Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1988, Blaðsíða 37
oct' {i^tuwwTíP fi irr\í <j\q t l\'\k \
LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988.
53
Knattspyma unglinga
Eins og flestum er kunnugt varð Stjarnan Islandsmeistari í 5. flokki. Strákarnir stóðu sig frábærlega vel í riðlakeppninni og mættu Þór frá Akureyri í úrslitaleik. í leik A-liða, sem fór fram á undan,
unnu Stjörnustrákarnir, 4-0. í B-liðsleiknum sigruðu Þórsarar aftur á móti, 2-1. Samanlagður sigur Stjörnunnar var því 5-2. Myndirnar hér að ofan eru frá leik B-liða og eru Stjörnustrákarnir i
sókn. Stjörnuleikmaður nr. 11, Ragnar Árnason, á hér hörkuskot að marki Þórs. Markvörður Þórs, Valdimar Guðmundsson, er vel á verði og bjargar á meistaralegan hátt. Takið eftir varnar-
manni Þórsara, lengst til hægri. Honum fannst vissara að komá markverði sínum til hjálpar ef iila færi. Bæði þessi lið vöktu mikla athygli fyrir góða knattspyrnu. Úrslitakeppnin fór fam á KR-velli
og tókst með miklum ágætum. DV-mynd HH
„Mínir leikmenn voru vel undir Norðurlandamótið búnir"
- segir Matthías Hallgrímsson, þjálfari 3. fl. ÍA
Matthías Hallgrímsson, fyrrum
landsliðsmaður í knattspyrnu og
leikmaður með IA og Val, sendi ungl-
ingasíðu DV eftirfarandi grein vegna
þeirra umræðna s.em hafa verið í
gangi vegna frammistöðu drengja-
landsliðsins á Norðurlandamótinu
um sl. mánaðamót. Matthías er nú
þjálfari 3. fl. Akurnesinga.
„Það var býsna fróðlegt, svo ekki
sé meira sagt, að lesa viðtal Lárusar
Loftssonar í Mbl. 9. ágúst sl. Þar kem-
ur skýrt fram hjá Lárusi aö orsökina
fyrir slæmum árangri landsliðsins á
NM megi rekja til þjálfara félagsliða.
Sem þjálfari 3. fl. ÍA tók ég ekki
nærri mér neitt af því sem hann sagði
því að ég vissi aö mínir menn voru
mjög vel undir það búnir að takast á
við leikina á NM. Ekki er það ætlun
mín að lasta Lárus Loftsson drengja-
landsliðsþjálfara eða neinn annan
þjálfara því að hver og einn hefur
sínar venjur varðandi þjálfun. Menn
eiga þó að læra af mistökunum og
viðurkenna þau og er Lárus Loftsson
þar ekki nein undantekning. Enginn
er alfullkominn í þessu fremur en
ööru. Annars er ég á þeirri skoðun
aðjijálfarar eigi ekki að vera aö kýta
í blöðum um jafnviðkvæmt mál og
hér er um að ræða.
Besta leiðin í sambandi við NM
hefði sjálfsagt verið sú aö þjálfarar,
sem áttu leikmenn í drengjalandsliö-
inu, hefðu ræðst við ásamt landsliðs-
þjálfara, bæði fyrir og eftir NM. Slík
vinnubrögð hefðu skilað tilætluðum
árangri því að menn hafa vissulega
mismunandi skoöanir hvað varðar
leikmenn og annað. Flestir þjálfarar
eru með stíft leikkerfi sem ég tel t.d.
að ekki sé til góðs fyrir unga leik-
menn. Ég legg mest upp úr því aö
leikmaðurinn fái að njóta sín og ef
þaö er ekki i yngri flokki þá hvenær?
Ströng leikkerfi gera einstakling-
inn of einhæfan. Hann þorir ekki að
taka neina áhættu og óttast aö gera
vitleysur. Við þannig aöstæður verð-
ur unglingurinn of háður þeim sem
þykist vita allt um knattspýrnu og
nefnist því ágæta nafni þjálfari. Þeg-
ar þannig háttar er og mjög erfitt
fyrir ungan leikmann að leika eðli-
lega og afslappað. Ég veit af eigin
reynslu að þegar upp í meistaraflokk
er komið tekur stressiö viö og þá
verður ekki aftur snúið.
Að lokum óska ég drengjalandslið-
inu góös gengis í komandi leikjum
gegn Norðmönnum.“
Bestu kveðjur,^
Matthías Hallgrímsson,
þjálfari 3. fl. ÍA
Haukamót í 3. flokki kvenna
Haukar hafa í sumar haldið tvö
kvennamót í knattspyrnu í 3. flokki
og hafa þau tekist með miklum ágæt-
um. Mikill áhugi virðist vera vakn-
aður í því ágæta félagi á knattspyrnu
kvenna og eru foreldrar þar mjög
virkir þátttakendur.
