Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1989, Page 49
LAUGARDAGUR 11. MARS 1989.
65
Afmæli
Júlíus H. Þórðarson
Július H. Þórðarson útvegsmaöur,
Vesturgötu 43, Akranesi, er áttræð-
ur í dag. Júlíus er fæddur á Grund
á Akranesi og vann lengst af sem
útvegsmaður og einn af stjómend-
um fyrirtækjanna Heimaskaga hf.,
Ásmundar hf. og Þórðar Ásmunds-
sonar hf., sem faðir hans, Þórður
Ásmundsson, stofnaði. Hann var
formaður Útvegsmannafélags
Akraness um árabil og fréttaritari
Morgimblaðsins í tuttugu ár. Júlíus
kvæntist 3. ágúst 1933 Ásdísi Ás-
mundsdóttur, f. 18. ágúst 1912, d.
1986. Foreldrar Ásdísar: Ásmundur
Júlíus Magnússon, kennari og sjó-
maður á Akranesi, og kona hans,
Þóra Þorvaldsdóttir. Böm Júlíusar
og Ásdísar em: Guðrún Edda, f. 3.
ágúst 1938, gift Björgvini Hólm
Hagalínssyni, vélvirkja á Akranesi;
Ragnheiður, f. 14. nóvember 1940,
gift Gunnari Þór Jónssyni prófess-
or, yfirlækni Slysadeildar Borgar-
spítalans; Emelía Ásta, f. 19. nóv-
ember 1942, umsjónarfóstra í Kópa-
vogi, gift Guðmundi Bertelssyni raf-
iðnfræðingi; Þórður Ásmundsson,
f. 19. maí 1944, útibússtjóri Lands-
bankans á Helhssandi, kvæntur
Ömu Gunnarsdóttur meinatækni;
Ásdís Elín, f. 16. september 1946,
bankaritari, gift Aðalsteini Aðal-
steinssyni rafeindavirkja, og Gunn-
hildur Júlía, f. 11. júní 1951, sjúkra-
hði á Akranesi, gift Smára Hannes-
syni rafvirkja. Systkini JúUusar
eru: Ólína Ása, f. 30. nóvember 1907,
gift Ólafur Frímanni Sigm-ðssyni,
framkvæmdastjóra á Akranesi;
Steinunn, f. 8. febrúar 1910, d. 15.
apríl 1915; Ragnheiður, f. 22. ágúst
1913, gift Jóni Ámasyni, d. 23. júU
1977, alþingismanni á Akranesi;
Steinunn, f. 26. júlí 1915, gift Áma
Ámasyni, verslunarmanni á Akra-
nesi; Amdís, f. 2. desember 1917,
gift Björgvini Ólafssyni, verkstjóra
á Akranesi; Ingibjörg Elín, f. 22.
september 1920, gift Armanni Ár-
mannssyni, rafvirkjameistara á
Akranesi; Þóra, f. 31. mars 1922, gift
Ólafí M. Vilhjálmssyni, er látinn,
húsasmíðameistara á Akranesi, og
EmiUa, f. 9. mars 1927, gift PáU R.
Ólafssyni, loftskeytamanni á Akra-
nesi.
Foreldrar JúUusar vom Þórður
Ásmundsson, kaupmaður og út-
gerðarmaður á Akranesi, og kona
hans, Emilía Þorsteinsdóttir. For-
eldrar Þórðar vom Ásmundur, óð-
alsb. og formaður á Elínarhöfða á
Akranesi, Þórðarsonar, afa Ólafs
Bjarnasonar, prófessors í læknis-
fræði. Móðir Ásmundar var EUn
Ásmundsdóttir, b. og hreppstjóra í
EUnarhöfða, Jörgenssonar, b. og
skraddara í Elínarhöfða, Hanssonar
Klingenbergs, b. á Krossi á Akra-
nesi, ættfóður Klingenbergsættar-
innar. Móðir Jörgens var Steinunn
Ásmundsdóttir, systir Sigurðar,
langafa Jóns forseta. Móðir Þórðar
var ÓUna, systir Brynjólfs, langafa
Þorsteins Gunnarssonar arkitekts.
