Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1989, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1989, Qupperneq 7
LAUGARDAGUR 11. MARS 1989. 7 Þórbergur Þórðarson. Stflverðlaun í i minningu Þórbergs Á morgun, sunnudaginn 12. mars, hefði Þórbergur Þórðarson rithöf- undur orðið 100 ára. Af því tilefni hafa bókaútgáfa Máls og menningar, Háskóli íslands og menntamálaráðu- neytið komið sér saman um að veita Stílverðlaun Þórbergs Þórðarsonar. Verðlaunaháfmn verður vahnn af þremur fulltrúum þessara aðila og hlýtur kr. 150.000. Verðlaunin skulu veitt fyrir „óvenjulega vel unnin verk sem fólg- in eru í framsetningu hvers konar efnis á íslensku máli, í riti eða ræöu, þannig að réttmætt er að telja þau stílafrek“, eins og segir í fréttatil- kynningu. Sömu aðilar stefna að því að veita verðlaunin annað hvert ár. -ai. Fréttir Ögmundur Jónasson, formaður BSRB: Vaxandi olga hjá almenningi - ekki síst vegna rýmandi kaupmáttar dag frá degi „Það er enginn áróöur þótt full- yrt sé að hjá hinura almenna launa- manni í landinu er vaxandi ólga. Ástæðan er ofur einfóld. Verð- hækkanir hafa skollið yfir frá 1. mars og á sama tíma eru ráðamenn þjóðarinnar með þær yfirlýsingar aö kaupmáttur skuli í besta falli haldast óbreyttur út árið. Þetta eru vægt sagt óheppilegar yfirlýsingar á sama tíraa og kaupmátturinn rýrnar dag ífá degi. Ofan á þetta bætast svo nýjustu yítrlýsingarnar fr á Vinnuveitendasarabandinu um að keyra kaupmáttinn enn meira niður en orðið er. Það getur því ekki farið hjá þvi að þetta veki upp reiði hjá iaunafólki," sagði Ög- mundur Jónasson, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, aðspurður ura stöðuna I samningamálunum nú. Ögmundur benti á að þeir sem vildu skerða kaupmáttinn vildu atvinnulífinu ilít. Eðlilegur kaup- máttur væri forsendaþessað versl- un og atvinnulífið yfirhöfúð gengi eðlilega. Hann sagði að það væri korainn tími til að raenn létu af þessum eilífa barlómi og tækju höndum saman um aö skapa auk- inn kaupmátt launa og þar meö betri aíkomu þjóðarinnar. „Stóra málið í þessu öllu saman er að stórum hluta þjóðarinnar eru búin óviðunandi kjör. Þetta fólk vinnur eftir iaunatöxtum sem eng- inn getur lifað af nema vinna myrkranna á miili. Kjör þessa fólks verður að bæta. Ef vinnuveitendur og ekki síst ríkisstjórnin tekur ekki þessum sanngjörnu og auðskiijan- legu rökum þarf og verður gripið til annarra ráða en notuð hafa ver- ið til þessa,“ sagði Ögmundur. Hann sagði að félögin innan BSRB hefðu hvert fyrir sig veriö að ræða við samninganefnd ríkis- ins og kynna þar sérkröfur sínar og síöan væri mikið um sameigin- lega fundi forsvarsmanna félag- anna, þar sem staðan væri rædd ogþaðsemerframundan. S.dór 75 íslendingar í París: Mótmæla aðferðum við sendi- herraskiptin „Mótmæh okkar beinast ekki gegn mönnum heldur aðferðum. Okkur finnst óréttlæti og ekki eiga skylt við mikla diplórtiatíu þegar Haraldur Kröyer sendiherra fréttir það úti í bæ að Albert verði sendiherra í Par- ís frá og með vorinu. Það var ekki talað við hann í fyrstu heldur hringt í hann með fréttir úr blöðunum heima,“ sagði Nína Gautadóttir, sem búsett er í París, í samtali við DV. Nína er ein 75 íslendinga í París sem skrifað hafa undir yfirlýsing- una: „Við undirritaðir íslendingar í París mótmælum þeim aðferðum sem íslensk stjórnvöld hafa beitt við skipti sendiherra í París.“ „Haraldur Kröyer á eftir tvö ár í eftirlaun og vonaðist til að geta lokiö starfsferh sínum hér í París. Það var fyrst í síðustu viku sem hann fékk að vita hvert hann ætti að flytjast, þannig að hann er búinn að sitja og bíða í nokkra mánuði eftir að fá það á hreint. Okkur finnst þetta ómögu-. leg framkoma af hálfu ráðuneytisins, að tala bara við Albert en ekki Har- ald. Ég vil ítreka að mótmæh okkar eiga ekkert skylt við persónur, held- ur aðferðir.“ Þórður Ægir Óskarsson hjá utan- ríkisráðuneytinu tjáði DV að sendi- herraskiptin væru afgreitt mál og fundist hefði lausn sem alhr sættu sig við. Sagðist hann ekki geta tjáð sig um fullyrðingar íslendinganna 75. Haraldur Kröyer hefur verið sendi- herra í París síðasthðin fiögur ár. Þar áður var hann í Moskvu í fimm ár. -hlh Vestmannaeyjar: Ekki verkfall Ómar Garðaisson, DV, Vestmannaeyjurrr Verkalýðsfélag Vestmannaeyja haíði boðað verkfall hjá starfsmönn- um fyrirtækisins ÍSNÓ hf. sem er með fiskeldi í Klettsvík í Vestmanna- eyjum. Verkfallið átti að koma til framkvæmda í gær en vinnuveiten- dasambandið mótmælti því og taldi það ólöglegt og kærði til Félagsdóms. I fyrradag var dæmt í máhnu og dæmdi Félagsdómur verkfahsboð- unina ólöglega. Verkalýðsfélagið var dæmt til greiðslu sektar, kr. 25.000, og 30.000 kr. í málskostnað. Dahli leikurínn er hafinn í búðinni þinni Nú bregður li'ifíTflri á leik við alla sem vita hvað eru góðar kökur. Á umbúðunum er auðvitað , |^^^J merkið. Ekki henda umbúðúnum, klipptu merkin út og geymdu þau þar til þú átt 15. Þá bið- urðu um umslag í búðinni þinni (um leið og þú kaupir sextáiidu kökuna). Merkin 15 seturðu í umslagið og sendir okkur. Að launum færð þú svo 100 krónur, eða þú getur notað þessar 100 krónur sem greiðslu fyrir þennan glæsilega þýska postulíns kökudisk. Dahli leikurinn stendur til 31. maí. Dahli kökur og tertubotnar - alveg óborganlegt meðlœti. FJÖRVI - VÖRUMIÐSTÖÐIN HF. Sími 687877

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.