Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1988, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1988, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 24. OKTÖBER 1988. 11 JOV Verðbólgan fer úr böndum Pótur L. Pétursson, DV, Baroelona; Veröbólgan hér á Spání virðist hafa farið úr bönuum. Fram- færsluvísitalan í september hefnr hækkaö um eitt prósent frá því í ágústmánuði og er þvi verðbólg- an komin í 4,9 prósent þaö sem af er árinu. Þetta er talinn mikill ósigur fyr- ir fjármálaráðherrann, Carlos Solchaga. Aðeins mánuður er lið- inn frá því verðbólguáætlanir stjómarinnar brustu, en hún hafði lýst því yfir að verðbóiga yrði ekki n\eiri en sem nemur þremur prósentum á árinu. I ágústmánuði var verðbólgan allt í einu komin í 3,9 prósent. Stjómin varð þá að endurskoða veröbólguviömiðun sína og var sett nýtt þak. Fjármálaráðherra lýsti því yfir að verðbólga yrði ekki meiri en 5 prósent á árinu. Tölur septembermánaðar sýna aö þetta þak er að bresta. Verð- bólgan er nú komin í 4,9 prósent og er talið að ógjömingur sé að lækka þessa tölu síðustu þrjá mánuði ársins. Hækkunin er mest vegna hækkunar á ýmsum raatvælum. Þar ber hæst hækkun á eggjum og kjúklingum og hefur stjómin lýst því yfir að þar sé um verös- araráð að ræða. Hún hefur hótað hörðum aðgerðum gegn framleið- endum, lækki þeir ekki vöm sína strax. Aögeröimar, sem hótað hefur verfö, em aukinn innflutn- ingur á þessum vömm. Niðurskurdur í háskóium Gunnar Guðmundsson, DV, Khöfn; Ein af spamaöarleiðum dönsku ríkisstjórnarinnar er aö skera niður fjármagn til háskólanna. Af því leiðir aö sautján hundmð færri umsækjendur fá inngöngu. Þetta er gert til að minnka of- framboð í þeira greinum þar sem nú þegar er atvinnuleysi. í staö- inn á aö fjölga námskeiðum á sviðum sem taka styttri tíma, þó aðallega 4 tækni- og verslunar- sviði. Þessi niðurskurður kemur einnig til með að hafa áhrif á hversu margir útlendingar fá inngöngu í skólana. í dag er í mörgum skólum miðað við aö hámark útlendinga í námi sé um þaö bil 10 prósent námsmanna. Annars staðar em mörkin lægri. Undanfarin ár hefur verið frek- ari tilhneiging til takmörkunar á inntöku útlendinga og með svo miklum niðurskurði er Ijóst að ástandið verður ekki betra. Örtröð á flugvöllum Aima Bjamasan, DV, Denver Örtröðin á ýmsum bandarísk- um fiugvöllum og mistök, sem þar verða hjá flugumferðarsfjór- um meðai annars vegna of mikils vinnuálags, hafa magnað um- ræður um bætt öryggi á flugvöll- um. Vegna þijátíu mistaka flugum- ferðarstjóra á O’Hare flugvellin- um í Chicago á þessu ári, sem í engu tilfelli leiddu þó til slysa, hefur samgöngumálaráðherra takmarkað fjölda lendinga þar. Þetta veldur talsverðum töfum á flugi og krefst úrbóta sem nú er unnið að. Lendingar og flugtök á O’Hare- flugvellinum í ágústmánuði voru 534.302 þegar allt er meðtaliö, samkvæmt skýrslum bandarísku flugmálasljómarinnar. Næst- mesta umferðin var á Hartsfield flugvellinum í Atlanta, rúmlega 519 þúsund lendingar og flugtök. Á Forth Worth í Dallas voru flug- tök og lendingar í ágúst samtals 448.865, tæplega 414 þúsund á al- þjóðaflugvellinum í Los Angeles, tæplega 344 þúsund á Stapleton flugvellinum í Denver og 311 þús- und í San Francisco. ________________________________________Útlönd Sameiginlegtsendiráð Frakka ogV-Þjóðverja? Bjami Hmrikssom, DV, Bordeaux: Frakkar og V-Þjóðverjar verða sí- fellt meiri og meiri vinaþjóðir. í þess- um tveimur löndum eiga hugmyndir um sameinaða Evrópu einna mest fylgi og ríkisstjómimar nýta sér ótrúlegustu möguleika til samvinnu. Nýjasta dæmið um þetta, og það fyrsta sinnar tegundar í alþjóða- stjórnmálum nútímans, eru ráða- gerðir um sameiginlegt sendiráð ríkjanna í höfuðborg Mongólíu, Ula- anbaatar. Þessi hugmynd mun mnnin undan rifjum utanríkisráöherra landanna og þótt enn sé máhð einungis á at- hugunarstigi hafa aðrir ráðamenn tekið vel í hana. Hvorugt landið hefur sendiráð í Mongólíu þótt Frakkar leigi að vísu eitt hótelherbergi undir smávægi- lega hótel- og verslunarstarfsemi. Annars sjá sendiráö Frakka og V-Þjóðveija í Sovétríkjunum um stjórnmálasamband við Mongólíu. A Gullfarrými líður þér eins og í stofunni heima hj á þér Gullfarrými Arnarflugs cr fyrir þá sem grciða hærri fargjöld. Farþcgar á Gullfarrými scm búa á Rcykjavíkursvæöinu eru sóttir heim og ekið að dyrum flugstöðvarinnar. Sórstök innritunarborð cru á öllum áfangastöðum Arnarflugs. Þcir sem fara í tcngiflug gcta innritað sig og fcngið sætisnúmcr alla leiðina, í Keflavík. Leyfilegur farangur er 30 kíló í stað 20. Farþegar á Gullfarrými hafa aðgang að sórstökum setustofum á öllum áfangastöðum Arnarflugs. Allir drykkir um borð cru ókeypis. Sórstakur matscðill crá Gullfariými. Maturinn cr borinn fram á bæhcimsku postulíni og veigar í kristalglösum. Farþcgar fá aðild að Arnarflugsklúbbnum, sem veitir þeim ýmis forróllindi. Við kveðjum með dálitlum minjagrip. Gullfarrýmið. Þægilcgasti fcrðamátinn. Söluskrifslofa Arnarflugs og KLM Austurstræti 22, sími 623060. Söluskrifslofa Arnarflugs Lágmúlá 7, sínii 84477.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.