Systir Ólínu var Þómnn, amma list-
málaranna Sigurðar og Hrólfs Sig-
urðssona og Sigurlaugar og Sigurð-
ar Bjamasonar frá Vigur. OUna var
dóttir Bjarna, b. og hreppstjóra á
Kjaransstöðum í Innri-Ákranes-
hreppi, bróður Guðbrands, afa Sig-
urðar Helgasonar borgardómara og
langafa yfirlæknanna Ásgeirs EU-
ertssonar og Helga Guðbergssonar
og Brynjólfs Helgasonar, aöstoðar-
bankastjóra Landsbankans. Annar
bróðir Bjarna var Magnús, langafi
Sigurðar Steinþórssonar prófessors.
Bjarni var sonur Brynjólfs, b. í Ytra-
hólmi, Teitssonar, bróður Amdísar,
langömmu Finnboga, foður Vigdís-
ar forseta. Móðir Ólínu var Helga
Ólafsdóttir Stephensens, stúdents í
Galtarholti, Björnssonar Stephen-
sens, stúdents á LágafelU, Ólafsson-
ar, stiftamtmanns í Viðey, Stefáns-
sonar, ættfóður Stephensensættar-
innar. Móðir Ólafs var Margrét,
systir Jóns EspóUns sagnfræðings.
Margrét var dóttir Jóns, sýslu-
manns á EspihóU, Jakobssonar og
konu hans, Sigríðar Stefánsdóttur,
systur Ólafs stiftamtmanns, ætt-
móður Thorarensensættarinnar.
Móðir Helgu var Anna Stefánsdóttir
Schevings, umboðsmanns á Leirá,
Vigfússonar Schevings, sýslumanns
á VíðivöUum. Móðir Stefáns var
Anna Stefánsdóttir, systir Ólafs
stiftamtmanns. Móðir Önnu Sche-
ving var Helga Jónsdóttir, stiftpró-
fasts á Hólum, Magnússonar, bróð-
ur Skúla landfógeta, og konu hans,
Þómnnar Hansdóttur Schevings,
systurVigfúsar.
EmiUa var dóttir Þorsteins, út-
vegsb. á Grand á Akranesi, Jóns-
sonar, b. á Ölvaldsstöðum, Runólfs-
sonar, bróður Guðmundar, afa
Karls O. Runólfssonar tónskálds,
langafa Guðmundar Sveinssonar
skólameistara og Alfreðs Elíassonar
Júlíus H. Þórðarson.
forstjóra. Systir Jóns var Kristín,
amma Ara Gíslasonar ættfræðings.
Móðir Þorsteins var Ragnheiður
Jóhannsdóttir, prests á Hesti, Tóm-
assonar, afa Jakobs Jóhannessonar
Smára skálds. Móðir EmiUu var
Ragnheiður Þorgrímsdóttir Thor-
grímsson, prests í Saurbæ á Hval-
fjarðarströnd, langafa Steinunnar,
móður Jónasar Gústavssonar borg-
arfógeta. Móðir Þorgríms var Sig-
ríður HaUdórsdóttir, prests í Hítar-
dal, Finnssonar, biskups í Skálholti,
Jónssonar, ættfoður Finsensættar-
innar. Móðir Ragnheiðar var Ingi-
björg Guðmundsdóttir, systir Helga
Thordersens biskups. Júlíus tekur
á móti gestum í dag kl. 16-19 í húsi
Kiwanismanna, Vesturgötu 48,
Akranesl
Gunnar Jónsson
Gunnar Jónsson, fyrrv. bóndi og
innheimtumaður, Nesi á Rangár-
vöUum, er áttatíu og fimm ára í
dag. Gunnar fæddist á Nesi í Norð-
firði og ólst upp á Norðfirði. Hann
naut almennrar farskólakennslu í
æsku og bjó á Norðfirði tU fimmtán
ára aldurs en flutti þá norður í
Bárðardal og var þar fimm ár.
