Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1988, Blaðsíða 37
MÁNUDAGUR 24. OKTÖBER 1988.
49
Var Bush skotínn?
Sviðsljós
Bryan
Ferry
segist aldrei hafa átt náinn vin
úr hópi kvenna, aö móöur sinni
undanskilinni. Ferry, sem hefur
þaö hentuga vandamál aö konur
hggja flatar fyrir honum í rööum,
segist vera of feiminn til að stofna
til kynna viö kvenfólk. Hann er
líka giftur og þess vegna ekki á
lausu aö eigin sögn. En ef hann
er giftur bendir það til þess aö
honum hafl tekist aö yfirvinna
feirtjni sína einu sinni í það
minnsta.
Stefanía Mónakóprinsessa hefur í
gegnum tíðina valdið fjölskyldu sinni
og sérstaklega fóður sínum, Rainier
fursta, mikiurp ama og leiðindum.
Stúlkan hefur afls ekki hegðað sér
eins og fólk með blátt blóð í æðum á
að hegða sér.
Þess er skemmst að minnast er hún
var að dandalast með honum Mario
sínum heimshoma á milfl. Karl faðir
hennar var ekki alls kostar hrifmn
af því hátterni, enda er Mario dæmd-
ur nauðgari. Hvaða faðir myndi vilja
vita dóttur sína í félagsskap slíks
manns?
Núna er stúlkan hins vegar farin
að fara að ráðum fóður síns. Hún er
búin að sparka Mario og er farin að
búa í Los Angeles í þeirri von að þar
séu mestu möguleikarnir á að kom-
ast inn í kvikmyndirnar. Ekki er faö-
ir hennar neitt sérlega yfir sig hrif-
Þessa dagana er verið að breiða út
í Bandaríkjunum alls kyns sögur um
varaforsetann George Bush sem nú
er mjög líklegur til að taka við starfi
núverandi yfirmanns síns, Ronalds
Reagan.
Samkvæmt þeim sögum sem nú
eru í gangi á Bush að hafa veriö hið
mesta kvennagull og ekki við eina
fjölina felldur í þeim efnum. Jafnvel
á hann að hafa komið sér í hinn
mesta lífsháska með kvennafari
sínu.
Samkvæmt sögunum á Bush að
hafa verið skotinn og særður fyrir
utan hús einnar hjákonu sinnar árið
1981. Sáriö á ekki að hafa verið alvar-
legt og leyniþjónustumenn munu
hafa breitt algerlega yfir þetta atvik.
Konan, sem Bush á að hafa verið að
heimsækja, er ekkja öldungadeildar-
þingmanns úr flokki repúblikana.
Aðalhjákona Bush á að hafa verið
Jennifer Fitzgerald, fimmtíu og sex
ára að aldri, einkaritari varaforset-
ans. Samband þeirra á að hafa staðið
í tólf ár, eða allt frá því að Bush var
sendiherra í Kína. Samkvæmt sög-
unum á Bush að hafa haft meira vit
í þessum efnum en Gary Hart sem
neyddist til að draga sig í hlé úr kosn-
ingabaráttunni eftir að upp komst
um ósiðsamlegt athæfi hans með
Donnu Rice. Bush á einfaldlega að
hafa hætt að hitta ástkonur sínar
eftir að hann tók þá ákvörðun að
sækjast eftir forsetaembættinu fyrir
tveimur árum.
Talsmenn Michaels Dukakis segj-
ast alsaklausir af því að hafa komið
þessum söguburði á kreik. Segjast
þeir ekki taka þátt í svona löguðu
því að það gæti skaöaö framboð Duk-
akis.
Heimildir innan Dukakis-herbúð-
anna herma að strax í sumar hafi
verið ákveðið að láta engar svona
sögur um Bush leka út. Ástæðan
hafi verið sú-að aðstoðarmenn-Duk- -
akis voru hræddir um að ef kjósend-
ur fengju að heyra svóna sögur um
Ólyginn
sagði...
Þau voru alveg sérstaklega glæsileg í veislunni til heiðurs Cary Grant þau
Albert, Stefania og Rainier. Veislan var að sjálfsögðu haldin í Beverly Hills.
Símamynd Reuter
uarbara Bush stendur eins og klettur við hlið manns síns þrátt fyrir allar sögurnar um framhjáhald harís.
keppinaut hans myndi það gera Bush
of karlmannlegan í huga almennings
samanborið við Dukakis.
í sumar komust á kreik sams konar
sögur um Bush þótt ekki væru þær
eins safaríkar og þær sem nú ganga
manna á milli. Þá lét Bush son sinn
bera þær til baka.
Barbara kona hans segist hafa
stungið upp á því í gríni, þegar sög-
urnar um að hann hefði verið skot-
inn fyrir utan hús ástkonu sinnar
komust á kreik, aö hann héldi blaða-
mannafund og afklæddi sig þar alveg
og sneri sér í hring svo að blaðamenn
gætu séð aö ekkert skotsár væri á
manninum. Þetta fannst Bush ekki
fyndið.
Diana
Ross
- sem er sem kunnugt er hinn
mesti vargur - er víst alveg ras-
andi þessa dagana út af nýrri
mynd sem verið er að gera í
Bandaríkjunum. Myndin á að
heita Dream Girls og í henni leik-
ur Whitneý Houston valdasjúka
söngkonu í kvennasöngtríói. Di-
önu finnst illa að aö sér vegið
með þessum söguþræði og vill
meina að þarna sé veriö að hnýta
í hana og framkomu hennar þeg-
ar hún var aðalsöngkonan í
hljómsveitinni Supremes.
Jane
Seymour
þurfti um daginn að leika atriði
í kvikmynd sem hún er nú að
leika í. Það er ekki svo merkilegt
út af fyrir sig nema fyrir þær
sakir að takan á þessu atriði fór
fram í Auschwitzfangabúðunum
illræmdu. Seymour sagði aö
henni hefði fundist hún finna lykt
af mannakjöti og það væri ekki
svo skrítiö þar sem margir ætt-
ingjar hennar heföu látiö lífið í
þessum fangabúðum og þess
vegna hefði þetta allt verið mjög
raunverulegt fyrir sig.
Stefaníu finnst það greinilega alveg meiriháttar að standa við hliðina á
Frank Sinatra. Símamynd Reuter
inn af þeim draumum þeirrar stuttu
en það er þó skárra en Mario.
í síöustu viku komu síðan Rainier
og Albert, bróðir Stefaníu, í heim-
sókn til hennar. Tilefniö var að þeim
hafði öllum verið boðið í heljarmikla
veislu til heiðurs Cary Grant sem lék
svo oft á móti mömmu hennar. Ágóð-
inn af veislunni rann síðan allur í
sjóö sem kenndur er við Grace prins-
essu.
Ágóðinn varö nálægt fimmtíu
milljónum íslenskra króna þannig
að eitthvað hafa sjússamir kostað.
Stefanía fær fjöl-
skylduna í heimsókn