Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1988, Page 40
t
FRETTASKOTIB
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið ( hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ftitstjjórn - Auglýsingar - Áskríft - Dreifing: Simi 27022
FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1988.
Ólympíumótiö:
Stórsigur
á Grikkjum
íslenska skáklandsliðið vann stór-
an og öruggan sigur á Grikkjum í
gær 3,5-0,5 og er nú í 2. sæti með
12,5 vinninga á ólympíumótinu. Jó-
hann sigraði stórmeistarann Kotrón-
ias örugglega. Þá vann Jón L. Skem-
bris í 32 leikjum og hefur Jón teflt
geysivel það sem af er mótinu. Mar-
geir gerði jafntefli við Grivas en
Helgi vann Gavrilakis á 4. borði.
Frí verður í dag en að sögn Þráins
Guðmundssonar, formanns Skák-
sambandsins, er tabð öruggt að við
mætum Sovétmönnum í 5. umferð.
íslenska sveitin mun því liggja í tölv-
unum i dag enda veitir ekki af gegn
hinni geysisterku sovésku sveit. Ka-
sparov teflir þar á fyrsta borði og
íifeefur sýnt mikið öryggi og unnið all-
ar sínar skákir.
Sovétmenn eru efstir með 13,5
vinninga en íslendingar og Búlgarir
eru með 12,5 vinninga. Ungverjar og
Hollendingar eru með 12 vinninga.
Danir unnu Bandaríkjamenn óvænt
3-1 og eru í 6. sæti með 11,5 vinn-
inga. Þá má geta þess að Englending-
um gengur ekki sem best og gerðu
þeir aðeins jafntefli við Frakka í gær.
-SMJ
— Þrjú gang-
brautarslys á
tveimur dögum
Ekið var á gangandi mann á
merktri gangbraut á Tryggvagötu í
gærkvöldi. Þegar lögregla kom á
staðinn virtist maðurinn við litla
meðvitund og kvartaði um eymsl í
mjöðm. Var hann fluttur á slysa-
deild. Þetta var þriðja umferðarslys-
ið á tveim dögum þar sem ekið er á
gangandi vegfaranda á merktri gang-
braut. Fyrsta gangbrautarslysið varð
á þriðjudag, á gangbrautinni við mót
Tryggvagötu og Pósthússtrætis. Þar
- '•slapp maður með minni háttar
meiðsl. Á hádegi í gær var síðan ekið
á eldri mann þar sem hann var á
leið yfir Hverfisgötu við íngólfs-
stræti. Var hann einnig fluttur á
slysadeild en meiðsl ekki talin mjög
alvarleg. Að sögn lögreglu eru menn
uggandi yfir þessum gangbrautar-
slysum og óttast að ökumenn líti
ekki í kringum sig. -hlh
Bílstjórarnir
aðstoða
25050
SZJlDIBíUISTÖÐin
LOKI
Það er að sjá frost-
skemmdir á efna-
hagslífinu!
Samvinna fiskmarkaðanna:
Ovissuþættirmr
enn of margir
„Þetta var gagnlegur fundur.
Óvissuþættimir eru samt svo
margir ennþá að það er eiginlega
ekki hægt að taka neinar ákvarð-
anir um samstarf eða samvinnu
þessara þriggja fiskmarkaða,"
sagði Logi Þormóðsson, stjómar-
formaður Fiskmarkaðs Suður-
nesja, í samtali við DV. Eins og
skýrt var frá í DV í gær, hittust
forsvarsmenn fiskmarkaðanna í
gærmorgun til að ræða samvinnu
og samtengingu með aukna hag-
ræðingu í huga.
Logi sagði að mest væri óvissan
um hvort kvótakerfi yrði áfram á
ferskfisksölunni. Það þyrfti að
liggja fyrir áður en hægt væri að
taka ákvarðanir, Varðandi tölvu-
samtengingu markaðanna sagði
Logi að hún vær mjög dýr. Það
væri spurning hvort markaðurinn
hér á suðvesturhorninu væri nógu
stór til að ráðast í svo dýrt fyrir-
tæki. Menn eru þó sammála um að
líta á allt svæðið frá Akranesi að
Þorlákshöfn sem eitt markaðs-
svæði.
„Það eru allir sammála um aö
reyna að gera þetta alit á sera hag-
kværaastan hátt. Það er spurning
hvort aðeins einn fiskmarkaður
eigi að vera á svæðinu ellegar hvort
þeir eigi að vera þrír. Ef um tölvu-
tengingu yrði að ræða, yrði að
koma fyrir útstöðvum í ölium
plássunum, þannig að allir sætu
við sama borð þegar boðið er upp,“
sagði Logi.
Hann sagði að menn myndu hitt-
ast áfram og ræða málin.
-S.dór
Jólasveinarnir fara senn að skjóta upp kollinum hver af öðrum, í búðargluggum og annars staðar á aimannafæri.