Gunnar flutti suður á RangárveUi
1925 og hefur hann átt þar heima
síðan. Fyrstu árin vann hann þar
ýmis landbúnaðarstörf, fyrst sem
vinnumaður, síðan vélamaður, þá
ráðsmaður og loks bóndi á eigin jörð
er hann og kona hans keyptu 1938,
hluta úr landi HeUuvaðs, og reistu
þar nýbýhð Nes. Þar búa þau enn
en án búskapar nú í seinni tíð. Með
búskapnum var Gunnar fyrstu árin
pakkhúsmaður hjá Kaupfélaginu
Þór en frá 1947 var hann innheimtu-
maður hjá Rafmagnsveitu ríkisins í
RangárvaUasýslu og stundaði hann
það starf tU 1975 er hann lét af störf-
um fyrir aldurs sakir.
Gunnar kvæntist 7. maí 1933 Guö-
rúnu Jónsdóttur f. 23. júlí 1904, dótt-
ur Jóns Jónssonar og Önnu Guð-
mundsdóttur sem lengst af bjuggu í
Bóluhjáleigu í Djúpárhreppi í Rang-
árvaUasýslu. Bróðir Guðrúnar var
Ingólfur ráðherra. Faðir Jóns var
Jón Eiríksson, b. í Bóluhjáleigu,
Jónssonar, á Helluvaði. Faðir Önnu
var Guðmundur Einarsson, b. á Stó-
rólfshvoli í Hvolhreppi. Börn Gunn-
ars og Guðrúnar era Jóhann, f. 20.
september 1935, deildarstjóri tölvu-
mála hjá Fjárlaga- og hagsýslustofn-
un, búsettur á Seltjamamesi,
kvæntur Eddu Þorkelsdóttur, en
þau eiga íjögur börn; Jón Bragi, f.
26. mars 1937, trésmiður á HeUu,
kvæntur Stefaníu Unni Þórðardótt-
ur og eiga þau fjögur börn; Kristinn,
f. 25. janúar 1942, trésmiður á HeUu,
kvæntur Unni Einarsdóttur og eiga
þau fimm börn. Dóttir Gunnars fyr-
ir hj ónaband með Ingibj örgu
Sveinsdóttur frá Norðfiröi var
Hulda Long, f. 18.janúar 1918, d. 7.
október 1980, húsmóðir í Reykjavík.
Fyrri maður Huldu var Sigurður
Þórarinsson sjómaður sem fórst í
sjóslysi 1940 og áttu þau eitt bam
en seinni maður Huldu var Guðjón
Bjarnason múrarameistari og eign-
uðust þau tvö börn. Hálfsystkin
Gunnars, samfeðra: Bjarni, b. á
Skorrastað í Norðfirði, en hann er
látinn, og Guðrún, verslunarmaður
í Reykjavík, einnig látin. Hálfsystk-
ini Gunnars, sammæðra: Sigur-
björg, húsmóðir á Norðfirði, og Ár-
mann, sjómaður í Vestmannaeyj-
um.
Foreldrar Gunnars voru Jón
Bjarnason, b. á Skorrastað í Norð-
firði, og kona hans, Halldóra
Bjamadóttir. Föðurbróðir Gunnars
var Halldór, faðir Halldórs prófess-
ors. Jón var sonur Bjarna, b. í Við-
firði, bróður Þrúðar, ömmu Ólafs
Jóhanns Sigurðssonar rithöfundar.
Bjami var sonur Sveins, b. í Við-
firði, Bjamasonar og konu hans,
Sigríðar, móður Davíðs, langafa
Gunnar Jónsson.
Bjama Vilhjálmssonar þjóðskjala-
varðar og Gíslínu, móður Eyþórs
Einarssonar, formanns Náttúm-
verndarráðs. Sigríður var dóttir
Davíðs, b. í Hellisfirði, Jónssonar
og konu hans, Sesselju Þorsteins-
dóttur, systur Guðnýjar, langömmu
Jóns, foður Eysteins og Jakobs
Jónssona.
Halldóra var dóttir Bjarna, b. í
Skálateig, Péturssonar, b. á Hofi í
Hellisfirði, Björnssonar. Móðir Pét-
urs var Guðlaug Pétursdóttir, systir
Þorleifs, langafa Hallgríms, fóður
Geirs seðlabankastjóra. Móðir
Bjarna var Mekkín Bjarnadóttir, b.
