Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1988, Side 26
26
LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988.
Sá beri irá Nevtendasamtökunum?
Miklar sögur ganga nú um það að sá beri sem hljóp inn á völlinn fyrir leik islendinga og
Sovétmanna hafi verið fulltrúi Neytendasamtakanna og ætlað að sýna lokastig niðurfærsl-
unnar, það að menn eigi bókstaflega ekki neitt eftir. Um þetta atvik er það líka að segja
að 150 milljónir Sovétmanna sáu það í beinni útsendingu. Rætt er um að þetta sé fyrsta
bláa spólan sem sovéska sjónvarpið sýni.
DV-mynd E.J.
Okkar menn
Ómar Valdimarsson, fréttamaður á Stöð
2, var góður þegar hann sagði frá leik ís-
lands og Sovétríkjanna í fréttatíma stöövar-
innar á miðvikudagskvöldið. Ómari gafst
aðeins tími til að sýna þann bera á sprettin-
um og svo mark íslendinga í fréttatímanum.
Eftir markið sagði Ómar að þegar svona
vel gengi væri talaö um landsliðsmennina
sem „okkar menn“,annars væru það „strák-
amir“.
Hafmeyjan 75 ára
„75 ár á sama steini. Litla hafmeyjan átti
afmæli 23. ágúst síðastliðinnvar fyrirsögn
í Morgunblaðinu á dögunum. Auðvitað var
átt við hafmeyjuna í Kaupmannahöfn.
Lítil mynd afhafmeyjunni fylgdi með frétt-
inni. Ekki er hægt að sjá annað en haf-
meyjan haldi sér vel og sé með unglegri 75
ára dömum.
Grandalausir Reykvíkingar
„Grandalausir Reykvíkingar kynnast nýju
hraðsölumeti,“ sagði í fyrirsögn í Tímanum
um sölu Davíðs Oddssonar borgarstjóra á
Granda hf.
Miðað við þennan Grandahraða eru menn
ekki í neinum vafa að frystihús Granda sé
hraðfrystihús.
Þriðja leiðin: að lifa
Þjóðviljinn segir í flennifyrirsögn um
kjaramálin á miðvikudaginn:„Þriðja leiðin:
að lifa“.
Þetta er svo sem ekki verri leiö en aðrar.
Það er hins vegar orðin spuming um hvort
sjúkrasamlögin eigi ekki að berjast í kjara-
málunum fyrir launþega frekar en ASI.
Babcock tók konuna fram yfir
„Babcock tók konuna fram yfir UMFG,“
segir í fyrirsögn á íþróttasíðu Morgunblaðs-
ins í vikunni um bandaríska körfuknatt-
leiksþjálfarann Arthur Babcock sem Grind-
víkingar voru búnir aö ráða sem þjálfara.
Hvað er maðurinn eiginlega að hugsa?
Hafa kettir þrjár rófur?
„Hafa aliir kettir þijár rófur?“ segir í fyrir-
sögn í Mogganum um heimspekiþing í Bret-
landi sem tæplega þúsund heimspekingar
sóttu.
Það verður að segjast eins og er að kettir
búa við lúxus. Þeir hafa níu líf og þrjár rófur.
En svona í framhjáhlaupi. Hvað er heim-
spekinámið aftur mörg ár í háskólanum?
Andleg íhugun Tálknfirðinga
„Tálknafjöröur: Stunda andlega íhugun í
„Polhnum“,“ er fyrirsögn á frétt í DV í vik-
unni.
Pottur þessi er sagður 43ja stiga heitur og
í næsta nágrenni viö Tálknafjörö. Það er á
Léttmeti á laugardegi
Jón G. Hauksson
kvöldin sem bæjarbúar koma og anda djúpt
í pollinum.
Það er þetta meö tálknin og Tálknfirðinga.
Bjargvætturinn Einar Oddur
„Bjargvætturinn frá Flateyri," sagði Al-
þýðublaðið í risafyrirsögn á dögimum. Þetta
er skemmtileg fyrirsögn um Einar Odd
Kristjánsson, formann ráðgjafamefndar rík-
isstjórnarinnar.
Eftir þessa fyrirsögn er Einar Oddur víst
ekki kallaður annað en The Equalizer á
meðal manna.
Svartur köttur í messu
Fréttablaðið Eystra-Horn segir frá því að
svartur köttur hafi verið í messu í Bjarnanes-
kirkju við Hornaíjörð á dögunum. Uppi varð
fótur og fit í kirkjunni eins og vænta mátti.
