Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1989, Qupperneq 8
8
LAUGARDAGUR 11. MARS 1989.
Fremstir í flokki í Sjónvarpinu á fimmtudögum:
HeM fallins stjórnmálamanns
ramagosarnir í Fremstir í flokki. Þeir eru Raymond Gould, leikinn af Tom Wilkinsson; Andrew Fraser, leikinn af David Robb; Simon Kerslake, leikinn af James Fauikner og Charles Seymour,
leikinn af Jeremy Child.
„Archer ber fé á vændiskonu" var
fyrirsögn eins af Lundúnablöðunum
fyrir þremur árum. Á þeirri stundu,
sem blaðið kom á göturnar, var póli-
tískum ferb íhaldsmannsins Jeffrey
Archer lokið. Áður var hann talinn
manna líklegastur tb að verða arf-
taki Margrétar Thatcher á stób for-
sætisráðherra en hann hefur síðan
einbeitt sér að ritstörfum.
Hneyksbð, sem Archer flæktist í,
var tilbúið frá rótum. Að undirlagi
blaðsins krafðist vændiskonan þess
að hann greiddi sér fé fyrir aö þegja
um samband þeirra. Árcher hafði
•engin samskipti átt við konuna en
tók samt þann kostinn að reiða féð
af hendi og þar með var hann geng-
inn í gildruna. Blaðið hafði orðið sér
úti um ókeypis hneykshsmál.
Síðar vann Archer meiðyrðamál á
hendur blaðinu en það breytti engu
um niðurstöðuna; maðurinn, sem
átti að leiða þjóðina, hafði látið
blekkjast. Hann varö að segja af sér
embættum fyrir íhaldsflokkinn og
hætta afskiptum af stjórnmálum.
Háð um
fyrri félaga
Archer hefur þó ekki lagt árar í
bát. Hann var þegar þekktur sem rit-
höfundur og hefur eftir hneyksbð
vakið athygb fyrir póbtískar háðs-
ádeilur. Eina slíka hefur Sjónvarpið
tekið til sýninga á fimmtudagskvöld-
um. Þetta er röð tíu þátta sem hér
bera heitið Fremstir í flokki en heita
á frummábn First Among Equals.
Þessa sögu samdi Archer gagngert
sem sápuóperu þótt hún hafi fyrst
komið út í bókarformi. Þættirnir
bera þess öb merki að höfundurinn
er heimavanur í stjórnmálunum. Ur
þeim má reyndar lesa flest það sem
gerst hefur í breskum stjórnmálum
á síðustu tuttugu árum og aðalper-
sónurnar eiga sér fyrirmyndir í
þekktum stjórnmálaleiðtogum.
Á yfirborðinu minna þeir á banda-
rískar sápuóperur en undir niðri er
ádeilan hárbeitt og húmorinn að
sjálfsögðu eins breskur og hægt er
að hugsa sér. Þetta er hápóbtísk
sápuópera.
Þvi er meira að segja haldið fram
að aðalpersónan Simon Kerslake sé
Archer sjálfur. Hann hefur aldrei
neitað að svo sé.
í þáttunum er fjallað jöfnum hönd-
um um framapot ungra manna úr
öllum helstu stjórnmálaflokkum í
Englandi og þróun stjórnmálanna á
tímabbinu. Einkum er þó saga
íhaldsflokksins breska sögð í skop-
legu ljósi.
Þingmaóur
fyrir Granada
Sú saga er sögð af síðasta lands-
fundi íhaldsmanna að þar hafi sjón-
varpsmenn verið að taka viðtöl við
þingmenn flokkins. Þeir komu auga
á náunga sem var fús til að tala og
hafði skoðanir á öllum mögulegum
og ómögulegum hlutum. Hann var
glæsilegur í útliti og sjónvarpsmenn
flokkuðu hann umsvifalaust með
einum af þeim ungu framagosum
sem hafa verið á uppleið í flokknum
í tíð Thachers.
Að endingu var maðurinn spurður
fyrir hvaða kjördæmi hann sæti á
þingi. „Granada," svaraði hann að
bragöi. Engin mundi eftir þvi kjör-
dæmi en þingmaðurinn efnilegi benti
þeim á að hann ætti við sjónvarps-
verið Granada. Hér var kominn leik-
arinn James Faulkner sem leikur
Simon Kerslake í Fremstir í flokki.
Hann er nú í hópi þekktustu þing-
manna í Bretlandi þótt hann hafl
aldrei boðið sig fram í öðru kjördæmi
en Granada.
