Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1989, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1989, Síða 36
LAUGARDAGUR 11. MARS 1989. 52 Fordkeppnin Bakarísstúlkan vann Það var vissulega ánægjuleg stund fyrir Lillí Karen Wdowiak þegar Bill Ford hafði tilkynnt úrslit keppninnar. Aðrar þrjár stúlkur geta átt möguleika á starfi T.illí Karen Wdowiak, 17 ára af- greiðslustúlka í bakaríi, bar sigur úr býtum í Ford-keppninni 1989 sem fram fór í Vetrarbrautinni í Þórs- kaffi sl. miðvikudagskvöld. Tíu stúlkur voru valdar til að taka þátt í keppninni en þær voru valdar úr hundrað stúlkna hópi sem sendu myndir í keppnina. Það var Bill Ford eða Gerard Will- iam Ford, eins og hann heitir fullu nafni, sem valdi sigurvegara keppn- innar. DV og Katrín Pálsdóttir frétta- maður, umboðsmaður Ford Models á íslandi, standa að keppninni hér á landi. Lillí Karen hlýtur að launum starfssamning við Ford Models í New York, auk þess sem hún tekur þátt í keppninni Supermodel of the World, sem fram fer í Bandaríkjunum í ágúst. Þrjátíu og þrjár stúlkur frá jafnmörgum löndum taka þátt í þeirri keppni, þar sem verðlaunin eru tólf og hálf milljón íslenskra króna. Þá fær sigurvegari keppninn- ar minkapels og skartgripi frá Carti- er. Að sjálfsögðu er honum einnig tryggður starfssamningur við þekkt- ustu heimsblöðin. Látiaust kvöld Fyrirsætustarfið er erfitt og marg- ar stúlkur gefast upp þegar út í þann harða heim er komið. Þó er áhuginn á starfinu gífurlegur jafnt hjá ís- lenskum stúlkum sem annarra þjóða. Áhuginn sýndi sig glöggt í þeim íjölda bréfa sem DV bárust. Ford-keppnin hér á landi er ein- ungis fyrir boðsgesti, aðstandendur stúlknanna, fjölmiðla og fólk sem starfar í fyrirsætustörfum hér á landi. Keppnin fór fram í Vetrar- brautinni í Þórskaffi, glæsilegum sal á þriðju hæð, og var gestum boðið upp á kampavín og snittur. Kvöldið var látlaust, stúlkumar þurfa ein- ungis að kynna sig fyrir gestum áður en úrslit voru kynnt. Bill Ford sagði gestum lítillega frá hvers vegna Ford-keppni er haldin víða um heim en leit að fyrirsætum stendur yfir allt árið hjá Ford Models. Eileen Ford, stofnandi og eigandi hjá Ford Models. Ford Models, hefur starfrækt skrif- stofu sína í 42 ár. Ford Models er ein elsta umboðsskrifstofa í heiminum og nýtur mikillar viðurkenningar víða um heim. Frægustu fyrirsætur heims hafa komiö frá Ford Models og jafnframt hafa margar heims- frægar leikkonur byijað feril sinn sem fyrirsætur Ford Models. Ferðalög um allan heim Eileen Ford og böm hennar, Lacey, Kathy og Bill, ferðast um allan heim og leita að útliti sem hentar í fyrir- sætustörf. Bill Ford sagði í samtali við DV að það sem fyrst og fremst skipti máli væm fallegir fótleggir og sérstætt útlit. Hann sagði að LiUí Karen hefði það útlit sem leitað væri að og ætti hún því mikla möguleika á að komast áfram í fyrirsætustarf- inu. Jafnframt óskaði Bill eftir að þrjár aðrar stúlkur, sem tóku þátt í keppninni, sendu fleiri myndir af sér til Ford Models og gætu þær því átt möguleika á starfi. Þær tíu stúlkur, sem valdar voru í keppnina, vora allar mjög hávaxnar og glæsilegar. Bill sagði að hópurinn væri sérlega góður og valið hefði verið nyög erfitt. Þó eru ákveðnar formúlur sem hann vinnur eftir og velur stúlku samkvæmt því. Bill hélt héðan til írlands, þar sem valin var Ford-stúlka í gærkvöldi, en síðan liggur leiðin til Lundúna. í næsta mánuði fer Bill til Hong Kong en í maí ferðast hann til Sovét- ríkjanna, Svíþjóðar og Sviss. Eins og sjá má af þessari upptalningu er sannarlega nóg um að vera hjá Bill Ford og fjölskyldu hans og ekki sakar að geta þess að hann sagðist ekki geta kosið sér skemmtilegra starf. Sjálfur er Bill Ford fæddur og uppal- inn innan um fegurstu konur því ávallt eru nokkrar fyrirsætur sem búa á heimili Eileen Ford í New York. Stefnt á fyrirsætustarfið Sigurvegarinn Lillí Karen Wdow- iak hefur stefnt að því að verða fyrir- sæta á erlendri grandu og lét skóla- námið bíða til að safna peningum til fararinnar. Hún sagðist hafa smitast af frænku sinni, Helgu Melsted, sem varð sigurvegari Ford-keppninnar fyrir fjórum árum. Helga hefur starf- að sem fyrirsæta í Hollandi og Þýska- landi við góðan orðstír. Helga og Lillí era systraböm. „Helga hvatti mig eindregið til að taka þátt í Ford-keppninni í stað þess að fara á eigin vegum í fyrirsætu- starfið. Hún sagði að það myndi auð- velda mér starfið og framann á allan hátt,“ sagði Lillí. „Það er langt síðan ég ákvað að fara í fyrirsætustarf og greip því tækifærið og sendi mynd af mér þegar ég sá keppnina auglýsta í DV,“ sagði Lillí. „Ég vonaðist auðvitað til að vinna keppnina en bjóst samt ekki við aö ég yrði svo heppin. Við voram allar mjög ólíkar og erfitt að sjá fyrir hverja okkar BOl Ford myndi velja. Það kom því á óvart þegar hann til- kynnti úrslitin en líka ánægja," sagði Lillí Karen. Unnusti Lillíar Karenar heitir Sölvi Fannar Viðarsson. „Samband okkar breytist ekkert þó ég hafi unn- ið keppnina," sagði Lillí Karen og taldi fullvíst aö brauðin og snúðamir kæmust í hendur viðskiptavinanna eftir sem áður næstu daga. -ELA Það var Ágústa Ema Hilmarsdóttir, sigurvegari Ford-keppninnar í fyrra, sem setti borða á Lillí Karen þegar úrslitin höfðu verið kynnt. Bill Ford hélt stutta ræðu þar sem hann sagði gestum frá starfi Ford Mod- els en þvi næst sagði Ágústa Erna Hilmarsdóttir frá reynslu sinni í keppn- inni Supermodel of the World. Anna Lára Magnúsdóttir, einn keppenda, getur átt von á starfi hjá Ford Models í Tokýo eftir þvi sem Bill Ford sagði. Hann óskaði eftir að hún sendi fleiri myndir af sér til Ford Models.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.