Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1988, Qupperneq 48
62 • 25 • 25
FRÉTT ASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið i hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað I DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1988.
Ævintýri á Hestshálsi:
Geithafur
raeðst á
ijúpnaskyttu
hverjuþessitöfsætti. Rjúpnaskytt-
anhékkþáennáhornunumogvar
allur orðinn aumur og marinn. í
sameiningu tókst mönnunum þó
að losna við geithafurinn og hlupu
þeir síðan eins og fætur toguðu að
bíl sínum með skepnuna á hælun-
um. Inn í bílinn komust þeir án.
frekari vandra:ða og óku á hrott.
Ekkí veiddist nein rjúpaá Hests-
hálsinum í i«;ttaskiptiö. -gb
Geithafrar geta verið varasamir
um fengitímann. Það fékk rjúpna-
skytta uppi á Hestshálsi aö reyna
í gærmorgun þegar stór og mikill
hafur frá bæ einum í Lundar-
reykjadal réðst á hann og vildi
stanga. Rjúpnaskyttan átti fótum
sínum fjör að launa.
Maðurinn hafði skiliö við félaga
sinn þegar hann heyrði mikið
þrusk fyrir aftan sig. Þegar hann
leit við sá hann hvar geithafúr
stefndi á hann á fullri ferð. Rjúpna-
skyttunni tókst að grípa í hom
hafursins og gat þannig forðast að
fá þau í síðuna. En um leið og horn-
unum var sleppt geröi hafurinn sig
líklegan til að ráðast aftur á mann-
inn.
Eftir rúman klukkutíma var fé-
laga ijúpnaskyttunnar farið að
leiðast biöin og fór því að gæta að
Hafskipsmálið:
Ákærur birtar
í dag
Gunnlaugur Briem, yfirsakadóm-
ari í Reykjavík, birtir ákærur í Haf-
skipsmálinu um hádegisbil í dag. DV
hitti Gunnlaug að máli í morgun og
sagði hann Jónatan Þórmundsson,
sérskipaðan saksóknara í málinu,
hafa skilað ákærum til sakadóms á
fóstudag. Ætti eftir að ganga frá birt-
ingu og því var ekki hægt að fá upp-
gefið í morgun hverjir eru ákærðir.
Þegar ákæra var gefin út voru Haf-
skipsmennirnir Björgólfur Guð-
mundsson forstjóri, Ragnar Kjart-
ansson stjórnarformaður, Páll Bragi
Kristjónsson, forstöðumaður fjár-
málasviös, og Helgi Magnússon end-
urskoðandi ákærðir.
Ljóst er að Jóhann Einvarðsson
þingmaður verður ákærður nú en
hann átti sæti í bankaráði Útvegs-
banka íslands. Með Jóhanni, sem var
varaformaður, sátu í bankaráðinu
þeir Valdimar Indriðason, fyrrver-
andi alþingismaður, sem var formað-
ur, Kristmann Karlsson fram-
kvæmdastjóri, Garðar Sigurðsson,
fyrrverandi alþingismaður, og Þór
Guðmundsson hagfræðingur.
Bankastjórarnir Axel Kristjáns-
son, Halldór Guðbjarnarson, Lárus
Jónsson, Ólafur Kristmann Helga-
son, Ármann Jakobsson, Bjarni Guð-
björnsson og Jónas Rafnar voru
ákærðir í málinu 1987. -hlh
Vigdis afhenti
Evrópuverðlaun
Forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, aíhenti tveimur sigurveg-
urum fyrstu Evrópuverðlaunin fyrir
besta sjónvarpshandritið á verð-
launahátíð í Genf nú rétt fyrir hádeg-
ið. Þegar DV fór í prentun lá ekki
fyrir hverjir sigruðu.
Vigdís er í forsæti níu manna
dómnendar sem velur tvö handrit af
tíu handritum ungra höfunda sem til
greina koma til verðlauna. Eitt þess-
ara handrita er íslenskt, Steinbarn
eftir Vilborgu Einarsdóttur. -HK
Heilbrigöiseftirlitið:
Gerði óstimplað
hreindýrakjöt
upptækt
„Það fannst óstimplað hreindýra-
kjöt á einum stað og það var gert
upptækt," sagði Oddur Rúnar Hjart-
arson, forstöðumaður Heilbrigðiseft-
irlits Reykjavíkur, er DV ræddi við
hann.