í Hellisfirði, Péturssonar, bróður
Guðlaugar. Móðir Mekkínar var
Guðrún Erlendsdóttir, b; í Hellis-
firði, Árnasonar, langafa Guðnýjar,
móður Vals Arnþórssonar. Móðir
Halldóru var Guðrún Marteinsdótt-
ir, b. á Sandvíkurparti, Magnússon-
ar og konu hans, Guðrúnar Jóns-
dóttur. Gunnar verður aö heiman í
dag.
III hamingju með daginn
90 ára 60 ára
Jörgen S. Holm, Hafiiargötu 20, Siglulfirði. Hulda Sveinsdóttir, Iðufelli 2, Reykjavik. Marsibil Mogensen, Tryggvagötu 6, Reykjavík.
85 ára Brynja Hermannsdóttir, Klapparstíg 1, Akureyri.
ólafur Guðmundsson, Brákarbraut 1, BorgamesL
50 ára
Kristlaugur Bjarnason, Grund, Eyrarsveit. Ólöf Steinunn Þórsdóttir, Bakka, Öxnadalshreppi Viðar Valdimarsson, _ Heiöarbraut 4, Grindavík.
75 ára Reynir Stefánsson, Mjóanesi, Vallahreppi.
Guðný Benediktsdóttir, Sogavegi 198, Reykjavík. Sólveig Inga Gunnlaugsdóttir, Ljósheimum 6, Reykjavík.
- 40 ára
70 ára
Aðalbjöm Þormóðsson,
Sveinbjörg Björnsdóttir, Kambakoti, Vindhælishreppi Þórunn Ólafsdóttir, Háholti. 20, Akranesi. Árholti 3, Húsavik. Tómas Þorkelsson, Klapparstíg 17, Reykjavík. Særún Garðarsdóttir, Glitvangi 5, Hafnarfirði.
Rós Níelsdóttir
Rós Níelsdóttir bókavörður, Dal-
bakka 9, Seyðisfirði, er sextug í dag.
Rós fæddist á Seyðisfirði og ólst
þar upp en hún hefur átt heima á
Seyðisfirði frá fæðingu. Hún lauk
barna- og gagnfræðaskólaprófum á
Seyðisfirði og stundaði síðan auk
húsmóðurstarfsins ýmis almenn
störfáSeyðisfirði.
Maður Rós var Hörður Jónsson,
bókavörður og skrifstofumaður
Pósts og síma á Seyöisfiröi, f. 11.9.
1925, d. 23.6.1983, sonur Sigurlínu
Sigurðardóttur og Jóns Vigfússonar
múrarameistara en þau bjuggu
lengst af á Seyðisfiröi.
Böm Rósar og Harðar eru Guðrún
Lilja, f. 1957, gift Magnúsi Bergssyni
trésmið en þau búa á Seyðisfirði og
eiga tvær dætur; Jóna Sigurlín, f.
1959, nemi við HÍ; Ingiríður, f. 1962,
myndlistarmaður; Níels, tvíbura-
bróðir Ingiríöar, verkamaður á
Seyðisfirði, kvæntur Sigrúnu Birg-
isdóttur, og Einar Ármann, f. 1964,
verkamaður.
Systkini Rósar eru Bragi, f. 1926,
læknir á Akranesi, kvæntur Sigríði
Ámadóttur, f. 1929, bókasafnsfræð-
ingi, en þau eiga fjögur börn; Sig-
rún, f. 1927, húsmóðir á Akranesi,
gift Jóni Guðjónssyni vélstjóra, f.
1926, en þau eiga átta börn, og
Hjálmar, f. 1930, tryggingafulltrúi,
kvæntur Önnu Þorvarðardóttur, f.
1935 en þau eiga þrjá syni.
Foreldrar Rósar voru Níels S.R.
Jónsson, verkmaður á Seyðisfirði,
f. 1901, d. 1975, og kona hans Ingiríð-
ur Hjálmarsdóttir húsmóðir, f. 1898,
d/1961.