Erindi hans á flokksþingið var að
kynna sér framkomu þingmanna
vegna hlutverksins í þáttunum. Eftir
stutta dvöl á landsfundinum var
hann búinn að ná óaðfinnanlegum
tökum á hlutverki ungs íhaldsþing-
manns.
Valdagræðgi
og undirferli
Margt í þáttunum minnir á vin-
sælar sápuóperur eins og Dabas og
Dynasty. Karlmennirnir eru valda-
sjúkir og konumar undirforular. í
upphafl er sýnd mynd af háhýsi und-
ir hressilegri tónbst. Húsin eru þó á
bökkum Thamesárinnar og klukku-
tuminn Big Ben gnæfir hæst.
Archer er rithöfundur sem kann
þá bst að setja saman spennandi sög-
ur. Framleiðendur þáttanna lögðu
bka mikla áherslu á að gera persón-
umar raunverulegar þrátt fyrir ýkj-
urnar í sögunni. Leikararnir skoð-
uðu nákvæmlega myndir af stjórn-
málamönum og aðalleikarinn fór í
sjálft höfuðvígið til að fullnuma sig
í yfirborðsmennsku.
Sérstök áhersla var lögð á að fylgj-
ast með ráðhermm. Jeremy Child,
einn af aðabeikurunum, segir frá því
að þegar verið var að taka upp fyrir
framan bústaö forsætisráðherra að
Downingstræti 10. Von var á Thatc-
her heim en áður en hún kom ók
bíb frá embættinu að húsinu og út
kom maður með appelsínu og epU í
poka - hádegisverðinn fyrir Denis
Thatcher. „Það eru völd í mínum
augum að fá hádegismatinn með
einkabílstjóra," sagði Jeremy ChUd
á staðnum.
í þáttunum segir frá fjórum mönn-
um sem allir komu fyrst inn á þing
árið 1964. Þetta eru ólíkir menn sem
eiga drauma um frama sameiginlega.
Charles Seymour, sem Jeremy Child
leikur, er yfirstéttarmaður. Hann
hefur erft kjördæmi, enda er allt
yppeldi hans miöað við að hann verði
áhrifamaöur í stjórnmálum.
Simon Kerslake hefur ekki sterka
fjölskyldu á bak við sig en þeim mun
meiri metnað. Hanri er fátækur en
staðráðinn í að ná langt, rétt eins og
höfundurinn Archer var í upphafi
ferils síns.
Líka úrVerka-
mannaflokknum
Hinir aðalmennirair tveir fylgja
Verkamannaflokknum aö málum.
Þeir eru Andrew Fraser sem er af
skoskum íhaldsættum en hefur
gengið tb bðs við andstæðing-
ana. í tímans rás snýst hann
gegn Verkamannaflokknum og
gengur tb bðs við Bandalag
jafnaðarmanna. Þetta er maður
sem hefur ákveðnar skoðanir -
en oft nokkuð breytbegar. Þeir
sem tb þekkja segja að þama
séu leiðtogarnir David Owen og
David Steel komnir saman í
einni persónu.
Fjórði maðurinn í hópnum er
Raymond Gould. Hann fylgir
Verkamannaflokknum að mál-
um og þykir með greindustu
þingmönnum. Það háir honum
á hinn bóginn að hann er ansi
laus í rásinni. Ferib hans er í
stöðugri hættu vegna kvenna-
mála.
Þessir menn ætla sér allir að
verða forsætisráðherrar og á
endanum nær einn þeirra stöð-
unni. í sögulokunum felst spá-
dómur um hver taki við af
Thatcher en Archer tekur ekki
afgerandi afstöðu til málsins
því hann samdi tvenn sögulok.
í lokum sögunnar, sem ætluð er fyr-
ir breskan markað, er það maöur
Verkamannaflokksins sem hreppir
hnossið. Bandaríkjamenn fá hins
vegar að sjá þætti þar sem íhalds-
maður sigrar.
Pólitíkusamir þegja
Breskir stjómmálamenn hafa
verið ófáanlegir til að segja álit sitt
á þáttunum. Sumir vilja ekki taka
þá áhættu að gagnrýna Archer því
hann á örugglega eftir að skrifa fleiri
sögur af valdabrölti stjórnmála-
manna. Aðrir segja að Archer sé að-
eins að hefna sín vegna eigin ófara.
Þess vegna dragi hann upp ófagra
mynd af störfum stjórnmálamanna.
-GK