Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1988, Qupperneq 43
LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988.
59
DV
Pascali's Island
Handritshöfimdur Hættulegra
kynna sest í leiksljórastól
Charles Dance og James Dearden við tökur á Pascali's Island.
Ben Kingsley leikur hinn einangraða Pascali.
„Sagan er um gagnkvæmt traust
og að lokum svik sem leiða til harm-
leiks. Harmleiks á borð við atburða-
rás í leikriti eftir Shakespeare. Aðal-
persónan Pascali gæti verið úr leik-
riti eftir Shakespeare. Maður er hefði
getaö átf öðruvísi ævi ef honum hefði
boðist tækifæri. Hann er aftur á
móti dæmdur til að tapa.“ Sá sem
segir þessi orð er James Dearden,
leikstjóri Pascali’s Island.
James Dearden er sjálfsagt þekkt-
astur fyrir handritið að Hættulegum
kynnum, eða Fatal Attraction, sem
vakti mikla athygh á síðasta ári. Pas-
cali’s Island er þó alls ekki fýrsta
myndin sem Dearden leikstýrir. Fyr-
ir tíu árum gerði hann stutta kvik-
mynd, The Contraption, semfjallaði
um heljarstóra músagildru. í staðinn
fyrir mýs voru menn veiddir í hana.
Nokkrar stuttar myndir fylgdu í
kjölfarið. Fyrsta myndin í fullri
lengd, sem hann leikstýrir, er The
Cold Room sem gerö var uppruna-
lega fyrir sjónvarp.
James Dearden á ekki langt að
sækja áhugann á kvikmyndum. Fað-
ir hans var hinn þekkti leikstióri
Basil Dearden sem gerði margar
ágætar kvikmyndir. Má nefna The
Blue Lamp, The League Of Gentlem-
en, Woman Of Straw og Khartoum.
Dearden naut þó ekki mikið leiðsagn-
ar föður síns því hann lést í bílslysi
1971.
The Cold Room markar tímamót
fyrir Dearden. Myndin er gerö árið
1985 með Dearden bæði sem hand-
ritshöfund og leikstjóra. Fyrir hana
fékk hann sérstök verðlaun, sem
veitt eru ungum leikstjórum, á kvik-
myndahátíð í Oxford. Einnig vann
myndin sérstök dómnefndarverð-
launíAvoriazl985.
„Ég hefði átt að fá verðlaun fyrir
að takast að koma The Cold Room í
framkvæmd,” segir Dearden. „Ég
hafði skrifað handritið og sent það
sjónvarpsframleiðendum í Banda-
ríkjunum. Þeir höfðu það til athug-
unar í þrjá mánuði og skiluðu því
með þeim orðum að það væri of evr-
ópskt fyrir bandarískan markað. Þá
datt út úr mér óvart hvort þeir
myndu kosta kvikmyndina ef ég
fengi George Segal til að leika aðal-
hlutverkið. Breyttist þá viðmót
þeirra. Ég þekkti mann sem þekkti
Segal. Hann kom handritinu til hans.
Segal líkaði handritiö og þá loks var
samþykkt að gera myndina.
Pascah’s Island er mjög ólík Fatal
Attraction og er ólíklegt að hún valdi
eins miklu umtali. „Fatal Attraction
var aldrei ætlað að vinna gegn kven-
þjóðinni,” segirDearden. „Egtelmig
verahllan fyrir jafnréttisbaráttu
kvenna. Allt í einu var farið að ásaka
mig fyrir hugmyndafræöilegt mis-
rétti. Þetta sama fólk sér eitthvað
sem ekki var ætlunin aö gera. Meg-
inásakanirnar ganga út á að við
sýndum fordómafulla mynd af metn-
aðargjörnu kvenfólki, kvenfólki sem
hyggur á frama í atvinnulífinu.
Misskilningurinn gæti ekki veriö
meiri. Staðreyndin er að Fatal
Attraction er huglæg saga og er skrif-
uð þannig. Allt er séð af sjónarhóli
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
Michael Douglas. Hann er nær allan
tímann á tjaldinu. Allar aðrar per-
sónur eru séðar með hans augum.”
Pascali’s Island er aö mörgu leyti
ólík Fatal Attraction. Dearden hefur
kosiö að ger a hana í Evrópu með
enskum leikurum en hún er gerð
eftir rómaðri skáldsögu Barry Uns-
worth. Sögusviðiö er grísk eyja sem
lýtur yfirráðum Tyrkja og gerast at-
burðirnir 1908.
Aðalhlutverkið Pascali leikur Ben
Kingsley. Hann er njósnari fyrir
Tyrki. í tuttugu ár hefur hann samið
skýrslu og sent yfirboðurum sínum
og í tuttugu ár hefur hann fengið
sömu laun fyrir. Engin skýrsla hans
hefur gert gagn svo hann viti. Tilvera
hans er því einangruð og það breyt-
ist ekki fyrr en hann kynnist upp-
skrúfuðum fornleifafræöingi er
Charles Dance leikur.
Hann leigir Pascali til aö vera túlk-
ur sinn. Pascali treystir honum en
kemst fljótlega að því að hann er
ekki allur þar sem hann er séður.
Það er samt orðið of seint fyrir Pas-
cah að snúa viö. Bæði er að fornleifa-
fræðingurinn hefur sálrænt tangar-
hald á honum og svo að Pascali hefur
hrifist að ástkonu fornleifafræðings-
ins, listakonu sem Helen Mirren leik-
ur.
