Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1989, Side 6
6
MÁNUDAGUR 24. APRÍL 1989.
Fréttir
Sókn semur á BSRB-nótum við ríki og Reykjavíkurborg:
Við teljum þetta
vera góðan samning
- segir Þórunn Sveinbjömsdóttir, formaöur Sóknar
Starfsmannafélagið Sókn undirrit-
aði nýjan kjarasamning við ríki,
Reykjavíkurborg og sjálfseignar-
stofnanir á laugardaginn. „Við erum
tiltölulega ánægð með þessa samn-
inga sem voru gerðir á sömu nótum
og BSRB hefur nýverið gert. Viö vor-
um búin að halda fundi fyrr í vetur
og þetta var einnig rætt á aðalfundi
í síðustu viku,“ sagði Þórunn Svein-
björnsdóttir, formaður Sóknar, í
samtali við DV.
„Miðað við þær viöræður, sem við
höfum átt með ASÍ, teljum við þetta
góöan samning. Við erum vel sett
með að hafa náð honum. Ég vil geta
þess að sum félög eru nú að afla sér
verkfallsréttar vegna þess aö þau fé-
lög vilja ná þessum sömu kjörum en
fá ekki - þannig að við teljumst góð
með þennan samning.
Gunnar Eydal, sem er í samninga-
nefnd Reykjavíkurborgar, segir að í
þessum samningi sé um sömu
áfangahækkanir að ræða og í BSRB-
.samningnum. „Þetta eru m.a. ákveð-
in atriði um aldurshækkunarþrep í
lægstu launaflokkunum. Samkvæmt
BSRB-munstrinu gefur það lægstu
launaflokkunum mest,“ segir Gunn-
ar. „Ég vona bara að allir geti vel við
unað.“
Á miðvikudagskvöid munu félags-
menn Sóknar ganga til atkvæða-
greiðslu. Rúmlega tvö þúsund félag-
arhafaatkvæðisrétt. -ÓTT
Flugmenn og Flugleiðir:
Viðræður
enn í gangi
Viðræöur fulltrúa flugmanna og
Flugleiða eru enn í gangi og stefnt
að því að leysa máhn áður en nýja
vélin kemur heim 6. maí,“ sagði Ein-
ar Sigurðsson, blaðafulltrúi Flug-
leiða, við DV.
„Það er verið að ræða vinnutíma á
nýju vélunum þar sem aðeins tveir
eru í flugstjómarklefanum í stað
þriggja eins og á hinum vélum félags-
ins. Það er ekkert einhlítt varðandi
vinnutímann þar sem tillit þarf að
taka til margra þátta eins og hvíldar-
tíma , mannaskipta og fleiri atriða.
Vinnutímareglur eru mismunandi
eftir vélum, löndumogflugleiðum."
Kristján Egilsson, formaður Félags
atvinnuflugmanna, sagði í samtali
við DV að ekki væri hægt að flokka
viðræður aðilanna sem ágreining
enn sem komið er. Hefðu viðræðurn-
ar að engu leyti snúist um krónur
og aura.
„Við höfum verið að bera okkur
saman við reglur annars staðar. Það
er nýtt fyrir okkur að einungis tveir
séu í flugstjómarklefa. Þó sjálfvirkn-
in í nýju vélunum sé mun meiri kem-
ur hún ekki í stað flugvélstjórans,“
sagði Kristján.
Að sögn Éinars og Kristjáns hefur
ekki komið til- tals eða verið settar
fram kröfur um að flugmennimir
tveir á nýju vélunum skipti með sér
launum flugvélstjórans, þess þriðja.
-hlh
Kirkjubæjarklaustur:
Litlir bflar
kolfastir
í leðjunni
Valgeir Ingj Ólafeson, DV, Haustri;
Mikið ófremdarástand hefur ríkt
að undanfómu hér um slóðir í vega-
málum. Fyrir viku var nær ófær leið-
in milli Víkur og Klausturs vegna
aurbleytu svo að litlir bílar sátu kol-
fastir í leðjunni. Verst var vegurinn
farinn í Skaftártimgu svo og einnig
í Landbroti hér vestan Klausturs.
