Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1988, Qupperneq 10
10
FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1988.
Utlönd
Benazír Bhutto nær ekki
meirihluta í Pakistan
Þjóðarflokkur Benazírs
Bhutto nær ekki meirihluta á
pakistanska þinginu en verður
engu að síður stærsti flokkur-
inn. Þegar búið var aö telja þrjá
fjórðu hluta atkvæöanna í pakis-
tönsku þingkosningunum í
morgun þótti ljóst að enginn
flokkur næði meirihluta á þingi.
Þátttaka í kosningunum varð
minni en búist var við og var því
um kennt að krafist var nafn-
skírteina við kjörstað.
» í morgun var Þjóðarflokkur-
inn búinn aö fá 70 þingsæti en
helsti andstæðingur flokksins,
Múhameðska lýðræðisbanda-
lagið, var kominn með 34 þing-
sæti. Ýmsir minni flokkar voru
með 50 þingsæti. Til að ná meiri-
hluta þarf 109 þingmenn og er
afar ósennilegt að Bhutto og
Þjóðarflokkurinn nái því.
Bhutto verður aö tryggja sér
stuðning einhverra hinna
smærri flokka ef henni á að ta-
kast að verða fyrsta konan kjör-
AFERÐ
með
Kópai
Dýrótóni
Veldu Kópal
með gljáa vid hæfi.
landi, í Oxford og í Bandaríkjun-
um.
Af fylgismönnum er hún kölluð
„rísandi sól“ en margir andstæð-
ingar flnna Benazír það til foráttu
að hún er kona og telja þar með
að hún sé óhæf til að gegna forsæt-
isráðherraembætti. Fræðimenn
múhameöstrúarmanna segja sum-
ir að Kóraninn banni konu að
gegna álíka embætti og Benazír
sækist eftir en aðrir mæla þeirri
túlkun í mót.
Þegar Benazír kom til Pakistans
til að taka þátt í kosningabarátt-
unni var ekki búist við miklu af
henni. Hún var óreynd í stjóm-
málum og haföi dvalið langdvölum
erlendis eftir að Zia Ul-Haq leysti
hana úr stofufangelsi. Hún gerði
líka mörg mistök í upphafl og
missti fylgismenn yflr til andstæð-
inga sinna, sem nú em flestir sam-
an komnir í Múhameðska lýðræð-
isflokknum.
Benazír tókst að yfirstíga erfið-
ustu hindranirnar þegar Zia Ul-
Haq tilkynnti að efnt yrði til kosn-
inga í Pakistan. Zia ætlaði sjálfur
í framboð og hann var vinsæll í
Pakistan, jafnvel þó að Pakistanar
gleymdu ekki hvernig hann komst
til valda og hvað hann gerði við
fyrsta lýðræðiskjörna forsætisráð-
herra landsins.
Zia þótti líklegur til að halda velli
í kosningum. En hann fórst í flug-
slysi fyrir þrem mánuðum og hefur
aldrei verið fyllilega skýrt hvernig
„Rísandi sól“ er hún kölluð af fylgismönnum. Aðrir segja hana ekki eiga heima í pólitík. þaö slys bar að höndum.
in í forsætisráðherraembætti í
múhameðstrúarríki.
Ellefu ára herstjórn
Kosningarnar í Pakistan í gær
eru þær fyrstu í ellefu ár. Frá árinu
1977 réð herinn lögum og lofum í
Pakistan. Yfirmaður hersins og
forseti landsins, Zia Ul-Haq, lést í
dularfullu flugslysi fyrir þrem
mánuðum. Zia framdi valdarán
1977 og steypti af stóli Zulfikar Ah
Bhutto, fóður Benazírs, sem kosinn
var forsætisráðherra árið 1971. Ah
Bhutto var dæmdur til dauöa og
dómnum fullnægt áriö 1979 þrátt
Pakistanar bíða með óþreyju eftir niðurstöðum kosninganna í gær.
Símamynd Reuter
fyrir kröftug mótmæli vestrænna
ríkja.
í nýlegri bók, sem Benazír gaf út
um lífshlaup sitt, er dregið í efa að
Bhutto, faðir hennar, hafi verið
hengdur, eins og opinberlega er
sagt. Benazír gefur í skyn að faðir
hennar hafi látist vegna misþyrm-
inga.
Menntuð glæsikona
í kosningunum í gær fékk Benaz-
ír Bhutto 97% atvæða í heimabæ
sínum, Larkana. Benazír er glæsi-
leg kona, aðeins hálffertug að aldri,
og þykir hafa erft persónutöfra fóð-
ur síns. Hún er menntuð í Eng-
Við fráfah Zia varð Benazír
Bhutto sterkasti stjómmálamaður-
inn í Pakistan. Andstæðingar
hennar sáu sitt óvænna og gerðu
með sér kosningabandalag, Múha-
meöska lýðræðisflokkinn. And-
stæðingum Bhutto.virðist hafa tek-
ist þaö ætlunarverk sitt að hindra
að Benazír næði meirihluta á þing-
inu.
Engu að síður er Bhutto sigur-
vegari kosninganna í gær. Spurn-
ingin er bara hvort henni tekst að
ná samkomulagi við minni flokk-
anna sem tryggði henni og Þjóðar-
flokknum meirihluta á þingi.
Reuter
Þrir af hverjum fjórum Pakistönum eru ólæsir. Hér virðir kona fyrir sér
leiðbeiningar um hvernig skuli kjósa. Tákn voru notuð til að gera ólæs-
um auðveldara að kjósa.
Símamynd Reuter