Ingiríður var ættuð úr Skagafirð-
inum, dóttir Guðrúnar, systur Ingi-
bjargar, móður Páls Kolka læknis.
Guðrún var dóttir Ingimundar,
smáskammtalæknis og b. á Tungu-
bakka í Laxárdal fremri, Sveinsson-
ar, og konu hans, Júlíönnu Ólafs-
Eggert Kr. Kristmundsson
Rós Níelsdóttir.
dóttur, smiös á Vatnsenda, Ás-
mundssonar, manns Vatnsenda-
Rósu. Faðir Ingiríðar var Hjálmar,
b. á Kirkjubóli í Seyluhreppi, Jóns-
son, húsmanns í I átladal í Blöndu-
hlíð, Si'gurðssonar. Móðir Hjálmars
var Margrét Jónsdóttir, b. í Kálfár-
dal fremri, Ólafssonar, b. í Valadal,
Andréssonar. Móðir Jóns var Björg
Jónsdóttir, b. á Skeggsstöðum í
Svartárdal, Jónssonar, ættfóður
Skeggsstaóaættarinnar.
Rós verður á afmælisdaginn stödd
á heimili dóttur sinnar og tengda-
sonar að Gauksrima 3, Selfossi.
Eggert Kr. Kristmundsson, húsa-
smiður, Tungubakka 12, Reykjavík,
verður sextugur á morgun. Eggert
er fæddur á Rauðbarðaholti í Dala-
sýslu. Hann lærði húsasmíði í Iðn-
skólanum í Reykjavík og hjá Ver-
mundi Eiríkssyni húsasmíðameist-
ara og lauk sveinsprófi 1960. Hann
lauk prófi frá Meistaraskóla Iðn-,
skólans 1966 og hefur unnið við
húsasmíði í Reykjavik og víðar.
Eggert hefur unnið að félagsmálum
í Trésmíðafélagi Reykjavíkur og
verið í stjórn Breiðfirðingafélagsins
í Reykjávík 1979-1986, formaður
1984-1986. Eggert kvæntist 9. nóv-
ember 1957, Báru Þórarinsdóttur, f.
31. desember 1935, hússtjórnar-
kennara. Foreldrar Báru era Þórar-
inn Guðmundsson, vélsmíðameist-
ari frá Norðfirði, og kona hans,
Guðrún Sigmundsdóttir. Börn Egg-
erts og Bám em Georg, f. 7. júlí 1958,
húsgagnasmiður í Rvík, og Guðrún,
f. 3. nóvember 1959, gift Sigurjóni
Aðalsteinssyni, húsasmiöi í Rvík,
og eiga þau tvær dætur. Systkini
Eggerts eru Einar, f. 4. desember
1920, b. á Rauðbarðaholti í Hvamms-
sveit, kvæntur Guðrúnu Jóhannes-
dóttur; Georg, f. 6. desember 1921,
d. 1. mars 1938; Guðlaug, f. 6. janúar
1924, verkakona í Rvík, og Ingiríður,
f. 21. desember 1925, gift Einari
Helgasyni, b. í Glaumbæ í Staðar-
sveit.
Eggert Kr. Kristmundsson.
Foreldrar Eggerts voru Krist-
mundur Eggertsson, b. í Rauðbarða-
holti, og kona hans, Salome María
Einarsdóttir. Kristmundur var son-
ur Eggerts, b. í Gröf í Laxárdal,
Guðmundssonar, b. í Bessatungu,
Guðmundssonar. Móðir Krist-
mundar var Guðlaug Guðmunds-
dóttir, b. í Magnússkógum, Guð-
mundssonar. Salome var dóttir Ein-
ars, b. á Hróðnýjarstöðum í Laxárd-
al, Þorkelssonar, b. á Hróðnýjar-
stöðum, Einarssonar. Móðir Salome
var Ingiríður Hansdóttir, b. á Gauta-
stöðum, Ólafssonar. Einar og kona
hans taka á móti gestum á heimili
sínu á afmælisdaginn kl. 15-19.