Segir blaðið að mönnum hafi þótt það mik-
ið augnayndi að sjá þá tvo, prestinn og kött-
inn, athafna sig við altarið.
Þetta er frábær frásögn aö austan. Og ekki
ber á öðru en að kötturinn hafi mætt í kirkj-
una í fullum skrúða.
Þjófurinn kallaði í lögreglu
DV segir frá því að innbrotsþjófur hafi
kallað á lögreglu eftir að hann braust inn í
tóma lögreglustöð fyrir stuttu. En svo illa
tókst til að þjófurinn skar sig við innbrotið.
Þessi þjófur ætti nú að fá sér aðra vinnu
við tækifæri.
Nú fer senn að myrkvast mjög
„Nú fer senn að myrkvast mjög,“ sagði í
stórri fyrirsögn í DV í vikunni. Flestir héldu
fyrst að verið væri aö skrifa um efnahags-
mál og aðgerðir ríkisstjórnarinnar.
En við nánari lestur kom í ljós að verið var
að fjalla um lampa og ljósaperur. Reyndar
gleymdist alveg að minnast á aðalljósin í
bænum, gáfnaljósin í ríkisstjórninni.
Þorsteinn og Heineken
Menn minnast enn myndar DV sem sýndi
Þorstein Pálsson kaupa Heineken-bjór við
heimkomuna frá Bandaríkjunum á dögun-
um.
Nú ganga þær ágætu sögur að Þorsteinn
hafi keypt bjórinn handa Jóni Baldvin og
Steingrími. Hann vilji nefnilega hafa þá
milda.
ER ÞAÐ 1 EÐA XEÐA2 18 | Héreruáttaspurningarog 1 hverriþeirrafylgjaþrírmögu- ' leikaráréttusvari.Þóeraðeins 1 eittsvarréttviðhverrispurn- ingu. Skráið réttar lausnir og 1 sendiðokkurþærásvarseðlin-
A Hvað heitir höfuðborgin í Thailandi: 1: Brisbane F Allílestir þekkja þetta vörumerki en hvar er það upprunnið: 1: í Bandaríkjunum X: V-Þýskaíandi
X: Benjore 2: Bangkok *1 iHI | um. Skilafrestur er 10 dagar. Að þeim tíma liðnum drögum | viðúrréttumlausnumogveit-
. 2: Svíþjóð
, i um þrenn verðlaun, öll frá póst-
B i hvaða landi er Gardemoen flugvöllur: 1: Noregi X: Svíþjóð 2: Danmörku G Við eigum sex stórmeistara í skák en hvað eru alþjóðlegu meistararnir margir eftir að Hannes Hlífar bættist í hópinn: 1: Sex X: Átta 1 versluninni Primu í Hafnar- | firði. Þaueru: 1 l.Fjölskylduteppiaðverðmæti | kr. 5.430,- 2. Fjölskyldutrimmtæki að | verðmæti kr. 2.750,-
Liverpoolliðið auglýsir þetta vöru- merki í ár. Hér er um að ræða heim- — . ilistækiframleiddí: CJOJUUf/ 1: Enelandi X: Frakklandi 2: Ítalíu 2: Tíu
L H Nýlega var sett á verðstöðvun með lagaboði. Hvað á hún að gilda lengi: 1: 3mánuði X: lmánuð 2: 6mánuði 1 3.Skærasettaðverðmætil.560,- ' Íöðruhelgarblaðihéðanífrá 1 birtastnöfnhinnaheppnuen nýjar spurningar koma í næsta 1 helgarblaði. | MerkiðumslagiðleðaXeða2, c/o DV, pósthólf 5380,125 | Reykjavík. ■ VinningshafarfyrirleðaXeða ' 2 í sextándu getraun reyndust | vera: Ragna Svanlaugsdóttir, Sólheimum 23,104 Reykjavík 1 (hitateppi); Ingveldur Gunnars- | dóttir, Hólabraut 5,630 Hrísey (trimmtæki); Sveinbjörg Jóns- | dóttir, Drápuhlíð 44,105 Reykja- 1 vík (skærasett). 1 Vinningarnir verða sendir 1 heim. Réttlausnvar: 2-X-1-2-2-X-2-X
D Innan Bandaríkjanna eru 50 fylki. Nýjasta fylkið er: 1: Filippseyjar Sendandi 18
X: Alaska 2: Hawaii
p Hann hét Johnny Weissmúller og var frægur á sinni tíð fyrir: 1: Skáldskap X: Kvikmyndaleik 2: Knattspyrnu Heimili
£ Rétl svar: A 1 1 E □ B □ C □ D □ F □ G □ H □