Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1989, Page 4
4
LAUGARÐAGUR ll.-MARS 1989,
Fréttir
Sænsk hjón í vetursetu um borö í skútu sinni í Reykjavíkurhöfh:
„Njótum þess að
hafa gert draum
að veruleika“
- skútan Hluster draumaíbúö fyrir tvo
Gunnar Syren um borö i seglskútu sinni í Reykjavikurhöfn. Draumur hans er orðinn aö veruleika en veturinn var
aö hans sögn líkastur martröð. DV-myndir Brynjar Gauti
„Tilfinningar okkar eftir veturset-
una hér í höfninni eru blandnar.
Okkur gnmaði reyndar hvað biði
okkar af veðri og vindum en þessi
vetur hefur verið með eindæmum
þungur og leiðinlegur. Það hefur gert
dvölina enn leiðinlegri en ella að við
skulum ekki hafa getað verið meira
úti við. Veturinn viröist heldur ekki
fara of vel í heimamenn sjálfa," sagöi
Sviinn Gunnar Syren sem hafst hef-
ur við um borð í seglskútunni Illust-
er í Reykjavíkurhöfn í vetur, ásamt
konu sinni Gun. Frá því í september
hafa þau legið utan á Sæbjörgu, skipi
Slysavamafélagsins, við Norðurgarð
hafnarinnar.
Gunnar er auglýsingateiknari og
hefur sinnt ýmsum smáverkefnimi í
vetur og dyttað að skútunni. Gun
hefur unnið sem hjúkrunarfræðing-
ur á Vífilstaðaspítala og þannig dreg-
ið björg í bú. í svartasta skammdeg-
inu kom dóttir þeirra í heimsókn og
hélt jól með pabba og mömmu. Það
var sólargeisli sem ekki virtist van-
þörf á í myrkrinu við höfnina. En af
hveiju veturseta í Reykjavík?
I fullkomnu lagi
„Við vorum á nýrri skútu sem var
fullsmíðuð í fyrasumar, eftir rúm-
lega tveggja ára smíði, og urðum að
láta reyna á fleyið. Til þess þýðir
ekKert að sigla meðfram strönd Sví-
þjóðar. Eftir sjósetningu sigldum við
því til Shetlandseyja og þaðan til
Vestmannaeyja. Síðan komum við
hingað. Þetta er jómfrúarferð skút-
unnar og til þess ætluö aö finna ann-
marka hennar. Viö höfum komist að
þvi að stýrisútbúnaðurinn er ekki
nægilega góður og þurfum að lag-
færa hann. Skútan verður að vera
100 prósent í lagi áður en við leggjum
í stórsiglingu. Það var komiö haust
þegar við komrnn hingaö og veður
misjöfn. Afréðum við því að dvelja
hér í vetur.“
Heimsreisa
Gunnar rak auglýsingastofu í Sví-
þjóð en hætti rekstri hennar þegar
skútan var tilbúin. Segist hann hafa
selt stofima meðan hún gekk sem
best og sér ekki eftir þvi. Gunnar
segist hafa siglt á hveiju sumri síð-
asthðin 20 ár, alltaf á eigin skútum.
Hefur stefnan verið aö fara í eina
langa siglingu á hveiju sumri. Fyrir
tveimur árum var siglt til Svalbarða
og norður fyrir áttundu breiddar-
gráðu. 1985 höfðu þau viðkomu hér
í Reykjavík og lágu þá á nákvæmlega
sama stað og nú, við Norðurgaröinn.
Framundan er þriggja og hálfs árs
sighng um heiminn. Héðan er ferö-
inni heitið til Shetlandseyja, írlands,
Spánar og Kanaríeyja. Þá mun leiðin
hggja til Vestur-Indía, í gegn um Pan-
ama, yfir Kyrrahafið og til Nýja Sjá-
lands. Þar ætla þau að dvelja ein-
hvem tíma og sigla síðan áfram sem
leið hggur heim til Svíþjóðar.
Auglýsingastofan seld
„Að hætta að vinna og leggjast í
siglingar er eins og draumur sem
flestir halda að eigi ekki eftir að ræt-
ast. Við erum vön sighngum og því
er þetta mjög sjálfsagt fyrir okkur.
