Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1989, Page 5
LAUGARDAGUR 11. MARS 1989:
5
Fréttir
skamms greitt í stöðumæla fyrir tvo
tíma í senn,
Hugað að
breytingum
á stöðumælum
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borg-
arráðsmaður og formaður Skipu-
lagsnefndar Reykjavíkurborgar,
lagði til á borgarráðsfundi sl. þriðju-
dag að kannað yrði hversu kostnað-
arsamt það yrði og hve langan tíma
það tæki að breyta stöðumælum
þannig að hægt yrði greiða stöðu-
gjald fyiúr einn eða tvo tíma í senn
í stað þess að greiða fyrir einungis
einn tíma í einu eins og nú er.
„Það er nú komin eins árs reynsla
á núverandi fyrirkomulag stöðu-
mælagjaldsins en á þessum tíma hef
ég oft orðið var við þá ósk manna
að fá tækifæri til að greiða fyrir
lengri tíma í senn,“ sagði Vilhjálmur.
„Það er mjög algengt að erindi
manna í miðbæinn taki lengri tíma
en eina klukkustund. Sem dæmi um
slík erindi má nefna jarðarfarir, við-
töl við bankastjóra, ferðir á hár-
greiðslustofur og búðaferðir. Ég held
því að hér sé um að ræða eðlilegar
breytingar sem fyrst og fremst taki
mið af þörfum og óskum vegfarenda
sem erindi eiga í miðbæinn.“
Tillaga Vilhjálms gerir ráð fyrir því
að þessar breytingar muni ekki
verða til þess að hækka stöðumæla-
gjaldið. -KGK
Þrír varnargarðar
við Markarfljót
Vegagerðin er nú að gera um 100
metra langan vamargarð í Markar-
fljóti. Garðurinn er gerður til þess
að fljótið renni réttu megin við Litla-
Dímon.
Innan skamms verður ráðist í að
gera tvo um 300 metra langa varnar-
garða neðar í Markarfljóti. Varnar-
garðarnir eru gerðir á vegum Land-
græðslu og Vegagerðar.
Garðarnir verða gerðir til að varna
grónu landi á vesturbakka Markar-
fljóts. Kostnaður vegna þeirra garða
er áætlaður um tvær milljónir króna
og verður kostnaður vegna þess tek-
inn af því fé sem varið er til fyrir-
hleðslu. -sme
Enn er mok-
veiði á loðnu-
miðunum
„Það er mokveiði á loðnumiðunum
og síðan í gærkveldi hafa skipin til-
kynnt um afla samtals 21 þúsund
lestir. Þau eru mörg fleiri að fylla sig
og tilkynna sig svo á eftir. Segja má
að landað sé um allt land eða frá
Siglufirði, austur og suður um, allt
til Faxaflóahafna," sagði Ástráður
Ingvarsson hjá Loðnunefnd í samtah
við DV síðdegis í gær.
Þá voru komnar 735 þúsund lestir
af loðnu á land og eftir að veiða 187
þúsund lestir af kvótanum. Ástráður
sagðist ekki vera í minnsta vafa um
að loðnukvótinn næðist á vertíöinni.
Hann sagðist spá því að hægt yrði
að veiða loðnuna alveg fram í apríl.
-S.dór
Fynr 7.034 krónur
á mánuði
til Benidorm
og Costa del Sol
í mai og júni.
Og þjónustutrygging
í kaupbæti!
Það er ótrúlega hagstætt að ferðast með Veröld til Benidorm
og Costa del Sol í maí og júlí. Vaxtalausu raðgreiðslurnar okkar tryggja þér
hagstæðustu afborgunarmöguleika sem fáanlegir eru á íslandi
og gera öllum kleift að komast í fríið í sumar.
Ein íslenskra ferðaskrifstofa bjóðum við þjónustutryggingu
sem tryggir þér betri aðbúnað í fríinu.
Okkar þekking er þér til góða og við biðjum barnafólkið
að athuga hjá okkur bamaafsláttinn.
BEMDORM
EUROPA CEþiTER
Ijölskyldustaðurinn á Benidorm
2 vikur í júní: 138.400,-
samtals fyrir hjón með 2 börn
COSTA DEL SOL
BEMAL BEACH
Frábær fjölskyldustaður
2 vikur í júní: 35.775,-
f. manninn m.v. hjón m. 2 böm.
* 5 fullorðnir í íbúð m/2 á Europa Center
í 2 vikur í maí og júní með 6 mánaðarlegum greiðslum
Barnaafsláttur Veraldar ber af!
ffHBAMIflSTÖfllN
AUSTURSTRÆTI 17, SÍMI 91-622200