Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1988, Page 61
LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988.
77
Sviðsljós
Ferraro hjálpar einkasyni sínum
Hvað á móðir að taka til bragðs þegar
einkasonurinn hefur gerst sekur um sölu á
eiturlyfjum? Geraldine Ferraro, varafor-
setaefni bandarískra demókrata við síðustu
forsetakosningar, þurfti fyrir skömmu að
svara þessari spurningu þegar sonur henn-
ar var dæmdur í fjögurra mánaða þegn-
skylduvinnu fyrir sölu á kókaíni.
Með í úrskurðinum fylgdi að strákurinn,
John Zaccaro, þyrfti að vera í eins konar
stofufangelsi meðan hann afplánaði dóm-
inn. Vinnan var hins vegar fólgin í því aö
þj ónusta í félagsmiðstöð. Ferraro fór strax
að leita að sæmilegum verustað fyrir soninn
og fann að lokum tveggja herbergja íbúð.
Fyrir íbúðina þarf hún að borga andvirði
60 þúsunda íslenskra króna á mánuði. Inni-
falið í verðinu er kapalsjónvarp og vinna
þjónustustúlku. Þegar John er ekki að vinna
má hann aðeins fara út í einn klukkutíma
á viku til að versla og heimsóknartímar eru
aöeins tveir á mánuði.
Mörgum Bandaríkjamönnum þykir sem
strákur hafi sloppið vel og njóti betra atlæt-
is í fangavistinni en aðrir sem lent hafa í
sömu sporum. Ferraro segir að þessi lausn
sé betri en að senda soninn í fangelsi. „Og
svo þarf hann að elda fyrir sig sjálfur,"
bættihúnvið.
Geraldine Ferraro lagði sitt af mörkum til að gera fangavist sonar síns
bærilega.
Stjömuleikur
Gretu Scacchi
Leikkonan Greta Scacchi er nýjasta stjarnan í kvikmynda-
heiminum. Hún hefur hlotið mikið lof fyrir leik sinn í mynd-
inni White Mischief og fleiri myndir eru á leiðinni.
Greta er af breskum og ítölskum ættum. Hún hefur
ákveðnar hugmyndir um galdurinn að baki leiklistinni.
„Aðalatriðið er að ná góðu sambandi milli hugarog lík-
ama. Takist leikurum það ekki líta þeir út eins og hænsn,“
segir hún. Hún þekkir raunar nokkuð til þeirra fugla þ ví
um tíma dvaldi hún á áströlskum hænsnabúgarði.
Annars er það rússneska leikskáldið Anton Chekhov sem
á hug hennar allan þessa dagana. Hún hefur verið ráðin
til að leika eitt aðalhlutverkið í kvikmynd byggðri á leikrit-
inu Þremur systrum eftir Chekhov. Á meðan hún bíður
eftir að tökur hefiist leikur hún í Vanja frænda eftir sama
höfund á sviði í Lundúnum.
Greta Scacchi á framtiðina fyrir ser í kvikmyndunum.
/
SKEMMTISTABIRNIK
u.-
1
r% *•*##••••*♦• •••••••
• •
HOTEL SÖGU
Hin frábæra
danshljómsveit
Um
síðustu helgi
var rosalegt
dansfjör
... algjört
einsdæmi...
fa
LÆKJARGÖTU 2 SÍMl 62162=
Um
helgar
Ccvrinn
1 Kvotnn. unflir L»k|jHunQ:i Siw»' 11340 og 62'625
• •
011
kvöld
Hljómsveitin
r
I
GEGNUM
TÍÐINA
leikur gömlu og
nýju dansana í kvöld
frá kl. 22.
ÁLFHEIMUM 74. SÍMI686220.1
^ 't ;.a:.
* %'
f l .f,, m *
i
Hljómsveitin
Gildran
í Zeppelin
í kvöld
Létt og skemmtileg
rokktónlist.
Nýr ferskur staður
rokkunnenda!
Borgartúni 32
Annar í
afmæli
Evrópa
tveggja ára
Evrópa hefur nú
fengið andlitslyft-
ingu og þess vegna
Rebbie Jackson
(systir Michael’ s Jackson)
í kvöld kl. 22.00-03.00
Kr. 700,- 20 ára og eldri.