Auk þess er dóttir okkar vaxin úr
grasi og farin aö búa sjálf. Þvi var
ekkert tíltökumál að selja auglýs-
ingastofuna. Nú tilheyra langir og
strangir vinnudagar fortíðinni. Að
sigla getur reyndar verið mjög erfitt,
en á aht annan hátt. Nú nýtur maðúr
þess að hafa gert þennan draum að
veruleika. Maður er orðinn 48 ára
gamah og því um að gera að drífa sig
áður en maður verður of latur.“
íbúö fyrirtvo
Skútan Dluster, sem merkir eitt-
hvaö í þá átt aö vera í frómum félags-
skap, er skírð í höfuðið á sænskum
verðlaunahesti, þeim eina er hefur
unnið th meiriháttar verðlauna á
stórmóti. Dluster er hin vandaðasta
í aha staði og smíðuð sérstaklega
með tvær mannesKjur í huga. Hún
er 46 feta löng og 20 tonn að þynd.
Skútur af þessari stærð eru að sögn
Gunnars oftast byggðar fyrir aht að
10 manns, en þá er plássið ekki mik-
ið.
Aht pláss um borð í Dluster er mjög
haganlega nýtt. Frammi undir stefni
er smákytra þar sem Gunnar hefur
verkfæri og fleira th viðgeröa. Þá
kemur borðstofan eða setustofan og
þar inn af vel rúmt eldhús, með
vaski, hellum og ofni. „Við vhjum
gjarnan hafa gott pláss th að hnoöa
llluster liggur utan á Sæbjörgu, skipi Slysavarnarfélagsins, viö Norðurgarð-
inn í Reykjavíkurhöfn.
Skútan llluster er mjög haganlega skipulögð. „Reynslan hefur kennt manni að maður þrifst mikið betur þegar vel
fer um mann. Siglingar eru oft mjög erfiðar," segir Gunnar Syren, fyrrverandi auglýsingateiknari, þar sem hann situr
í setustofunni.
brauðið okkar." Maturinn er geymd-
ur í kjölnum, undir gólfþhjunum.
Gégnt eldhúsinu, stjórnborðsmegin,
er olíuofn sem auk þess aö hita vist-
arverumar hitar vatn. Þá er bað og
salemi þar aftan við. Við lúguna upp
á dekk er ofurlíthl borðkrókur fyrir
kort og siglingatæki. Þá er einnig lít-
ið hólf fyrir tvær kojur og aftur í
stefni er loks hjónarúm í fullri stærð
og skrifstofukrókur þar sem Gunnar
hefur Macintoshtölvuna sína. Allir
innviðir em sérsmíðaðir eftir mihi-
metramáU. Rafmagnið sér 220 volta
díselvél um. Einnig er 12 volta kerfi
um borð. Ofan þiija er öllu vel fyrir
komið og auðvelt fyrir einn að standa
vaktina. Þó ekki fari mikið fyrir
íburði er ekki hægt að segja annaö
en að þetta sér lúxus fyrir tvo.
Norðurhöfin skemmtilegust
„Þetta er fullkominn bústaður fyrir
tvo. Það er ekki vit í öðm en láta
fara vel um sig, þá þrífst maður mik-
ið betur. Þetta lærir maður af reynsl-
unni. Þótt vel fari um mann eru sigl-
ingar oft erfiðar. Viö stöndum fjög-
urra tíma vaktir og þaö krefst mikhs
af manni. Þohð hef ég æft meö sundi,
enda er frábært að iðka sund á ís-
landi. í norðurhöfum verður oft ekki
mikið úr svefni vegna veðurs og
bjartra nótta. Þá er freistandi að vera
á fótum allan sólarhringinn. Það er
skemmthegast að sigla þar. Upplif-
unin er miklu öflugri í þessari
óspjöhuöu náttúru."
Góðir grannar
Gun mun vinna fram í maímánuð
þegar þau leggja úr höfn. Henni hef-
ur fundist mikil reynsla að vinna á
Islandi en segir það tiltölulega létt
fyrir Svía. Hún hefur orðið veður-
teppt á Vííhsstöðum nótt og nótt en
þá hefur Gunnar getað stytt sér
stundir við að horfa á sjónvarp sem
skipverjar á Sæbjörginni hafa lánað
þeim. Að sögn Gunnars hafa Sæ-
bjargarmenn verið hinir bestu ná-
grannar.
-hlh