í Blómavali verður þeim gert hátt undir höfði, að venju, þvi að þar fá þessir bestu vinir barnanna sitt eigið Jóla-
sveinaland með öllu tilheyrandi. Gunnar Bjarnason skreytingamaður var í óðaönn að leggja síðustu hönd á verk-
ið þegar Ijósmyndara DV bar þar að garði. DV-mynd GVA
Keflavlkurtogaramlr:
„Það hressir Bragakaffið“
„Menn komu saman og röbbuðu og
fengu sér kaffisopa og komust að
þeirri niðurstöðu að „það hressir
Bragakaffð," sagði Logi Þormóðs-
son, stjómarmaður í Eldey hf„ um
fund Sambandsins og Eldeyjar-
manna um Keflavíkurtogarana í
gærkvöldi.
Þar sem 9 mánaða uppgjör Hrað-
frystihúss Keflavíkur liggur ekki fyr-
ir fyrr en á miðvikudag í næstu viku,
var engar ákvarðanir hægt að taka.
Samt var ákveðið að halda viðræðum
áfram, en næsti fundur hefur ekki
verið ákveðinn. -S.dór
Veðrið á morgun:
Hægviðri
og frost
Á morgun verður hægviðri um
mestallt landið og víða talsvert
frost, einkum inn til landsins. Smá-
él við norðausturströndina og lík-
lega einnig á annesjum vestan-
lands en annars nokkuð bjart veð-
ur víðast hvar. Hitinn verður -3-8
stig.
Leyft að hefja
framkvæmdir
Fyrirhuguð brú yfir Miklubraut
var til umfiöllunar í byggingarnefnd
í gær. Eins og fram hefur komið í
DV áttu framkvæmdir við brúna að
hefiast þann 15. nóvember sl. Þeim
varð að fresta þar sem ekki lá fyrir
leyfi frá byggingarnefnd.
Á fundinum í gær klofnaði nefndin
í afstöðu sinni til framkvæmdanna.
Var samþykkt með 3 atkvæðum
meirihlutans að leyft skyldi að hefia
byijunarframkvæmdir við brúna.
Einnig að útfærsla á brúarhandriði
yrði endurskoðuð. Fulltrúar Al-
þýðubandalags og Alþýðuflokks sátu
hjá við, atkvæðagreiðsluna. Þeir
gerðu hins vegar sérstaka bókun
vegna málsins. Þar segir að þeir
hefðu einnig viljað að endanleg
hönnun gönguleiða og lýsing á upp-
græðslu svæðisins í næstá umhverfi
hefði legið fyrir á fundinum. Þeir
geti ekki fallist á að byrjunarfram-
kvæmdir verði leyfðar.á þessu stigi
málsins, þar sem þeir hefðu talið
nauðsynlegt að fram hefði farið ná-
grannakynning áður en lengra yrði
haldiö. -JSS
Tap upp á
2 milljarða
Á skyndifundi Samtaka fisk-
vinnslustöðva í gær var lögð fram
rekstraráætlun fiskvinnslunnar.
Samkvæmt henni er fiskvinnslan nú
rekin með um 2,9 til 4,2 prósent tapi.
Á bak við þessa útreikninga liggur
hærra mat á vöxtum af afurðalánum
og hærri krafa um ávöxtun stofnfiár
en Þjóðhagsstofnun beitir í sínum
útreikningum. Tapið er því meira en
stofnunin fengi út.
Samkvæmt útreikningum Sigurð-
ar Stefánsson endurskoðanda á
reikningum tíu fiskvinnslufyrir-
tækja, sem hann lagði fram á skyndi-
fundi Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna, kom hins vegar fram að þessi
frystihús hafa verið rekin að meðal-
tali með um 7,3 prósent halla á fyrstu
níu mánuðum ársins.
Sé miðað við útreikninga Samtaka
fiskvinnslustöðva mun frystingin
tapa um 1,2 milljörðum á þessu ári.
Samkvæmt útreikningum Sigurðar
tapa fyrirtækin hins vegar 2 milljörð-
um.
í hvorugu dæminu er gert ráð fyrir
minnkandi aflakvóta á næsta ári og
má því búast við útreikningum með
verriútkomufyrirnæstaár. -gse
Svalbarðseyrarmáliö:
Iðnaðarbankinn
er tilbúinn
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii:
Iðnaðarbankinn er tilbúinn að taka
þátt í því að leysa vandamál bænd-
anna sem gengu í ábyrgðir fyrir
Kaupfélag Svalbarðseyrar. Þetta
kom fram á fundi fulltrúa bændanna
með Iðnaðarbankamönnum í gær.
Þó mun óljóst með framvindu
málsins og bændurnir hafa hvorki
tekið né hafnað því tilboði sem Sam-
bandið lagði fram í fyrradag. Bænd-
urnir vilja skoða betur hvort ein-
hverjar af kröfunum á þá séu fyrnd-
ar.
Tveir í gæslu
Tveir aðilar hafa verið úrskurðaðir
í gæsluvarðhald vegna fíkniefna.
Fíknefnalögreglan varðist allra nán-
ari frétta af málinu vegna rannsókn-
ar þess. -hlh