Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1988, Blaðsíða 6
6
MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 1988.
Fréttir_____________________________________________________
Svört skýrsla um viðhald íslenskra húsa:
Kostnaður getur orðið
17 milljarðar á ári
Kostnaður við viðhald á íslenskum
húsum getur náð allt að 17 milljörð-
um á ári áður en langt um líður og
því er spáð að hann fari stöðugt vax-
andi. Þetta er mun meira en eðlilegt’
getur talist og eru orsakirnar raktar
til mistaka við hönnun og byggingu
og til lélegra byggingarefna.
Þetta kemur fram i könnun sem
birt er í nýjasta tölublaöi tímaritsins
Arkitektúr og skipulag. Þar er því
spáð að kostnaður við viðhald á ís-
lensku húsnæði geti á næstu árum
numið 12 til 17 milljörðum króna. Þar
kemur einnig fram að viðhaldskostn-
aður hér er um fjórðungi meiri en
eðlilegt er talið í nágrannalöndun-
um.
Þessum fjárhæðum er ekki varið
til viðhalds á húsnæði nú enda mik-
ill hluti húsnæðis hér nýlegur. Um
80% húsa hafa verið byggð á síöustu
30 árum. Viðhald nýjustu húsanna
stefnir þó í að verða verulega meira
en eðlilegt getur talist vegna hönn-
unargalla, hroðvirkni við byggingar
og lélegra efna.
Alvarlegasti hönnunargallinn er
talinn við þök húsanna. Flötu þökin
hafa reynst óhæf við íslenskar aö-
stæður en þök með bárujárni vilja
einnig leka vegna lélegs frágangs. Þá
hefur einnig komið í ljós að hús frá
árunum 1965 til 1980 þurfa mikið við-
hald vegna alkalískemmda í steypu.
-GK
Ögmundur Jónasson, formaóur BSRB, og Ásmundur Stefánsson, forseti
ASÍ, á fundinum í Háskólabíói. Með þeim situr Lára Júlíusdóttir.
DV-mynd Brynjar Gauti
Kæra ASÍ til Alþjóða vmnumálastofnunarinnar:
Ríkisstjórnin
tefur málið vegna
bráðabirgðalaganna
- segir Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ
„Ríkisstjórnin er vísvitandi að
hindra að niðurstaða fáist í málið
fyrir afgreiðslu bráðabirgðalaganna
frá því í haust,“ sagði Ásmundur
Stefánsson, forseti ASÍ, um þá
ákvörðun ríkisstjórnarinnar að
senda ekki gögn til Alþjóða vinnu-
málastofnunarinnar vegna kæru ASÍ
um brot á samningsrétti.
„Það hefði skipt verulegu máli fyr-
ir afgreiðslu bráðabirgðalaganna á
þingi ef niðurstaða hefði fengist í
haust,“ sagði Ásmundur. „Nú er ljóst
að niöurstaða fæst ekki fyrr en nokk-
uð veröur liðiö á næsta ár. Þaö er
reynslan að ríkisstjórnir, sem hafa
óhreint mjöl í pokanum, reyna eftir
megni að draga aö senda gogn sem
þeim ber að senda stofnuninni þegar
kærur berast.“
Umrædd gögn verða send út nú i
vikunni og kæra ASÍ verður ekki
tekin fyrir hjá Vinnumálastofnun-
inni fyrr en á næsta fundi sem verð-
ur um mánaðamótin febrúar mars.
„Samningsrétturinn er mannrétt-
indi og við vorum að undirstrika það
með fundinum í Háskólabíói um
helgina að samningsréttinn ber að
virða. Hann er ekki bara einhver flík
sem notuð er í útlöndum,“ sagði Ás-
mundur.-GK
Viðræður hafnar um samvinnu flugfélaganna:
Viðhald flug-
flotans sameinað?
Viðræður eru hafnar milli Flug-
leiða og Arnarflugs um samvinnu
í rekstri félaganna. Fyrsti fundur-
inn var haldinn á laugardag og
búist er við framhaldi á viðræðun-
um.
„Viö ræddum ýmsa möguleika á
samvinnu til að halda niðri rekstr-
arkostnaði,“ sagði Kristinn Sig-
tryggsson, framkvæmdastjóri Arn-
arflugs, í samtali við DV. Kristinn
sagði að einkum hefði verið rætt
um samvinnu við viðhald á flugvél-
um.
„Hugmyndin er fyrst og fremst
sú að ná fram betri nýtingu með
betra vinnuskipulagi og hagræð-
ingu,“ sagði Kristinn. Hann sagði
að enn hefði ekkert verið rætt um
möguleika á að fækka fólki við viö-
haldið enda viðræðumar á frum-
stigi.
„Við fórum vitt og breitt yfir
möguleika á samvinnu sem hægt
væri að koma í kring án þess að
það kæmi niöur á samkeppni félag-
anna,“ sagöi Kristinn Sigtryggs-
son.-GK
Árekstrar
í hálkunni
Nokkuð var um árekstra um há-
degisbil á laugardag. Þá gerði tölu-
verða hálku í Reykjavík. Um tíma
var hálfgert öngþveiti í Ártúns-
brekku vegna árekstra. Þá valt bif-
reið á mótum Höfðabakka og Stór-
höföa. Ekki urðu alvarleg slys á fólki
en eignatjón varð talsvert.
