystur með því að auka tekjurnar. Það er ekki tilefni til þess að halda áfram að leysa vandamálin með sama hætti því aug- ljóslega gæti það haldið áfram að vinda upp á sig með stöðugt aukinni skattheimtu og stöðugt auknum hafla.“ - í samþykkt þingflokks Alþýðu- flokksins gera þeir kröfu um skatt- heimtu á fjármagnstekjur og taka fram að þær tekjur skuli ekki vera skattlagðar minna en launatekjur. Þið sjálfstæðismenn hafið verið andsnúnir þessari skattlagningu? „Menn geta sett svona setningar niöur á blað en lagasetning um þetta efni er mjög flókin og vandasöm. Það þarf að liggja fyrir mat á því hvort skattur á fjármagnstekjur hækki ekki raunvexti. Það væri afar óheppilegt núna að grípa til ein- hverrar þeirrar aðgerðar sem hefur slíkt í fór með sér,“ sagði Þorsteinn Pálsson. -gse LOKI Davíð sagði 3 vikur, Þorsteinn 2. Hvað segir þá Friðrik Sophusson? Ríkisstjómin hefur frest fram 1 miðjan mánuð: Hótun um stjórnarslH hangir yfir ráðherrunum - segir Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra nefndin óskaöi eftir því að þetta yrði athugað. Það var mjög vitur- legt af nefndinni að setja þetta frain sem ósk um athugun en ekki sem beina tillögu. Okkar viðbrögð voru aö kanna þessa leiö til hlítar áður en ákvöröun yrði tekin. Viöræður viö Alþýðusambandiö byrja núna á mánudaginn og þaö á að koma til- tölulega íljótt í ljós hvort það er grundvöllur fyrir samstöðu eða sameiginlegum skilningi á þessari leið. Eg á ekki von á þvi að þaö taki langan tíma að fá úr því skor- ið,“ sagöi Þorsteinn Pálsson. „Þetta er sá frestur sem ég gaf mér sjálfum og minni eigin ríkis- stjóm þegar bráöbirgöalögðin voru sett. Þá lýsti ég því yfir að ríkis- stjórnin hefði ekki nema gildistíma laganna til að komast að samkomu- lagi og ég kysi að því yrði lokiö á styttri tíma en það. Ég sagði þá og segi enn að ég vil sjá niðurstöðu um og upp úr miöjum september. Þaö sem Davíð segir er því ná- kvæmlega það sama og ég tilkynnti þjóðinni um mánaðamótin,“ sagði Þorsteinn Pálsson forsætisráð- herra aöspurður um ummæli Dav- íös Oddssonar borgarstjóra í DV i gær. - Ertu ekki að segja með þessu að þú munir fara til Bessastaöa og biðjast lausnar fyrir þig og ráðu- neyti þitt ef samkomulag hefur ekkináðst um miðjan þennan mán- uð? „Ég hef ekkert tilefni í dag til þess að vera með slíka hótun. Vinn- an hefur gengiö ágætlega þessa viku síðan lögin voru sett og á mánudag hefiast formlegir fundir með Alþýðusambandinu. En mat mitt á þeim tíma, sem er til stefiiu, hefur legiö fyrir alveg frá þeim degi að bráðabirgðalögin voru gefm út.“ - Hefúr ríkisstjórnin þá unniö það vel þessa viku að þú hafir ekki þurft aö beita þessari svipu á ráð- herrana? „Þessi svipa hangir yftr. Hún var sett meö bráðbirgðalögunum og hún hangir yfir mönnum. En menn eru að vinna að þessum málum í fullri alvöru og þegar svo er ástatt þarf ekki nota neina svipu,“ - Af ummælum manna má ráða að niöurfærslan sé ákaflega vanda- söm og fiókin 1 útfærslu og verði sífellt flóknari þvf nánar sem hún er skoöuð. Er frestur fram í miðjan mánuð ekki of skammur tími til undirbúnings á jafnflóknum að- gerðum? „Það er alveg rétt aö þessi leiö er fiókin. Við sjálfstæðismenn bentum á það ura leið og ráögjafar- ■ Rebbie Jackson, hin glæsiiega systir Michaels Jackson, notaði góða veðrið i gær og fór niður að tjörn til að gefa öndunum. í gærkvöldi hélt hún síðan hljómleika í Evrópu í tilefni tveggja ára afmælis skemmtistaðarins. DV-mynd KAE Veðriö um helgina Hæg norð- austanátt Um helgina er gert ráð fyrir fremur hægri noröaustanátt, aö mestu úrkomulaust sunnan- og suðvestanlands. Þokusúld verður austan- og norðanlands. Jackson á íslandi Rebbie Jackson, systir Michaels Jackson, kom fram og söng á tveggja ára afmæli Evrópu í gærkvöldi. Jackson kom til landsins á fimmtu- dagsmorguninn eftir stanslaust ferðalag frá Los Angeles þar sem hún býr. Hljómleikar hennar í gærkvöldi voru fyrstu hljómleikar hennar á hljómleikaferðalagi um Evrópu. í samtali viö DV í gærdag sagöi Rebbie Jackson að tónlist hennar væri rytmablús meö poppívafi. Sagð- ist hún hafa orðið fyrir áhrifum frá mörgum söngvurum og mætti þar nefna Nat King Cole, Diönu Ross og jafnvel Doris Day. Einnig sagöist hún vera undir áhrifum frá bróöur sín- um, Michael, enda heföu þau sungiö saman hér áður fyrr, en hún reyndi að fara sína eigin leiðir. Rebbie sagðist vilja þakka íslend- ingum fyrir að vilja fá sig og að sér þætti sérlega gaman að vera hér í þessu fallega landi. Hún er elst Jack- son systkinanna níu, þrjátíu og átta ára gömul, en hún lítur út fyrir að vera ekki degi eldri en átján ára. Þessi geðuga og glæsilega kona, sem heldur til Amsterdam á morgun, sagði að þaö væri draumur sinn að öll systkinin kæmu saman og færu í hljómleikaferð. -ÓA Forsala á Evrópu- leikina hafín Forsala aðgöngumiða á Evrópu- leiki Vals og Fram í knattspyrnu hefst í Kringlunni í dag og eru þeir seldir milli klukkan 11 og 16. Á mánudag veröa seldir miöar í Kringl- unni og Austurstræti milli klukkan 11 og 18. Miðaverð er 750 krónur í stúku, 500 í stæði og 200 fyrir börn. Hægt er að kaupa stúkumiða á báða leikina í einu á 1200 krónur. -hlh
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.