Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1988, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1988.
5
Fréttir
Yfirdýralæknir gefur eftir:
Samþykkir innflutning hundsins
Depils með ströngum skilyrðum
„Yfirdýralæknir hefur nú sam-
þykkt innílutning á hundi þeim
sem þér sóttuö um leyfi fyrir síðast-
liðið sumar gegn því að hann verði
við komuna til landsins fluttur rak-
leiðis tíl Hríseyjar á Eyjafirði og
geymdur þar>í einangrun í fióra
mánuði á yðar kostnað, undir eftir-
liti dýralæknis sem þar starfar,“
segir orðrétt i bréfi landbunaöar-
ráöuneytísins til Friðberts Páls
Njálssonar, dagsettu 7. nóvember.
Um er að ræða innflutning á
Depli, hundi 9 ára sonar hans, frá
Frakklandi. Hefur DV fjallaö um
mál þetta þar sem sonurinn neitaði
að flytja til íslands nema hafa
hundinn með sér. Hefur beiðnum
Friöberts um innflutning hundsins
verið þráfaldlega neitaö af ráðu-
neytinu á grundvelii umsagnar
yfirdýraiæknis, Páls A. Pálssonar,
sem ekki gat „mælt meö innflutn-
ingnum" eins og það hefur verið
orðað.
Endurskoðun á afstöðu yfirvalda
til innflutnings hundsins var gerð
þar sem „ráðuneytið hefur að und-
anfórnu unnið að því að koma upp
aðstöðu þar sem geymd verði öfl
gæludýr sem innííutningur kann
að verða heimilaður á“.
Innflutningur Depils, sem er ís-
lenskur hundur og alheilbrigður,
samkvæmt frönskum læknisvott-
oröum, er háður ströngum skilyrð-
um í 9 liðum. Þar segir meðal ann-
ars að hundinum verði að fylgja
ný heilbrigðisvottorð, hann verði
skoðaður af yfirdýraiækni, sem
verði látinn vita með tveggja sólar-
hringa íyrirvara hiö minnsta, strax
við komuna til landsins og komiö
strax í lögreglufylgd til Hríseyjar.
Auk þess má ekki afhenda hundhm
til lífs eða láta hann auka kyn sitt.
Verði brugöið ut af skilyrðum þess-
um eða veikist hundurinn verði
honum „lógað bótalaust á kostnað
eiganda..Ber eiganda að greiða
allan kostnað og er ekki tekin
ábyrgö á dýrinu meöan það er í
sóttkví.
-hlh
Davíð og hundurinn Depill 1 danska Ekstrablaðinu:
„Dýralæknir eyðileggur fjölskyldu“
„Forsætisráðherra var mjög sam-
úðarfullur í garð drengsins og
hundsins en hann virðist því miður
þurfa að láta í minni pokann fyrir
tílfinningalausum embættísmönn-
um sem hata börn og hunda jafn-
mikið,“ segir orðrétt í grein í danska
Ekstrablaðinu á mánudag eftir sam-
tal blaðsins við Steingrím Her-
mannsson forsætísráðherra. í grein-
inni er fjallað um mál Friðberts Páls
Njálssonar og sonar hans, Davíðs,
þar sem drengurinn neitar að koma
til íslands frá Frakklandi nema hann
fái að hafa hundinn Depil með sér.
Hefur DV þegar skýrt frá þessu máh.
Fyrirsögn greinarinnar, sem er
upp á heila síðu, er: „Dýralæknir
eyðileggur flölskyldu.“ Þar segir frá
árangurslausum tilraunum Frið-
berts til að fá hundinn fluttan tíl ís-
lands, þrátt fyrir flölda heilbrigðis-
vottorða, og er yfirdýralæknir, Páll
A. Pálsson, nefndur til sögunnar sem
hinn illi andi sem virðist hafa meiri
völd en forsetinn og forsætisráð-
herrann og haldi þannig 9 ára dreng
í útlegð frá ættlandi sínu. Hafi ís-
lenskir ráðamenn og forsetinn alltaf
vísað á yfirdýralækni sem þann aðila
er hefði síðasta orðiö í málinu. Er
auk þess talaö um Davíð og Depil sem
hin saklausu fórnarlömb þess
hundahaturs sem alltaf hafi einkennt
Reykjavík.
„... en diplómatar, ríkt viðskipta-
fólk og aðrir sem hafa samböndin í
lagi eiga ekki í erfiðleikum með að
koma hundum sínum og köttum inn
í landið. Þetta get ég sýnt fram á með
dæmum,“ er haft eftir Friðbert í
grein Ekstrablaðsins.
í lokin er vitnað í franskan dýra-
lækni þar sem hann segir ekkert
hundaæöi hafa ríkt þar sem Davíð
býr í Frakklandi. Blaðið segir svo:
„En á íslandi virðist hins vegar ríkja
alltannaðæði.“ -hlh
Það er óþarfi að óttast skort á bílastæðum
í KRINGLUNNI, því nú tökum við í notkun 400
ný bílastæði. í KRINGLUNNI eru nú 1600
ókeypis bílastæði, flest undir þaki. Taktu lífinu
létt og njóttu þess að versla í rólegheitum, óháður
veðri og stöðumælum. .
Opið: Mánud.-föstud. til kl. 19:00, laugárd. til kl. 16:00. Veitingastaðir, alla daga til kl. 21:00 og 23:30.