Pascali’s Island var fyrst sýnd á
Cannes í vor og hlaut misjafnar við-
tökur gagnrýnenda. Almennt hrifust
þeir af handriti Deardens en þótti
leikstjórn hans ekki jafnvel heppnuð.
Fannst myndin þung þar sem létt-
leika hefði þurft ogmjúk þar sem
skarpari hnur hefðu þurft að vera
dregnar.
James Dearden er þegar byrjaöur
á næsta verkefni sínu, handritsgerð
eftir skáldsögu Jay Mclnerney Ran-
som. Fjallar sú mynd um Christoph-
er Ransom, sem berst á japanskri
eyju við stríðandi trúarsöfnuð. Sögu-
þráðurinn er flókinn og nær hámarki
í fómarathöfn í lok myndarinnar.
HK
Byg&t á Film Comment og Premiere.
Helen Mirren og Charles Dance í hlutverkum sínum.
Kvikmyndir
Smáfréttir....
MICHAEL CHIKLIS er óþekkt leik-
aranafn. Það á þó eftir að breytast
því hann hefur fengið það erfiða hlut-
verk að leika John Belushi í Wired
sem farið verður aö kvikmynda
bráðlega.
Wired er byggð á samnefndri bók
eftir Bob Woodward sem setti allt á
annan endann í Hohywood fyrir
tveimur árum. Framleiðandi mynd-
arinnar er Ed Belman og segir hann
að ekkert stóru kvikmyndafyrir-
tækjanna í Hollywood hafi viljað
leggja pening í framkvæmdina. Það
varö úr að bjórfyrirtæki á Nýja-Sjá-
landi lagði fram þær þrettán milljón-
ir dollara sem með þarf. Leikstj óri
verður Larry Peerce. Þótt myndin sé
byggð á ævisögu Woodwards er langt
í frá að hún fylgi söguþræðinum.
Má nefna að ímynduöum viðræðum
þeirra Belushi og Woodward er kom-
ið fyrir. Aðrir leikarar eru Ray
Sharkey, Patti D’Arbanvihe, J.T.
Walsh og Lucinda Janey.
• • •
ÞÆR FRÉTTIR berast frá Suður-
Afríku að búið sé að banna sýningar
á A World Apart, en sú mynd fékk
sérstök verðlaun dómnefndarmanna
á kvikmyndahátíðinni í Cannes.
Þessi ákvörðun stjómvalda kemur í
beinu framhaldi af banni á Cry Free-
dom. A World Apart, sem er leikstýrt
af Chris Menges, fiallar um aevi út-
lagans Shawn Slovo.
• • •
LÍKLEGAST ER að tvær gaman-
myndir berjist um hver verði mest
sótta myndin í Bandaríkjunum þetta
árið. Myndirnar, sem eru Coming
To America og Who Framed Roger
Rabit, hafa á aðeins sex vikum skilað
hvor um sig þrjátíu milljón dohurum
í hagnað til framleiðenda sinna. Vin-
sældir Coming To America má rekja
til Eddie Murphy sem slær eftir-
minnilega í gegn í hlutverki Akeem
prins frá Afríku sem kemur í leit aö
eiginkonu til Bandaríkjanna. Who
Framed Roger Rabit er brautryöj-
andaverk. Þar er blandað saman
leikurum og teiknifigúrum. Hug-
mynd sem var dýr í framkvæmd en
hefur greinhega borgað sig.
• • •
COSTA CAVRAS er ekki afkasta-
mikill leikstjóri. Síðasta kvikmynd
hans var hin eftirminnilega Missing
er gerð var 1982. Hann hefur nú sent
frá sér Betrayed sem fiallar um ríkis-
starfsmann sem Debra Winger leik-
ur. Hún kemst óvænt á snoðir um
áætlun nokkurra harölínumanna
um stofnun nýs ríkis. Handritið
skrifaði Joe Eszterhas er skrifaði síð-
ast Jagged Edge og meöleikarar Win-
ger eru Tom Berenger og John
Heard.
• • •
MIKIÐ HEFUR veriö skrifað og rætt
um þann möguleika að láta Arnold
Schwarzenegger og Sylvester Stall-
one leika saman í kvikmynd.
Schwarzenegger afgreiddi þann
möguleika með þessum orðum. „Það
getur aldrei gerst, einfaldlega vegna
þess að það er léleg kaupsýsla. Við
stefnum að sama áhorfendahópi.
Saman værum viö tvöfalt dýrari en
hvor í sínu lagi. Á móti kæmi aö
áhorfendum mundi ekki fiölga. Það r
hlýtur hver maöur að sjá aö þetta
borgar sigekki."
• • •
SE AN CONNERY hefur ekki verið
jafneftirsóttur síðan hann var á há-
tindi frægðar sinnar í James Bond
myndunum. Hann hefur nýlega lokið
við að leika í tveimur myndum. Hann
leikur aðalhlutverkið í sakamála-
myndinni The Presido, hlutverk sem
upprunalega var skrifaö fyrir Marl-
on Brando. Leiksfióri er Peter Hy-
ams. Comiery hefur einnig lokið ný-
lega aö leika foður Indiana Jones í
þriðju myndinni um kappann. Henni
er að sjálfsögðu leikstýrt af Steven
Spielberg.