Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1989, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 24. APRÍL 1989.
5
Fréttir
Kirkjubæjarklaustur:
Sobbeggi afi
Valgeir Ingi Ólafeson, DV, Klaustri:
Tuttugu manna hópur hér á
Kirkjubæjarklaustri brá undir sig
betri fætinum á dögunum og fór í
leikferð til Hafnar í Homafirði tíi að
sjá sýningu Leikfélags Homafjarðar
á „Sálminum um blómið“ sem það
setur upp í tilefni 100 ára afmæhs
Þórbergs Þórðarsonar.
Skemmtu aUir sér hið besta á þess-
ari bráðskemmtilegu uppfærslu
þeirra Hornfirðinga þótt yfir langan
veg væri að fara eða rúma 200 km.
Haft var á orði að Klausturbúar
væm orðnir þjálfaðir í leikhúsferð-
um því fyrr í vetur lögðum við einn-
ig land undir fót og skmppum á
„Síldina“ hjá Leikfélagi Rangæinga.
Ekki veit ég hvort endurminningar-
síldaráranna hafi vaknað hjá okkur
landkröbbunum en eitt er víst að
hópurinn skemmti sér hið besta. Það
má ef til vill segja að við séum að
bæta okkur upp það að í ár ákváðum
við að setja ekki leikverk á fjalirnar
hér heima.
íslenska óperan:
Brúðkaup Fígarós
fflutt í Sindrabæ
Júlía Imsland, DV, Ho&i:
Þriðjudaginn 18. apríl gafst Horn-
firðingum færi á að fara í ópem í
sinni heimabyggð þegar íslenska óp-
eran kom austur með Brúðkaup
Figarós og flutti í Sindrabæ. Ekki var
aðstaða í húsinu fyrir hljómsveitina
en það kom ekki að sök þvi með í
ferðinni var Chatarine Williams og
lék hún undir á píanó.
Meðal þeirra sem tóku þátt í sýn-
ingunni var 16 manna blandaður kór
heimamanna, æfður undir stjóm
Jóhanns Moravek og Guðlaugar
Hestsnes. Þetta mun vera í fyrsta
sinn sem fariö er með heila og óstytta
óperu til sýningar út á land og von-
andi verður framhald á því. Það
leyndi sér ekki að sýningargestir
kunnu vel að meta Brúðkaup Fígarós
og var flytjendum og stjórnandanum,
Anthony Hose, þakkað með miklu
og löngu lófaklappi.
REGLULEG
SKODUN
Á ÞJÓNUSTU-
VERKSTÆÐINU
EYKUR
VERÐGILDIÐ.
Einstakur bill
fyrir
krofuharða.
AUMA
Vogar eiga aö þjóna ttíllukörlum af öllum Suöumesjum:
Framkvæmdir hafnar
við smábátahöfnina
„Langþráöur draumur hefur ræst
hjá okkur smábátaeigendum, því fyr-
ir tveimur vikum hófust fram-
kvæmdir viö gerð smábátahafnar
hér í Vogum. Þama er um að ræða
um 70 báta höfn, sem þjóna á öllum
Suðurnesjunum. Til þessa hafa
trillukarlar á Suðumesjum verið í
vandræðum með báta sína ef eitt-
hvað hefur verið að veðri," sagði Jón
Kristjánsson, frá Valfelh í Vogum, í
samtali við DV.
Hann sagði að fyrsta framkvæmdin
væri að koma upp vamargarði fyrir
suð-austanátt, en þannig háttaði til
við hafnarstæðið að aðeins þyrfti að
gera skjólgarð fyrir þessari átt. Þetta
gerir hafnarframkvæmdina ódýrari
en ella og þess vegna var það tekið
fram yfir Sandgerði og Garð, en til
greina kom að byggja höfnina á þeim
stöðum.
í ár em 5 milljónir króna á fjárlög-
um til þessarar hafnargerðar en 1,2
milljónir króna koma á móti frá
sveitarfélaginu. Tahð er aö þessi
upphæð fari langt í að standa undir
kostnaði við skjólgarðinn. Þá er eftir
að dýpka höfnina og smíða flot-
bryggjur. Jón Kristjánsson sagðist
ekki vita hvenær hafist yrði handa
viðþannþáttverksins. S.dór
Við lækkum
ferðakostnaðinn -
Með raðgreiðslum
Veraldar kemst þú til
Benidorm fyrir aðeins
kr. 8.176,-‘
á mánuði - vaxtalaust!
Þaö bjóöa ekki aðrir betur. Með raðgreiðslum Veraldar hefur tekist að lækka
ferðakostnaðinn og gera öllum kleift að kómast í fríið með þessu þægilega og ódýra
greiðsluíyrirkomulagi. Þú greiðir með greiðslukorti og um hver mánaðamót er svo
greiðslan skuldfærð á reikninginn þinn.
HJÁ VERÖLD FÆRÐU MEIRA FYRIR PENINGANA
FiRBAMIflSIÖfllN
AUSTURSTRÆTI 17, SÍMI 622200, OPIÐ 9-6
^ Verð í 2 vikur í júní miðað við 4 í íbúð á Europa Center, 6 afborganir.
Torre Levante
flábær aöbúnaður í sumarffíinu.
Myjar ibúðir, allar
með loftkælingu.
Verð. aðeins kr,
42.500
fyrir manninn
2 fullorðnir m. 2 börn í júní
Europa Center
Þessi vinsæli gistístaður gölskyldunnar
á Benidorm
Einstök staðsetning ^ CD
Verð aðeins kr.
fyrir manninn
2 fullorðnir m. 2 börn í júní