Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1988, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1988, Blaðsíða 20
Ólafur V. Noregskonungur í LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988. opinberri heimsókn á íslandi: Ættm er aönsk en konungurinn norskur Þegar Norömenn riíja upp lífs- hlaup Ólafs konungs V. vitna þeir oft til lítillar sögu frá árinu 1905. Karl Danaprins, bróöir Kristjáns tí- unda, konungs Danmerkur og ís- larids, var að taka viö ríkiserfðum í Noregi. Þetta var seint um haust. Prinsinn kom á dönsku skipi inn á Oslófjörðinn og sté þar yfir á norskt skip sem flutti hann til höfuðstaðar- ins. Þegar hann gekk milli skipanna hélt hann á tveggja ára smásnáða og skýldi honum með hvítu teppi. Drengurinn, sem þarna skipti um fóðurland, var ríkisarfi Norðmanna og fékk í fyllingu tímans tignarheitið Ólafur konungur V. Faðir hans tók sér nafniö Hákon VII. Þetta hefur þótt táknrænn atburður og sjaldgæft er að þjóðhöfðingjar hafi notið jafn- mikillar hylli og þeir feðgar þótt þeir verði að teljast útlendingar að ætt og uppruna. Ólafur konungur er nú orðinn 85 ára gamall. Hann hefur gegnt kon- ungdómi í rúma þrjá áratugi við al- mennar vinsældir. Nú er hann vænt- anlegur til íslands í opinbera heim- sókn og dvelur hér dagana 5. til 8. þessa mánaðar. Danskar ættir Norska konungsættin á sér ekki langa sögu samanboriö við margar aðrar konungsættir í Evrópu. Hákon VII. gekk á land í Noregi að loknu stuttu en snörpu frelsisstríði Norð- manna við Svía árið 1905. Svíar höfðu þá ráðiö yfir Noregi í tæpa öld en nú var komið að skiptum milli land- anna. Norrænar þjóðir hafa ekki háð stríð sín í milli eftir þetta og átökin eru löngu gleymd. I staðinn hafa Norðmenn og Svíar látið nægja að skiptast á háðsglósum og veitir ýms- um betur. Gamla norska konungsættin var löngu horfm af sjónarsviðinu þegar Danaprins fékk konungsnafn í Nor- egi. Áður en Svíar tóku völd í Noregi höfðu Danir stjórnað Noregi um ald- ir rétt eins og íslandi. Að fengnu sjálfstæði þótti Norðmönnum ekki annað við hæfi en að fá konung fyrir þjóðhöfðingja og af prinsum var nóg í Danmörku. Þetta var á þeim árum þegar danska konungsættin tengdist öllum helstu konungsættum Evrópu. Ólafur prins hlaut hefðbundiö upp- legasti kosturinn var að fá prins af dönsku konungsættinni og prinsessu af þeirri bresku. Það átti í það minnsta aö nægja til að Svíar færu ekki aö abbast upp á þjóðhöfðingja sem átti svo víða hauk í horni. Karl Danaprins neitaði að taka við konungdómi nema áöur væri kosiö um þaö meðal norsku þjóðarinnar. Svo var gert og Norðmenn tóku við sínum konungi. íslendingum þóttu þetta vitaskuld merkileg tíðindi. Blöðin sendu frá sér frégnmiða þann 15. nóvember þar sem sagði: „Marc- oniskeyti frá í gærkveldi segir kon- ungstjórn samþykkta í Noregi með almennri atkvæðagreiðslu og þar með að Carli Danaprinz skuli boðin konungstignin. Hann tekur því kjöri og nefnist Hákon VII.