Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1988, Side 11
FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1988.
11
Ullönd
Palestínsk börn á vesturbakkanum fagna sjálfstæðisyfirlýsingu Palestínu-
manna. Símamynd Reuter
Rabin ver
hertar aðgerðir
Vamarmálaráðherra ísraels, Yitz-
hak Rahin, varði í gær síðustu að-
gerðir ísraelsmanna á herteknu
svæðunum og spáði því að þeim tæk-
ist að bæla niður uppreisn Palestínu-
manna innan hálfs árs. Arabar á
vesturbakkanum og Gazasvæðinu
segja að sjálfstæðisyfirlýsing Palest-
ínumanna hafi stappað í þá stáli til
þess að halda uppreisninni áfram.
Útgöngubannið, sem sett var á til
að koma í veg fyrir fagnaðarlæti í
kjölfar sjálfstæðisyfirlýsingarinnar,
ríkti enn í gær á Gazasvæðinu og í
Nablus og fleiri borgum á vestur-
bakkanum. Hermenn gerðu víða
skyndiárásir og handtóku að
minnsta kosti hundrað Palestinu-
menn á vesturbakkanum. Palest-
ínskir heimildarmenn segja að her-
menn hafi skotið á og sært fjóra
araba á Gazasvæðinu. Herinn stað-
festi aðeins eitt tilfellanna. Einnig
eru hermenn sagðir hafa skotið á og
sært unghng á vesturbakkanum.
Aðrar heimildir segja að unghngm-
hafi verið skotinn til bana.
í breska blaðinu The Times frá því
í morgun er haft eftir talsmanni Pal-
estínska þjóðarráðsins að hið ný-
stofnaða ríki Palestínumanna myndi
sækja um þátttöku í ólympíuleikun-
um í Barcelona árið 1992. Búist er
við að Palestínumenn mæti andstöðu
þegar höfð eru í huga morð palest-
ínskra skæruhða á ellefu ísraelskum
íþróttamönnum á ólympíuleikunum
í Miinchen árið 1972.
Reuter
Seðlabankastjóri
hvetur til aðgerða
Steimom Böðvaradótlir, DV, Washington;
Seðlabankastjóri Bandaríkj-
anna, Alan Greenspan, hvatti í gær
tilvonandi ríkisstjórn George Bush
til að koma með raunhæfar aögerð-
ir í efnahagsmálum til að reyna að
lækka hinn gífurlega fjárlagahalla
ríkissjóðs. Á fundi ráðgjafanefndar
ura efnahagsmál í gær, sagði Gre-
enspan aö raestu máh skipti aö fjár-
lagahalhnn yrði réttur við, sama
hvemig farið yrði að því.
Margir tóku ummæh Greenspans
sem gagnrýni á fyrirhugaðar efna-
hagsaögerðir Bush í næstu ríkis-
sljóm. Hinn nýkjömi forseti hefur
margítrekað að hann muni ekki
grípa til skattahækkana til að rétta
við fjárlagahallann þrátt fyrir að
margir hagfræðingar telji aukna
skattheimtu óumflýjanlega. Þess í
stað leggur Bush til sveigjanlegan
þrýsting á útgjöld ríkisins sem
muni halda þeim við veröbólgu-
markið og leiða til jákvæðrar
þenslu í efnahagslifinu og aukinna
tekna ríkissjóðs.
Greenspan sagði að fjárlagahall-
inn væri aö grafa undan efhahags-
styrk Bandaríkjanna. Hann kvað
niðurskurð í ríkisútgjöldum ákjós-
anlegri leið til að leysa vandann en
að hækka skatta en sagöi jafnframt
að í raun væri aöferðin ekki aðalat-
riöið.
Ummæli seðlabankastjórans
koma á sama tíma og frekari vis-
bendingar um efnahagsörðugleika
koma fram á sjónarsviðið. Þrátt
fyrir að viöskiptahalli Bandaríkj-
anna hafi minnkað um 15 prósent
í september tefja hagfræðingar að
um frekari lækkun verði ekki að
ræða á næstunni. Viöskiptgjöfnuð-
ur Bandaríkjanna var óhagstæður
um 9 milljarða dohara í september-
mánuði miðað við 10,6 mihjarða í
ágúst. En hagfræðingar kveða inn-
flutning of mikinn til aö vekja
bjartsýni á framtiðina.
Verðbréf og dollar héldu áfram
að lækka í verði á verðbréfamörk-
uöum í gær þrátt fyrir fréttirnar
um lækkun viðskiptahahans. Á
fjármálamörkuðum i New York
lækkaði Dow Jones verðbréfavísi-
talan um rúm 38 stig og gengi doll-
ars gagnvart japönsku yeni var hið
lægsta síöan í byrjun þessa árs.
Stór númer
boulique
im.imairida
Kjörgarói.
LUHTA hágæðafatnaður
frá
Finnlandi
fyrir aila
fjölskylduna
Sendum í póstkröfu
Ármúla 40, Reykjavik, sími 83555
Eiöistorgi 11, Seltj., 2. hæð, simi 611055
520STFWI
3REIÐSLUVERÐ
39.900,-