Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1988, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1988.
29
Lífestfll
Kafnsopinn indaell er
- sérstaklega ítalskur
Italia og allt ítalskt er í tísku,
segja menn og benda á fót, húsgögn
9g ferðir tíl Ítalíu því til sönnunar.
ítalskt kaffi, espresso og cappuc-
cino, er líka í tísku og á sér marga
fylgjendur. Og eins og aðrir heitír
ítalskir straumar á kaffið greiða
leið að hjörtum íslendinga.
íslendingar hafa í áranna rás ver-
ið mikhr kaffisvelgir. Álls staðar
þar sem maður rekur inn nefið er
boðið upp á kaffi í tíma og ótíma.
í heimahúsum, á vinnustöðum og
núna síðast í opinberum stofnun-
um og bönkum. En íslenskur uppá-
hellingur er í öllum atriðum ólíkur
ítölsku aðferðinm. Og maður
þambar ekki ítalskt kaffi öllum
stundum - þá .þyrfti maður ekki
annað farartæki en hjartsláttinn.
En hvað er espresso og cappucino
og hver er munurinn? Espresso er
lagað í könnum eða vélum sem hita
vatnið undir þrýstingi. Könnumar
em loftþéttar og við hitann leitar
vatnið upp í trektina þar sem kaffið
er. Útkoman er vel sterkt kaffi sem
borið er. fram í litlum bollum.
Cappuccino er í raun espressokaffi
með mjólk út í. En öðru vísi en við
eigum að venjast hér heima -
Espressovél, sem fæst í mörgum
búsáhaldaverslunum, frá Russell
Hobbs og kostar um 5000 krónur.
í þessari vél er líka hægt að búa
til cappuccino.
mjólkin er þeytt eða flóuö með
gufuþrýstingi. Flestir vilja strá
súkkulaðispónum yfir kaffið og þá
er sælan fullkomnuð.
ítölsk kaffidrykkja á íslandi
Fyrir þijátíu ámm kom ungur
maður frá söngnámi á Ítalíu. Guð-
mundur Baldvinsson heitir hann
og setti á stofn fyrsta kaffihúsið að
ítalskri fyrirmynd. Síðan hefur
Mokka verið fastur punktur í til-
veru margra sem segja að á Mokka
sé eini möguleikinn á að fá al-
mennilegt kaffi á þessu landi. Fleiri
staðir, sem bjóða upp á espresso,
hafa siglt í kjölfarið og nú er enginn
maður með mönnum sem ekki hef-
ur bragðaö espresso eða cappuc-
cino. En þó kaffihús séu vinsæl
vill fólk hka eiga kost á almenni-
legu kaffi heima hjá sér.
Könnur og vélar sem laga
espresso
Á markaði hér á landi eru nú alls
kyns tæki og tól til lögunar þessa
eðaldrykks. Tveir möguleikar em
Matur
í boði - annar er einfóld útfærsla á
kaffikönnum sem notaðar eru á
eldavélarhellu og hinn er nokkrar
gerðir af vélum sem settar eru í
samband við rafmagn. Báðir mögu-
leikar gefa góða raun, gott espresso
eða cappuccino.
Verðmunurinn er hins vegar
töluverður. Ódýrustu könnurnar
kosta um og yfir 1000 krónur en
vélamar kosta frá fimm þúsund til
tuttugu þúsund krónur. Ódýrasta
Einföld kanna sem lagar bæði espresso og cappuccino. Kannan er úr
stáli og kostar 3.995 i Te- og kaffibúöinni. DV myndir KAE
Einfaldasta gerð af espressokönnu en með henni er ekki hægt að búa
til cappuccino. Kostar frá 945 krónum fyrir 3 bolla og til 2290 fyrir 12 bolla.
Hér er sýnt hvernig kannan er
notuð. Hún er sett á eldavélar-
helluna og önnur kanna tekur við
kaffinu.
í lokin er gufunni hleypt í mjólkina
og hún þeytt. Kaffinu er haldið
heitu á meðan.
espressokannan hehir eingöngu
upp á espressokaffi en með öðmm
er líka hægt að gera cappuccino.
Vélamar sjá yfirleitt um hvoru-
tveggja, kaffið og mjólkina.
Kaffið í lögunina
Ekki er nóg að eiga tól og tæki
til að laga kaffi. Kaffið sjálft verður
líka aö uppfylla ákveðnar gæðakr-
öfur. Aðeins er ein sérverslun með
kaffi en það er Te- og kaffibúðin á
Laugavegi í Reykjavík. Verslunin
selur.tvær gerðir af sérstökum es-
pressokaffibaunum. Espresso
Roma er mikið brennt, dökkt,
sterkt og gott espressokaffi. Es-
presso Krana er sterkt en ljósara,
mýkra og mhdara en Espresso
Roma. Hins vegar er ekkert því til
fyrirstöðu að nota aðrar tegundir
ef fágað bragðskyn útheimtir það.
Sumir vhja kaffið sitt nýmalað
og því eru th espressovélar sem
hafa sambyggða kvörn. Þær eru
yfirleitt töluvert dýrari en aðrar.
Hinir geta fengið kaffið sitt malað
í Te- og kaffibúðinni eftir þörfum.
Cappuccino
Cappuccino er, eins og áður
sagði, espresso með flóaðri mjólk
saman við, nánast th helminga.
Kaffiáhugamenn segja að G-nyólk
gefi betri árangur. Hin venjulega,
íslenska mjólk er fremur fltusnauð
og þeytist þar af leiðandi illa.
Mjólkurkannan á helst að vera úr
stáli og ekki á að fyha hana nema
th hálfs. Mjólkin á að vera vel köld
og helst kannan líka. Rörið er látið
ná 1-1 Vi cm undir yfirborðið og
síðan er gufuþrýstingnum hleypt
á. Og sjá - mjólkurfroðan er tilbú-
in. Nánast því jafnmikið af mjólk
og kaffi er þeytt saman, svolitlu
súkkulaði stráð yfir og þú ert kom-
inn með boha af ekta cappuccino.
Hvernig áhald á að kaupa
Eins og áður hefur komið fram
er til mikið af könnum og vélum.
Fyrst er að gera sér grein fyrir hve
kaffiþyrstur maður er og síðan
hversu miklum fjármunum maður
vih eyða í munaðinn. Ef fáir eru í
heimili og lítið kaffi drukkið er
hæfilegt aö eiga einföldustu gerð
af espressokönnunni. Fyrir þá sem
vilja cappuccino fæst lítil, hand-
hæg kanna úr stáli og er líka hægt
að þeyta mjólkina í henni. Þeir sem
vilja eyða meiru og koma sér upp
fullkominni vél hafa úr ýmsu að
velja. Flestar búsáhaldaverslanir
selja shkar vélar sem merktar eru
Russel Hobbs og kosta þær um 5000
krónur. Sú vél hellir upp á fjóra
bolla. í Habitat fæst espressovél úr
stáh og kostar hún 7740 krónur og
hehir hún hka upp á fjóra boha. í
Te- og kaffibúðinni fæst aht frá ein-
földustu könnunum th flókinna og
dýrra véla. Sú verslun hefur líka
haft th sölu espressovél frá Pavoni.
Hún er í óbreyttri útgáfu frá 1921
og er sett saman í höndum. Hún
fæst úr kopar eða látúni og kostar
um 20.000 krónur. Og að lokum -
Ecco h cappuccino!
-JJ
-Tvö tímafaií:
Ekkert útskriftargjald.
$$ *919
Samkori
-
Ármúla 3 - 108 Reykjavik - Sími91-680988