Eins og greint var frá í blaðinu fyr-
ir helgi virðist vera mikið magn af
hreindýrakjöti í verslunum og á veit-
ingastöðum í Reykjavík þrátt fyrir
mjög skertan kvóta. í samtali við
blaöið sagöist fólk á Austfjöröum
ekki hafa getaö selt kjöt í verslanir
því þar hefði verið til nóg kjöt. Sögð-
ust kaupmennirnir hafa fengið það á
lægra verði en nú tíðkast og munaði
2-300 krónum á kílóinu.
„Þetta kemur upp á hverju einasta
hausti,“ sagði Oddur Rúnar. „Við
höfum að undanförnu farið í verslan-
ir og á veitingastaði, eins og við ger-
um raunar allan ársins hring, til að
fylgjast með að allt fari eftir settum
reglum og eins og áöur sagði fannst
ólöglegt kjöt aðeins á einum stað. Var
um lítið magn að ræða.
Unnu á
öllum
borðum
islenska skáksveitin vann sveit
Puerto Rico á öllum boröum á ólymp-
íuskákmótinu á Þessalóniku í gær.
Jóhann Hjartarson hvíldi en Jón L.
Árnason telfdi á fyrsta borði, Mar-
geir Pétursson á öðru, Helgi Ólafsson
á þriðja og Þröstur Þórhallsson á
fjórða. Jón og Helgi höfðu svart og
Margeir og Þröstur hvítt.
Eftir þennan góða sigur lenti ís-
lenska skáksveitin í þriðja sæti sam-
kvæmt töfluröð eftir fyrstu umferð
og fær því veröugan andstæðing í
dag. kanadísku sveitina. í morgun
var enn ekki búið að tilkynna hvern-
"•Tg Kanadamenn stilltu upp sinni
sveit en i henni eru ágætir skák-
menn; til dæmis Spraget. sem íslend-
ingar kannast við frá St. John. og
landflótta Rússi, Ivanov að nafnigse
Keflavíkurtogararmr:
Staðan að
> breytast
„Ég verö að segja það áð viðræður
sem við höfum átt við stjórnarmenn
Hraðfrystihúss Keflavíkur og þá
Guðjón B. Ólafsson, forstjóra Sam-
bandsins, og Val Arnþórsson, stjórn-
arformann þess, um helgina hafa
aukiö mér bjartsýni á að togararnir
verði áfram á Suðurnesjum," sagði
Jón Norðflörö, stjórnarformaður
Eldeyjar hf., í morgun.
Hann sagði að það sem máhð sner-
ist nú um væri að Suðurnesjamenn
keyptu hlut Sambandsins í fyrirtæk-
inu öllu. Ef þaö gengi eftir myndu
Eldey hf„ Gæðaftskur hf. ogValbjörn
í Sandgerði taka höndum saman um
að kaupa þennan hlut í frystihúsinu
■*óg togurunum tveimur.
„Mér finnst menn sem við höfum
rætt við um helgiha vera mun já-
kvæðari en verið hefur og menn hafa
verið að skoöa máliö í ööru ljósi en
áður,“ sagði Jón Norðfjörð.
Það kemur í ljós alveg næstu daga
hver endir veröur á þessu mikla hita-
máli. -S.dór
Bílstjórarnir
aðstoða
senDiBíLnsTOÐin
Nýtt íslandsmet í maraþondansi var sett í gærkvöldi þegar nemendur Seljaskóla höfðu dansað stanslaust i 54
klukkustundir. Krakkarnir, sem höfðu skipt sér í tvo hópa, byrjuðu dansinn klukkan 5 á föstudaginn og dansaði
hver hópur i þrjú kortér og fékk síðan hvíld í kortér. Gekk allt snurðulaust og það voru þreyttir en ánægðir dans-
arar sem hættu kl. 11 i gærkvöldi. Þess má geta að fyrra metið var 48 klukkustundir og var það einnig sett af
nemendum Seljaskóla. DV-mynd KAE
LOKI
Nú hefur snúist við hið
fornkveðna: að fara upp í
sveit að elta gamla geit!
Veðrið á morgun:
Slydda og
snjókoma
fyrir norðan
Á morgun verður norðlæg átt um
vestanvert landið, en suðlæg átt
um landiö austanvert. Víðast verð-
ur veöurhæðin gola eða kaldi.
Norðvestanlands er búist við
slyddu eða snjókomu en rigningu
eða súld í öðrum landshlutum. Hiti
nálægt frostmarki á Vestíjöröum
en annars staðar 2-5 stig.
-JSS