Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1988, Blaðsíða 10
10
MNÍJDAGUR 12. DESEMBER 1988.
Utlönd
Egyptinn Naquib Mahfouz, sem hlaut bókmenntaverólaun Nóbels í ár, sat heima í Kaíró og fylgdist meö verðlauna-
afhendingunni. Símamynd Reuter
skcmmtilcga atburði frá æskuárunum í Ölfusi
• fjölda samferðamanna * læknamiðla
• hinar „alræmdu“ poppmessur • hestamennsku
• sálarrannsóknir • brottrekstur frá útvarpi og sjónvarpi
Nýja Bókaútgáfan
Jónína Leósdóttir
Guð
almáttugur
hjálpi þér
Endurminningar
séra Sigurðar Hauks
onssonar
Séra Sigurður Haukur hefur löngum verið umdeildur, enda þekktur fyrir að
segja skoðun sína afdráttarlaust. I þessari hispurslausu bók fjallar hann m.a.
um:
Mahfouz
komst ekki
Björg Eva Erlendsdóttir, DV, Osló:
Nóbelsverðlaunaafhendingin í
Stokkhólmi á laugardaginn vakti
meiri athygli víða um heim en
nokkru sinni fyrr. Ástæðan til þess
voru fyrst og fremst bókmenntaverð-
laun Egyptans Naquib Mahfouz.
Mikill íjöldi blaðamanna frá araba-
þjóðum fylgdi dætrum Mahfouz sem
tóku við verðlaununum fyrir hönd
föður síns. Þetta er í fyrsta skipti í
áttatíu ár sem manni af arabaþjóð
eru veitt nóbelsverðlaun. Mahfouz
komst ekki sjálfur vegna veikinda
en fylgdist með athöfninni að heim-
an, frá Nílargötu 172 í Kaíró.
Verðlaunahafarnir voru einnig
mun fleiri en venjan er. Ellefu tóku
á móti á verðlaununum í Stokkhólmi
auk friðargæslusveita Sameinuðu
þjóðanna sem tóku við friðarverð-
laununum í Osló.
Verðlaunahafarnir voru á aldrin-
um 40 til 83 ára, flestir gamlir í árum
talið en ótrúlega unglegir. Allir eru
þeir í fullu starfi ennþá þó að margir
ættu aö vera hættir að vinna fyrir
löngu.
Ein kona var í hópnum, amerísk,
Gerd Elion, sem ásamt félaga sínum,
George Hitzings, 83 ára að aldri, hef-
ur fundið upp lyf gegn ýmsum sjúk-
dómum. Þau hafa unnið saman í 45
ár og hafa enn stór framtíðaráform.
Rannsóknir þeirra hafa leitt til þess
að upp vap fundið eina lyfið sem til
þessa hefur haft nokkur áhrif á sjúk-
dóminn eyðni. Sá þriðji sem hlaut
meðalaverðlaunin var Skotinn Ja-
mes Black sem á heiðurinn af hjarta-
og blóðþrýstingsmeðulum sem millj-
ónir manna um allan heim þurfa að
nota.
Allir ellefu verðlaunahafarnir virt-
ust una hag sínum hið besta í hópi
konunglegra og annars sænsk hefð-
arfólks og þegar líða tók á veisluhöld-
in um kvöldið hélt einn þeirra meira
að segja þakkarræðu á sænsku.
Allsherjarverkfall
boðað á Spáni
Pétur L. Pétuisson, DV, Barcelona:
Svo virðist sem ekkert fái afstýrt
allsherjarverkfalli hér á Spáni á mið-
vikudaginn kemur. Stærstu verka-
lýðsfélög landsins hafa nú óll lýst
yfir stuðningi við verkfallið og óbrú-
anleg hyldýpisgjá hefur opnast milli
ríkisstjórnar sósíaldemókrata og
verkalýösarms flokksins.
í stað þess að leita leiöa til að af-
stýra verkfallinu hafa ríkisstjórn og
verkalýðsforysta háð blóðuga fjöl-
miðlastyrjöld. Yfirlýsingar deiluað-
ila hafa magnast með degi hverjum
og eru engar líkur til þess aö stór
orð, sem fallið hafa, veröi aftur tekin.
Verkalýðsforystan hefur lýst því
yfir að megintilgangur verkfallsins
sé að mótmæla efnahagsstefnu
stjórnarinnar. Félögin benda á þá
staðreynd að hagvöxtur hér í landi
sé meiri en í nokkru öðru Evrópuríki
og að fyrirtæki og bankar hafi aldrei
fyrr lifað annað eins góðæri. Á sama
tíma sé ríkisstjórnin ekkert nema
harðneskjan í samningagerð og hafi
þar að auki misst tökin á veröbólg-
unni. Hagfræðingar verkalýðsfélag-
anna halda því fram að gróði fyrir-
tækja sé verðbólguhvetjandi meðan
ríkisstjórn og samtök vinnuveitenda
vara við afleiðingum launahækkana.
Sósíalistaflokkurinn telur verk-
fallsboðunina hins vegar fáránlega
og ekkert nema vatn á myllu kölska.
Hún sé til þess eins að koma stjórn-
inni frá völdum og komi því engum
vel nema hægrimönnum. Hægri
flokkarnir hugsa það sama því þeir
styðja verkfallið heils hugar og meira
að segja hinir alræmdu þjóðvarðliðar
hafa boðað til verkfalls. Það er því
engin þjóðarsátt í sjónmáli hér á
Spáni.
Sósíaldemókrötum
spáð meirihluta
Pétur L. Pétursson, DV, Barcelona:
Sósíaldemókratar myndu ná aftur
meirihluta á þingi ef kosið væri nú.
Þetta eru niðurstööur skoðanakann-
ana sem birst hafa hér á Spáni um
helgina. Svo gæti farið að stjórnin
leysti upp þing og boðaði til kosninga
eftir allsherjarverkfallið á miðviku-
daginn kemur.
Kannanirnar leiða í ljós að flokkur
sósíalista heldur sínu ef gengið væri
til kosninga. Þær sýna hins vegar
megna óánægju fólks með ráðherra
núverandi ríkisstjórnar og að aðeins
einn þeirra hefur hrifið kjósendur
flokksins. Það er utanríkisráðherr-
ann, Francisco Fernández Ordonez.
Það er því stjórnun á innanríkis-
málum í tíð núverandi ríkisstjórnar
sem fer fyrir brjóstið á kjósendum
flokksins. Þessi skoöun endurspegl-
ast í því að óvinsælustu ráðherrarnir
eru innanríkisráðherrann Carlos
Solchaga og atvinnumálaráöherrann
Manuel Chaves.
Þessar niðurstöður hafa verið túlk-
aðar stjórninni mjög í óhag. Bent er
á að svo virðist sem meginmarkmið
stjórnarinnar séu fólki lítt að skapi
og að kjósendur haldi sig við flokkinn
því ekki sé um annan valkost að
ræða. Þó sýna kannanir að hægri
flokkar sækja heldur í sig veðrið
meðan fylgi miðjuflokka minnkar
heldur.
Þessar niðurstöður renna stoöum
undir þær grunsemdir manna að rík-
isstjórn Felipe González muni leysa
upp þing og boða til kosninga áður
en vikan er á enda. Málið sé aö hafa
kosningar meðan fylgi sé til staðar
en kjörtímabilið er nú meira en
hálfnað. Verði boðaö til kosninga nú
má telja næsta fullvíst að sósíal-
demókratar verði hér við völd til
1992.