“ kennt norsku konungsfjölskylduna og það má mikið koma til ef konung- urinn lætur sig vanta á stórmót á skíðum í heimalandinu. Á sumrum hefur Ólafur stundað siglingar en á yngri árum var hann einn af fremstu siglingamönnum í heiminum. Fyrstu ár skólagöngu sinnar fékk Ólafur einkakennslu heima í kon- ungshöllinni. Menntaskólanám stundaði hann hins vegar í almenn- um skóla. Hann var vinsæll meðal skólasystkina sinna og orð fór af honum sem íþróttamanni. Hann lauk stúdentsprófi af raungreinasviði vor- ið 1921. Að prófi loknu hélt hann heilmikið rússagiUi heima í höllinni fyrir skólasystkini sín. Norðmenn vitna enn í þessa veislu sem haldin var á þjóðhátíðardaginn 17. maí. Tveir kennslustaðir: „HallarseV', Parabakka 3 í Mjóddinni og Auðbrekka 17, Kópavogi. Kennum alla samkvæmisdansa: suðurameríska, standard og gömlu dansana. Einnig barnadansa fyrir yngstu kynslóðina. Laugardagskennsla á báðum stöðum. Nemendur skólans unnu 17 af 20 Islandsmeistaratitlum í samkvæmisdönsum 1988. Innritun og upplýsingar dagana 1. - 10. september kl. 10 - 19 í síma: 641111. Kennsluönnin er 15 vikur, hefst mánudaginn 12. september og lýkur með jólaballi. * FID Betri kennsla - betri árangur. DANSSKÓU SIGURÐAR HÁKONARSONAR Siglingamaðurinn Olafur V. Hann var á yngri árum einn af bestu siglingamönnum heimsins. eldi konungssona. Hann gekk í her- inn og á stríðsárunum síðari sátu þeir feðgar í Lundúnum og voru sam- einingartákn Norðmanna á erfiðlei- katímum. Þessi danska konungsætt var þá orðin norskari en allt norskt. Ólafur var krónprins Norömanna í 52 ár og var nær hálfsextugur þegar hann tók við konungdómi árið 1957. Þegar hann hafði ríkt í 30 ár kom í ljós í skoðanakönnun að Norðmenn studdu sinn konung nær undantekn- ingarlaust og vildu viðhalda konung- dæminu. Vinsælastur allra Flest bendir til að Noregskonung- ar hafi aldrei notið meiri hylli en Ólafur. Þetta vilja menn öðru fremur skýra með framkomu hans. Hann þykir í senn landsföðurlegur og um leið alþýðlegur. Norðmenn segja að svqna eigi konungar að vera. Ólafur V. er fæddur 2. júlí árið 1903. Hann varð því 85 ára í sumar. Faðir hans var sonur Friðriks VIII. sem þá var Danaprins en varð konungur árið 1907. Hann var annar í erfðaröð- inni á eftir Kristjáni bróður sínum sem árið 1912 varð Danakonungur. Móðir Ólafs var Maud, dóttir bresku konungshjónanna Játvarðar VII. og Alexöndru drottningar. Ólaf- ur fæddist á Englandi og var skírður Alexander Edward Christian Frede- rik en við komuna til Noregs var málið einfaldað og sá stutti fékk gamla norska konungsnafnið Ólafur. Þegar Norðmenn sögöu skilið við Svía árið 1905 var ráðamönnum þar umhugað um að tryggja sjálfstæði ríkisins með persónulegum tengsl- um við konungsættir Evrópu. Álit- Fjölskyldan á skíöi Norska konungsfjölskyldan lagði sig fram um það frá byrjun að til- einka sér siöi fólks í hinu nýja hei- malandi. Maud drottning var mikil áhugamanneskja um útivist og hóf skíðaiðkun af kappi þegar fyrsta vet- urinn í Noregi, Olafur sonur hennar erfði þennan áhuga og varð á sínum yngri árum keppnismaður í skíða- stökki og göngu. Þessi sérstaki áhugi á skíðaíþróttinni hefur alla tíð ein- Nátn í Oxford Að loknu stúdentsprófi hófst her- þjónusta Ólafs. Hann var í hernum í þrjú ár og lauk þjónustu þar sem lautinant. Haustið 1924 sneri hann síðan til heimalands móður sinnar og lagði í tvö ár stund á þjóðhag- fræði og stjórnmálafræöi við Balliol College í Oxford. Ólafur hefur sagt að ef hann heföi ekki verið fæddur til konungdóms Hermennska hefur alltaf heillað Olaf tiu árum. V. Hér er hann á heræfingu fyrir um 4-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.