Um síðustu helgi fór fram á gras-
velli Hauka mót í 3. flokki í kvenna-
flokki. Veitt voru gull-, silfur- og
bronsverðlaun. Sex lið mættu til
leiks. Sigurvegari var Breiðablik,
hlaut 10 stig, Valur var í 2. sæti með
8 stig. Stjarnan fékk bronsverðlaun,
hlaut 4 stig. 4. í röðinni voru Reynis-
stúlkurnar, einnig með 4 stig en lak-
ari markatölu. Afturelding var með
3 stig og Haukastelpurnar hlutu 1
stig.
Urslit leikja:
Haukar - Breiðablik 1-4
Stjarnan - Valur 0-4
Afturelding - Reynir 1-4
Breiðablik - Stjarnan 3-1
Haukar - Afturelding '2-4
Reynir - Valur 0-3
Haukar - Stjarnan 0-2
Valur - Afturelding 3-1
Reynir - Breiöablik 4-11
Haukar - Reynir 1-1
Valur - Breiðablik 0-2
Breiðablik - Aftureld. 8-3
Stjarnan - Reynir 1-1
Haukar - Valur 1-3
Stjarnan - Afturelding l-i
Mótið var styrkt af fyrirtækinu Mót-
un hf.
Matthías Haligrímsson.
2. flokkur karla:
- Það þýðir ekkert að láta
Sæma vera við löggæslu þar
sem strákurinn hans er að
spila. Hann verður stéttinni
alltaf til háborinnar skammar!
Gústi
„sweeper“:
- Þjálfararnir
ráða alltaf of miklu!!!
IBK og KA leika í A-riðli að ári
Ljóst er að þaö verða KA og ÍBK
sem léika í A-riðli 2. flokks að ári. í
einfaldri ogfrekar snubbóttri umferð
um þau tvö sæti, sem laus eru í A-
riðli, tapaði ÍR 1-0 fyrir ÍBK og 4-1
fyrir KA. En þessi þrjú lið börðust
um sætin tvö. Leikur ÍBK og KA er.
eftir en ljóst er að hann hefur alls
enga þýðingu. Ótrúlegt er að lið séu
fáanleg til að leggja í kostnaðarsamt
ferðalag til aö spila leik sem skiptir
engumáli. -HH
2. flokkur karla - A-riðill:
KR-ÍA 3-0
Valur-Fram 8-1
Stjarnan - Víkingur 2-0
Þróttur - Þór, Ak. i-3-C
Lokastaðan í A-riðli:
KR 14 11 2 1 39-12 24
Valur 14 10 0 4 37-15 20
Víkingur 14 8 1 5 28-23 17
Þór, Ak. 14 6 2 6 25-23 14
Stjarnan 14 6 1 7 21-32 13
ÍA 14 5 0 9 34-37 10
Fram 14 5 0 9 25-33 10
Þróttur 14 2 0 12 15-48 4
3. flokkur KA varð meistari í bikarkeppni Norðurlands 1988. Strákarnir unnu mjög sannfærandi. Leiknar voru tvær umferðir. Úrslit leikjanna urðu þesi:
KA-Völsungur, 4-2, Þór-KA, 0-3, Völsungur-KA, 4-4, KA-Þór, 7-0. Mikla athygli vakti og sigur þeirra yfir Fylki i úrslitunum á dögunum. Á myndinni eru í
aftari röð frá vinstri: Jóhann Arnarsson, Sigurður Ólafson, Jón Einarsson, Jón Egill Gíslason, Þorvaldur Þorvaldsson, Karl Fr. Karlsson, Helgi Níelsson,
Birgir R. Friðriksson og Guðmundur Gislason þjálfari. í fremri röð frá vinstri: Eyvindur Sólnes, Bragi Guðnason, Ægir Dagsson fyrirliði, Þórður Guðjóns-
son, Höskuldur Þórhallsson, Arnar Már Arngrímsson og Ingólfur Valdimarsson. Myndin er tekin eftir tapleikinn gegn Þór, Ak., um 7. sæti í úrslitum ís-
landsmótsins og var ekki annað að heyra en KA-strákarnir létu sér það i léttu rúmi liggja þvi einn hafði að orði „að þetta væri smásárabót fyrir Þórsarana
eftir allt tapið sem þeir hefðu orðið að þola í sumar.“ DV-mynd HH