Þótti ýmsum sem umsjónarmenn
vegagerðarinnar í Vík sýndu málinu
lítinn áhuga því þeir töldu ekki borga
sig að gera við veginn. Á mánudag
létu þeir þó til skarar skríða og settu
í flest hvörfin en skildu nokkur eftir
svo htlu bílamir gætu setið fastir.
Fór líka svo að einn ferðalangur
þurfti að eyða stómm hluta aðfara-
nætur þriðjudags fastur í drullu-
hvarfi á þjóðvegi nr. 1 í Skaftártungu.
Heldur hafði hlákan líka verið of
mikil fyrir margumræddan veg yfir
Mýrdalssand þennan sama sólar-
hring því stórt skarð hafði myndast
í nýja veginn svo menn þurftu að
hossast á holóttum gamla veginum
yfir Sandinn.
Gömlu fjárhúsin brennd. DV-mynd SÆ
Djúpivogur hreinsaður
fyrir stórafmælið í sumar
Sgurður Ægisson, DV, Djúpavogi:
Nú höur aö 400 ára verslunaraf-
mæh Djúpavogs en þaö verður sem
kunnugt er hinn 20. júní í sumar.
Fyrir skömmu lét afmæhsnefndin
bréf út ganga og fór þess á leit við
staðarbúa að þeir fjarlægöu aha þá
hluti sem til óprýði þættu, s.s. girð-
ingar að falli komnar, skúra og msl,
og tækju sér jafnvel pensil í hönd.
Undirtektir voru góðar og má þessa
dagana sjá fólk að bardúsa í kringum
hús sín, fága og prýða.
Meira að segja tóku menn sig til
hér einn daginn og kveiktu í gömlum
fjárhúsum sem reyndar hafði staðið
111 að láta hverfa, enda fyrir löngu
búið að slátra öllu þvi fé sem eitt sinn
gisti þar. Má því segja að hendur
manna standi fram úr ermum þessa
dagana hér eystra.
Veiðivon
Fengu sex punda grá-
lúsugan lax í Rangá
Þótt ennþá séu nokkar vikur
þangað th fyrstu laxarnir byrja að
veiðast í laxveiðiánum hefur sá
fyrsti komið á land.
„Þetta var 6 punda lax og veiddist
í Rangá. Fiskurinn var nokkuð lú-
sugur og nýkominn úr sjó,“ sagði
tíðindamaður okkar á bökkum
Rangár en laxinn veiddist fyrir
nokkmm dögum. „Menn hahast að
því fyrir austan að laxinn hafi kom-
iö úr kvíaeldi í Vestmannaeyjum,
sloppið þaðan, en þetta er óvenju-
legur tími, því er ekki að neita,“
sagði tíðindamaðurinn ennfrem-
ur.
Veiöin í Rangánum um helgina
var þokkaleg og veiddist meðal
annars einn 7 punda urriði á svæði
fiögur.
Eitthvað af laxi hefur gengið í
Rangárnar og eru þeir farnir að
stökkva fossa og flúðir. Fróðir
menn halda að þetta séu laxar úr
kvíaeldi í Vestmannaeyjum.
DV-mynd GB
„Veiðin í Geirlandsánni hefur
minnkað en sá stærsti í vor kom
fyrir nokkmm dögum, 14 punda
sjóbirtingur," sagði tíðindamaður
um Geirlandsána í gærdag en veið-
in var þar feiknagóð á tímabhi.
„Það var Konráð Lúðvíksson lækn-
ir sem veiddi 14 punda fiskinn,"
sagði tíðindamaðurinn.
