Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1989, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1989, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1989. Gelmállurlnn vlð matborðiö bjé Tanner fjölskyldunni. Hann ð margt ólaert i mannaslðum. Geimálfurimi á simnudagskvöldum á Stöð 2: Óþolandi loðdýr utan úr geimnum Gordon Shumway kemur frá stjömunni Melmak en þaðan er tnlió að flölmargir Sjúgandi diskar hafi komið til Jarðarinnar á undan- fómum árum. Hann er 202 ára gamall og gengur undir nafninu Alf eða Álfiirinn fijá gestgjöfum sínum á Jörðinm. í heimkynnum sínum vann hann fyrir sér sem sporbaugsvörður en hafði áður reynt fyrir sér sem fyrir- sæta. Á yngri árum var hann vel hötækur í íþróttum og um þriggja ára skeið varafyrirliði skólaliðsins. Dag nokkum, þegar Alf var við skyldustörf, fór eitthvað úrskeiðis og geimálfirrinn brotlenti skipi sinu á húsi Tanner Qölakyldunnar. Ejölskyldan sú hefur setið uppi með Áífinn síðan enda er geimfarið hans bilaö og þrátt fyrir óbilandi trú á 8jálfum sér hefur Alf ekki tekist að gera við það. Alf er mjög elskuleg geimvera og um leið óþolandi uppáþrengjandi og hjálpsemi hans er meiri en nokkur hetur not fyrir. Hann er heldur ekki of vel að sér í ahnenn- um mannasiðum, svo sera vænta raá þegar gelmvera á í hlut, en tek- ur glappaskotin þónxjög nærri sér. Stundum verður fósturfiölskyld- an svo þreytt á „loödýrinu“ aö allir á heimfiinu eiga sér þá ósk heitasta að AJf komi sér til síns heima. Alf tekur ógætilegar athugasemdir vissulega nærri sér enda viðkvæm sál en í hvert sinn þegar brottfór stendur fyrir dyrum vill enginn að hann fari. Vinsælasta furðudýrið Þannig birtist vinsælasta furðu- dýrið í bandarÍ8kum sjónvarps- heimi á hveiju surmudagskvöldi á Stöð 2. Sem sjónvarpsstjama er Alf orðinn þriggja ára gamall og miöaö viö vinsældimar, sem hann nýtur nú, vekur það athygli að hann hef- ur hvergi beinlínis sópaö að sér vinsældum í fyrstu atrennu. Alf þarf tíma til að koma sér í mjúkinn hjá fólki. Fyrsta árið sem NBC sjónvarp- stöðin í Bandaríkjunum hafði Alf á dagskrá kom hann heldur illa út úr vinsældakönnunum og til stóð aö senda hann aftur tU síns heima. Á öðm ári var hann þó kominn í röð allra vinsælustu sjónvarps- sijama og nú er sprottinn upp heU- mikiU iðnaður í kringum jarðvist geimálfsins eins og lenska er í Bandarikjunum þegar sjónvarps- stjömur ná vinsældum. Sjálf hugmyndin um að gera sjón- varpsþætti um geimveru sem sest að hjá venjulegri fjölskyldu þótti í upphafi ekki sérlega snjöU. Sjálf- sagt er líka hægt aö gera afspymu- vonda sjjónvarpsþætti úr þessu efn- i. Það sem ræður úrslitum er aö Alf er ósköp mannlegur um leið og hann er bæði óþolandi og mein- fyndiim. Ættingi Cliffs Huxtable Sérfræðingar f sjónvarpsmálum segja að þættimir um Alf séu ág- ætt dæmi um hvernig amerískar sápuóperur hafa —>rið að breytast á síðustu árum. DaUasútgáfán með hörkutólinu í aðalhlutverki er úr- elt og sömuleiðis sögur af yfir- drifnu lífemi ríka fólksins. í staö- inn hafa sögur af venjulegu fólki náð vinsældum og þar er Huxtable-fjölskyldan frægust Þótt Aifkomi utan úr geimnum er hann sömu ættar og CUff Huxtable. Ýmsar sögur ganga af vinsældum Alfs í Bandarikjunum. Fjölmargir virðast haía fengið þetta furðudýr á heUann. Á krá einni í New York kemur hópur manna saman í hverri viku íklæddur Alf-bolum og heldur sína helgistund meöan horft er á nýjasta þáttinn um Alf. Á meö- an drekkur engirrn því að ekkert er afgreitt af bamum á sýningar- tímanum. Jafiivel Vítisenglamir hafa sést með Alf-brúðu á bjólum sínum og eru þeir þó ekki þekktir fyrir hin mjúku gUdi. Samstarfsmenn JimHenson Það þarf engum aö koma á óvart að höfundamir að þáttunum um Alf hafá áður unniö með manni að nafni Jim Henson, þeim sama og skapaöi PrúðuleUmrana. Fyrir Henson skrifuöu þeir handritin að tveimur kvikmyndum um Prúðu- leikarana. Þaö voru þeir Tom Patc- hett og Paul-Fusco sem bjuggu Aif til árið 1985 tU að nota í sjónvarps- þáttum án þess þó að vita íyrir víst í hvernig þáttum hann ætti að birt- ast. Áður hafði Fusco búið tU svip- aöa brúðu sem hann hafði engin not fýrir. Eftir að Aif var kominn í þennan heim og búinn að fá helstu ein- kenni sín - hann varð snemma uppáþrengjandi, klaufskur, mál- gefinn og viðkvæmur - örkuðu þeir félagar á fund dagskrárstjóra hjá NBC sjónvarpsstöðinni og buöu honum dýrið. Alf blaðraöi heU ósköp á fyrsta fimdinum, snýtti sér á jakkaermi stjórans og var ráðinn á staðnum. Eftir það var tekiö tíl við að semja þætti í kringum Alt Tanner fjöl- skyldan varð tíl og átti ekki að vera of venjuleg fiölskylda. Heimilis- faðirin er taugaveUdaður og þolir ekki Alf. Samt kemst Alf upp með ailt. Húsmóðirin viU hafa allt í röð og reglu sem er ómögulegt með Aif á heimilinu. Dóttirin er með ungl- ingaveUdna og full af öfúnd út í Alf því að hann fær alla athyglina. Sonurinn trúir og treystir á Alf í öUum raunum sínum því að hann er svo yfirgengUega hjálpsamur. AUt er í hers höndum á heimilinu og Alf skUur ekkert í af hveiju öll vandræðin stafa -GK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.