Á föstudagskvöld og aðfaranótt
laugardags var mikið annríki hjá lög-
reglunni. Tilkynningar um innbrot,
árás, brotnar rúöur og fleira bárust
til lögreglu. Öllu minna var að gera
á laugardagskvöld og aðfaranótt.
sunnudags.
-sme
Töluvert var um umferðaróhöpp í Reykjavík á laugardag. Um tíma var
hálfgert öngþveiti í Ártúnsbrekku. Ekki urðu alvarleg slys á fólki.
DV-mynd S
Eldw í Mjódd
Eldur varð laus í kjallara hússins
númer þrjú við Þarabakka á laugar-
dagskvöld. Töluverður reykur var
af eldinum og barst hann upp stiga-
gang hússins. Fólk, sem var statt á
knattborðsstofu á þriðju hæð húss-
ins, var beöið um að halda kyrru
fyrir - þar sem stigagangurinn var
ófær sökum reyks. Gerðar voru ráö-
stafanir til aö hægt yrði að flytja fólk-
ið úr húsinu með körfubíl - en til
þess kom ekki.
Reykkafarar fóru í kjallara hússins
og slökktu eldinn. Hann var i lausu
dóti sem haft var þar til geymslu.
Reykskemmdir urðu á stigagangi og
einnig í fyrirtækjum sem í húsinu
eru. -sme
Unnið að slökkvistarfi á Þarabakka þrjú. Skemmdir urðu á húsinu vegna
mikils reyks sem lagði frá eldinum. DV-mynd S
Sandkom i>v
Þrálr heimska
Ijósku...
Margir
,.snillingar“ ■
hafaruðstiram
ásviðiðoggefið
úthljómplötur
fyrirjóhn.
Ohætterað
segjaaðþar
kenni margra
ogmísgóðra
grasaogsem
fyrr eru það textarnir sem vekjaekki
minnsta athygli Einn þeirra syngur
ungur maður, sem kallar sig Geira
Sæm, og er óhætt að segja að hjá
honum fari saman furðulegur söngur
og enn furðulegri textagerð. Eitt lag-
anna á plötu hans hefúr orðið öðrum
vinsælla, enda texti þess ömurlegri
enaðrir.Hverskilurþettat.d.: „Hana
langar í sanseraðan sportbíl og hann
verður fús, þráir heimska lj ósku í
sportbílogvoðastórthúúúúús..
Þannig hlj ómar þetta en að visu er
þetta sungið á þann hátt að engu er
líkara en að banani sé fastur í hálsin-
um á söngvaranum þannig að von-
andi er textinn ekki alveg svona þótt
vandleg hlustun gefi það til kynna.
Blessuð sé minn-
ing hans
Kambháfur-
inn,semkomí
vörputogarans:
Guðbjarparfrá
ísafirði í síð-
ustuviku.erán
efafrægasti
kambháfur
ailratimaogí
hverjum frétta-
tíma Ríkisút-
varpsins af öðrum voru landsmönn-
um fluttar fregnir af líðan hans. Engu
var líkaraen þjóðhöfðingi lægi bana-
leguna svo mikiö var haft við. Kamb-
háfurinn þjáðist hins vegar af „kaf-
araveiki" eftir mikla flutninga af
miðunum til ísafiarðar og þaðan til
Vestmannaeyja þar sem hann andað-
ist á fimmtudag. Ekki er vitað hvort
flaggað var í hálfa stöng í Eyjum
vegna þessa. Hins vegar má telja víst
aö andrúmsloftið á fréttastofú Ríkis-
útvarpsins hafi verið þrungið sorg
ogerþaöaðvonum.
Nýtttímatal
ÍDegiáAk-
ureyrivarsagt
fráþviaðþing-
menn Rovkja- ::
ness hefóu :
..kippt í polii-
ískanspoita"
ogþannigkom-
ið ■ vegfyrirað
fyrirtækiáAk-
ureyrifengi
vinnu rið uppsetningu tækja í stöðv-
arhúsi Nesjavallavirkjunar. Þessí
stað var verkið fengið fyrirtæki í
Njarövlk. Um umfang verksins sagði
Dagur að það væri áætlað yfir 20
þúsund „manntímar“. Höfundur
fréttarinnar hefur greinilega fúndið
hér upp nýtt timatal ogkemst vænt-
anlega á spjöld sögunnar fyrir.
Flugeldastríð
„Flugelda-
stríð”eríaösigi:
áAkureyriog
reyndar iteí'ur
hevrst aðslikt
stríðmuni
geisavíðaðum
landiöfyrir
áramótin.
Ástæðáþesser
súaðýmisfélög
hyggjast nú standa að flugeldasölu
en víðast hvar um landið hafa skátar
setið einir að þessari sölu og grætt
vel. Þeir sjánú fram á að missa spón
úr aski sínum og gera það án efa því
t.d. á Akureyri ætla bæði KA og Þór
að standa að slíkri sölu. Skátamir eru
daprir og segja að sér vegið en
íþróttafélögin segja hins vegar að
skátarnir hafi fariö inn á þeirra fjár-
öflunarleiðir með skafmiðahapp-
drætti sitt sem geri þaö að verkum
að hefðbundið happdrætti, sem oft
hefur reynst góð tekjulind, sé úr sög-
unni. MÚdll hiti er í mönnum vegna
þessa máls og skátamir sem hafa
unnið í óteljandi „manntíma" að
þessari sölu með góðum árangri und-
anfarin ár hugsa íþróttafélögunum
þegjandi þörfma.
Umsjón: Gylli Kristjánsson