I Vatnamótunum hefur veiðin
gengið vel og em komnir á mihi
130 og 140 fiskar af öhum stærðum.
Hollin hafa verið með 35, 43 og 50
fiska mest.
í Skaftá hefur verið aö veiðast
einn og einn fiskur, þar eru þeir
líka vel vænir. Sá stærsti sem við
höfum frétt af var 11,5 punda en
nokkir 7,8 og 9 punda hafa fengist.
-G.Bender
Sandkom dv
Hélt aö Stefán...
Andrés Kret-
insson, bóndi á
KvíabekkíÓl-
afsfirði.sendi
Steingrinú
Sigfussyni
landbfmaðar-
ráðherraopið
bréfíDegiá
Akureyriísíö-
ustuviku.
Andrésgerði
sérlítiðfyrirí
bréfinúogdró
sundurogsam-
an í háði þá ákvörðun Steingríms að
láta telja allan bústofn bænda. Lýsti
hann hvemig sú talning fór fraxn á
bæ sínum og var það skrautleg lýs-
ing. - Andrés segir einnig i bréfinu
frá þvi að hann hafi í síðustu kosning-
um kosið Stefán Valgeirsson og
hvernig hann hyggist veija atkvæði
sínu í næstu kosningum: „Ég ætla að
kjósa þig í næstu kosningum, ég hef
nú stundum gert þaö áður en í síð-
ustu kosningum kaus ég karlinn
hann Steián gamla..Þaö var nú eins
konar líknarstarf. Ég hélt nefiiilega
að karlinn ætlaði að fara að deyja... “
sagði Andrés í bréfinu til ráðherrans.
GamliLund-
uráAkureyri
erhússemað-
ailegaernotað
týrirmyndlist-
arsýningarog
hafamargh
þekktirog
minnaþekktir
listamenn
haldiðsýningar
þaraðundan-
fórnu. N'ú um
helginavarþó
boðiðuppá
annað þar því auglýst var að þar
myndi dönsk nuddkona verða að
störfúm. Nú dettur líklega mörgum í
hug að kona þessi ætli að bjóða upp
á hiðþekkta „danskanudd“ en við
nánari athugun reyndist svo ekki
vera. Nuddkomn dímska ætlaði
neinilega að kynna austurlenskar
sjúkdómsgreiningar og lækningar en
ekki nuddið sem sumir kaupa sér i
, Austurgötu" í kóngsins Kaup-
mannahöfii.
Barátta um
brauðið
Þáerbúiðaö
auglýsa stöðu
dómkirkju-
prestsiReykja-
víklausatil
umsóknaroger
hættviðað
margirhugsi
gotttílglóðar-
innar. Staöan
þykirvera
nokkuð „feit“
hvaðvarðar
tekjuren að
aukierþetta
talsverð virðingarstaða. Ekkihefur
farið hátt hverjir hyggist sækja um
þessa stöðu. Hjálmar Jónsson, pró-
íastur á Sauðárkróki, hetúr þó ákveð-
ið að sækja um stöðuna og munu víst
örugglega einhverjir fleiri senda inn
umsóknh næst daga.
Ekki uppselt
Hin „heims-
íræga“ hljóm-
sveit Sykur-
molarnirhólt
tónleikaáAk-
ure\Ti í síðusm
viku.Elckivirö-
isthljómsveitin
vera neitt gif-
urlegavinsælí
höfuðstaö
Noröurlands
þvímikiðvant-
aðiuppáað
íþróttaskeram-
an væri fullsetin er tónleikamir fóru
fram og er Skemman þó ekki í flokki
stærri tónleikahúsa landsins. Þetta
rainniróneitanlegaá að hin „heims-
fræga“ hljómsveitin okkar, Mezzo-
forte, lék yfirleitt fyrir hálftómum
tónleikasölum áður en heimsfrægðin
bankaði á dymar - og jafnvel einnig
eftirþaö.
Umsjón: Gylli Kriotjánsson