Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1988, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1988.
9
tJtlönd
EisHand haf nar
Moskvuvaldinu
í gær hafnaði eistlenska þjóðþingið
stjómarskrárbreytingum sem áður
vora samþykktar í Moskvu. At-
kvæðagreiðslan í Eistlandi undir-
strikar sjálfstæðisvilja sovétlýðveld-
isins. Niðurstaðan bendir til að
kommúnistaflokkurinn í Moskvu sé
að missatökin á umbótaáætluninni,
„okkur finnst þjóðemisleg öfga-
mennska sérlega ógeðþekk."
Spumingin sem Gorbatsjov hlýtur
að spyija sig er hvort hann hafi misst
tökin á þróun sem hann var sjálfur
upphafsmaður að. í breiðara sam-
hengi má einnig spyrja hvort mið-
stýrð umótaáætlun sé yfirhöfuð
möguleg í kommúnistaríkjum.
Reynslan frá Tékkóslóvakíu 1968 og
Póllandi 1980 bendir til að lýðræði
komi þjóðum í langri ánauð í slíka
vímu að enginn fær við neitt ráðið
og ailra síst yfirvöld.
Sovétlýðveldin ganga ekki lengur í takt: Sovéskir hermenn á gæsagöngu.
perestrojku, og hún tekin að lifa sjálf-
stæðu lífi.
í stað þess að samþykkja tillögur
frá Moskvu féllst eistlenska þingið á
að breyta stjómarskrá sovétlýðveld-
isins í þá átt að það hafi fullt vald til
að hafna lagabálkum frá Moskvu.
Leiðtogi eistlenska kommúnista-
flokksins, Vaino Valjas, sagði í gær
að atkvæðagreiðslan væri ekki upp-
reisn gegn Moskvuvaldinu, heldur í
anda þeirrar lýðræðisþróunar sem
sovéski kommúnistaflokkurinn væri
samþykkur.
Gorbatsjov vildi sjá tillögur sínar
samþykktar í Eistlandi, eins og í öðr-
um sovétlýðveldum. Hann sendi þrjá
fulltrúa stjómmálaráðsins til Eist-
lands um helgina til að tala um fyrir
þarlendum. Það kom fyrir ekki, og
sagði einn fulltrúanna, Medvedev
sem er hugmyndafræðingur flokks-
ins, að þjóðemishyggja Eystraltsríkj-
anna, Eistlands, Lettlands og Lithá-
ens, væri komin á hættulegt stig.
„And-sósíalísk háttsemi verður ekki
þoluð,“ sagði Medvedev.
Eystrasaltsríki Sovétríkjanna vom
sjáÚstæð á áranum milli heimsstyrj-
aldanna tveggja, en Stalín innlimaði
ríkin þijú. Með ógnarstjóm og inn-
flutningi Rússa í Eystrasaltsríkin
reyndi Stalín að bijóta á bak aftur
sjálfstæðisvilja þjóðanna.
Þegar Gorbatsjov varð leiðtogj Sov-
étríkjanna gaf hann beint og óbeint
undir fótinn með að einstök ríki í
sovéska ríkjasambandinu gætu feng-
ið að ráða sínum málum sjálf í meira
mæh en áður. Það var til þess að
þjóðir eins og Eistlendingar tóku við
sér og sáu fram á að fá meiri völd
heim í hérað.
Gorbatsjov er hins vegar ekki án-
ægður með það hvað hlutimir gerast
fljótt og án þess að flokkurinn hafi
fulla stjóm á þróun mála. í ræðu á
þriðjudaginn sagði Gorbatsjov að
Pólskakirkj-
an ræðst
að stjóm-
völdum
Kaþólska kirkjan í Póllandi
réðst í gær harkalega aö yfirvöld-
um landsins og sakaði þau um
að koma í veg fyrir viðræður við
Samstöðu, hin bönnuöu verka-
lýðssamtök.
Yfirlýsing kirkjunnar þykir
óvenju haröorð. Eru stjómvöld
fordæmd fyrir að reka áróður í
ríkisfjölmiðlunum gegn mann-
réttindum, sérstaklega réttindum
verkalýðsfélaga. Er áróðurinn
sagður hafa komiö í veg fyrir aö
rétt andrúmsloft hafi getað
myndast í viöræðunum. Einnig
eru sljómvöld fordæmd fyrir aö
viröa ekki samkomulag sitt við
kirkjuna þar sem kveðið var á
um að námuverkamönnum, sem
fóra í verkfall í ágúst síðastliðn-
um, yrði ekki refsað. Loks var
ákvörðun yfirvalda um að loka
Lenín-skipasmíðastöðinni, þar
sem Samstaöa varð til 1980, for-
dæmd. .
Kirkjan, sem styður Samstöðu,
átti mikinn þátt í að koma á við-
ræðum milli verkalýðsfélagsins
og yfirvalda.
Getum nú boöiö þennan fullkomna og
hentuga Bondstec örbylgjuofn á ótrúlega
hagstæöu og milliliöalausu heildsöluveröi
beint til þín 18 lítra, 500 vatta, affrysting,
snúningsdiskur. Nákvæmur íslenskur
leiöbeiningarbæklingur fylgir.
Spariö tíma, fé og fyrirhöfn, meö Bondstec
og lækkiö um leið rekstur heimilisins.
VERÐ AÐEINS 13.850 STGR.
Opið mánudag—fimmtudag frá kl. 9—22
föstudag frá kl. 9—19
laugardag frá kl. 10—16
OPUS-VERSLUN SEM ER TIL FYRIR ÞIG.
w
j SNORRABRAUT 29
SÍ/V8 62-25-55
powm
mm