Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1988, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1988.
7
Fréttir
Vestur-Landeyjar:
Kennaramál-
ið í meitingu
Skólanefnd og skólastjóri grunnskól-
ans í Vestur-Landeyjum gengu á
fund nýs menntamálaráðherra, Sva-
vars Gestssonar, á mánudag. Erindi
nefndarinnar var að skýra sjónarmið
sitt varðandi ráðningu kennara við
skólann. Hefur nefndin mælt með
Guðrúnu Björnsdóttur sem er rétt-
indalaus. Á móti henni sótti um stöð-
una Vigfus Andrésson sem er með
réttindi. Undanþágunefnd hafði vís-
að máh Guðrúnar frá. Þá óskaði
skólanefnd eftir fundi með ráðherra.
„Það hefur enginn kennari verið
ráðinn enn. Það er verið að melta
þær upplýsingar sem komu fram á
fundi nefndarinnar með ráðherra,“
sagði Sólrún Jensdóttir í mennta-
málaráðuneytinu við DV. „Það tekur
tíma að fjalla um svona mál en það
verður ekki langt að bíða niður-
stöðu,“ sagði Sólrún.
Kennsla við grunnskólann í Vest-
ur-Landeyjum er hafin og hefur
skólastjórinn, Helga Þorsteinsdóttir,
reynt að sinna kennslu eftir föngum
meðan reynt er að fá botn í ráðningu
nýskennaraástaðinn. - -JSS
Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra með veggspjaldið sem dreift
verður til skólanemenda.
í þágu unglinga:
Herférð til heil-
brigðs Irfemis
Nú er að hefjast sérstakt átak til að
efla heilbrigt líferni og vellíðan með-
al íslenskra unglinga. Herferðin er á
vegum nefndar um heilbrigða lífs-
hætti æskufólks.
Fyrstu skref átaksins eru tekin
trndir slagorðinu: Mitt líf - ég vel.
.Veggspjaldi, barmmerki og límmiða
er dreift til allra skólenemenda á
aldrinum 11-16 ára, aUs um 21 þús-
und manns. Sérstök áhersla er lögð
á að unglingarnir taki sjálfir ábyrgð
á sínu lífi, en það mótast af ýmsum
ákvörðunum sem teknar eru mörg-
um sinnum á dag, alla daga ársins.
Vakin er athygh á sjálfstæðum
ákvörðunum um ýmsar lífsvenjur,
svo sem mataræði, hreyfingu, kynlíf,
vímuefni, vináttu og ótal fleiri atriði
sem unghngar velja sjálfir - og ráða
miklu um hðan þeirra í nútíð og
framtíð. -JSS
Jómfrú Helena
stilH á Selfossi
Regina Thorarensen, DV, Selfossi:
Hér á Selfossi geröi jómfrú Helana
htið sem ekkert vart við sig. Heldur
hvassara var um hádegi á sunnudag
en venjulegá og ekki um neinn feili-
byl að ræða. Þess má geta að góður
þurrkur er oftast á Selfossi og þar
af leiðandi geta húsmæður þurrkaö
þvott sinn úti.
Skolanefnd Vestur-Landeyjaskóla gekk á fund Svavars Gestssonar menntamálaráóherra. Þar kynnti nefndin sjónar-
mið sín vegna ráðningar nýs kennara við skólann. DV-mynd KAE
HÚSA
SMIDJAN
Húsasmiðjan lofar þér
meiri hita íyrir penimgana!
Stelrad miðstöðvarofnarnir eru
löngu heimsfrægir fyrir orkunýtingu
og fallegt útlit. Meðal þekktustu
viðurkenninga sem Stelrad ofnarnir
hafa fengið er árangur BSI prófana
hjá Bresku iðntæknistofnuninni.
Prófanir, sem sýndu að enginn
annar ofn, framleiddur í Bretlandi,
geislar meiri hita fyrir minni pen-
inga. Hérlendis hefur Stelrad hlotið
viðurkenningu Iðntæknistofnunar
íslands.
Húsasiniðjan býður þér Stelrad
ofna af sjö gerðum. Hver gerð fæst í
6 mismunandi hæðum: 300, 400,
500, 600, 800, og 1000 mm.
Ofnarnir fást í 18 lengdum: 480 til
3200 mm. Stelrad ofnarnir eru állir
gæðaprófaðir en sérstakar varma-
prófanir eru gerðar á ofnunum í
tæknideildum Háskólans í Liege,
sem er talinn framúrskarandi á sviði
varmafræða.
Heimilisverslun Húsasmiðjunnar
mælir með Stelrad miðstöðvarofnum.
Stelrad heldur hitakostnaðinum viðráðanlegum!
SKÚTUVOGI 16 • SÍMI 6877 00
U SJÁLFSTÆI iP DREGIÐ EFTIR 3 DAGA DISMEb OPIÐ TILKL IN .. 22.
^ÖS HAPPDRÆTTI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS