Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1988, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1988.
,1
LífsstOl
„Fantaserað'' með
mynstur og liti
Mynstur á mynstur ofan boöa
tískuhönnuðir heimsins fyrir kom-
andi tíma. Þetta er mynstur sem
margir heföu hlegið að fyrir svo sem
einu ári en þetta er það sem koma
skal, kniplingamynstur, blóma-
mynstur, málverkamynstur, franskt
mynstur, köflótt og röndótt, bara að
nefna það. í raun er það orðið þann-
ig að ef einhver hefur nógu frumleg-
ar hugmyndir um mynstur eða
mynstursamsetningu þá slær það í
gegn.
Franski hönnuðurinn Ungaro er
yfir sig hrifinn af blómamynstri,
sérstaklega á kjólum, skyrtum og
bolum. Hann notar gjarnan settlegar
samsetningar sem stinga ekki mikið
í augun. Bill Bass er hins vegar öllu
djarfari í sínum mynstursamsetn-
Ungaro og Oscar de la Renta eru
nokkuð svipaðir í sinni hönnun. Þeir
velja einfaldar ieiðir og taka upp
gamia blómamynstrið. Simamyndir
Reuter
ingum og blandar saman köflóttu og
frönsku mynstri sem hefði þótt held-
ur ósmekklegt undanfarin ár. Jakk-
inn er með frönsku mynstri á ann-
arri hliðinni en köflóttur á hinni.
Hann er hentugur að því leyti að það
er hægt að snúa honum við að vild.
Oscar de la Renta er að venju mjög
fágaður í sinni hönnun og aðhyllist
mjög blómamynstur eins og kollegi
hans Ungaro. Kjólamir hans eru oft-
ar en ekki annaðhvort svartir eða
hvítir að grunnfleti með skærhtum
blómaknippum hér og þar.
Jean Louis Sherrer tekur frum-
skógarmynstur í grænu hermanna-
htunum og blandar saman viö það
hlébarðamynstri. Til þess að setja
punktinn yfir i-ið hefur hann safarí-
hatt í stíl.
Þessi myndi falla vel inn í frumskógarrjóðrið enda er hún í frumskógarlitum
fatnaði með hlébarðamynstri og safarihatt. Fatnaðurinn er hannaður af
Jean Louis Sherrer.
Kniplingamynstur verða vinsæl aftur á næstunni. að minnsta kosti hjá hönn-
uðunum. Þau Valentino og Lolita Lempicka hafá þegar tileinkað sér knipl-
ingamynstrið í létta fatnaðinn.
Tíska
Kniplingamynstrin eru einnig að
verða nokkuð algeng að nýju en þau
hafa ekki sést í óratíma. Þessi tegund
mynsturs er algengust í toppum og
léttum samkvæmisjökkum. Valent-
ino hannaði einmitt svoleiðis sam-
setningu í ljósum Utum. Franski
hönnuðurinn Linda Lempicka gerði
sig öllu breiðari og hannaði aldress
í samkvæmisstíl með kniphnga-
mynstri, vesti, pils og sam-
kvæmisjakka. Og við það hafði hún
háa hanska. -GKr
Frumlegur jakki frá Bill Bass, öðrum
megin með frönsku mynstri en hin-
um megin köflóttur og honum er
hægt að snúa á báða vegu.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta á fasteigninni Furuvöllum 13, Egilsstöðum, þl. eign Heim-
is Ólafssonar, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 24. nóvember nk.
kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur eru Jón Sveinsson hdl., Kristján Ólafsson
hdl. og Byggingarsjóður ríkisins.
Sýslumaður Suður-Múlasýslu
_______________________og bæjarfógetinn á Eskifirði