Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1989, Page 43

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1989, Page 43
MÁNUDAGUR 24. APRÍL 1989. 43 i> v Fólk í fréttum Finnbogi G. Kjeld Finnbogi G. Kjeld, forstjóri Saltsöl- unnar, er annar aðalmaðurinn á bak við björgun danska skipsins Mariane Danielsen. Hann hefur ver- ið í fréttum DV vegna samningavið- ræðna við Pólveija um fullnaðar- viðgerð á skipinu. Finnbogi Guð- mundur er fæddur 25. október 1938 í Rvík og ólst upp í Innri-Njarðvík. Hann var háseti á togurum og flutn- ingaskipum 1955-1961, lauk fiski- mannaprófi 1959 og farmannaprófi frá Stýrimannaskólanum í Rvík 1961. Finnbogi var stýrimaður 1961-1972, stofnaði skipafélagið Vík- ur hf. í Rvík 1969 og hefur lengst af verið forstjóri og stjórnarformaður. Hann hefur verið forstjóri og stjórn- arformaður Saltsölunnar hf. frá 1978, stjómarformaður Pólarlax hf. frá stofnun 1980 og Fiskeldis hf. frá stofnun 1987. Finnbogi kvæntist 10. nóvember 1962, Önnu Jónu Þórðar- dóttur, f. 14. maí 1939, hjúkrunar- fræðingi. Foreldrar Önnu em Þórð- ur Sigurbjömsson, deildarstjóri í Tollgæslunni í Rvík, og kona hans, Ragnhildur Einarsdóttir. Böm Finnboga og Önnu eru Ragnhildur, f. 24. október 1965, ritari hjá Skipafé- laginu Víkum, bam hennar er Anna Andrea Jónsdóttir, Ragnhildur, er trúlofuð Jónasi Ragnari Helgasyni alþjóðastjómmálafræðingi, Þórður, f. 10. júní 1967, d. 23. júní 1967, Jóna Guðrún, f. 13. desember 1969, nemi í MH, sambýlismaöur hennar er Jón Emil Magnússon viðskiptafræðing- ur, Þóra Ehsabet, f. 18. júní 1971, Þórður, f. 26. september 1972, Jens Einar, f. 27. febrúar 1976, Jóhann, f. 25. júh 1979 og Gunnar Guttorm- ur, f. 3. apríl 1982. Systkini Finnboga eru María, f. 2. mars 1932, fóstra, Hanna, f. 16. des- ember 1933, matreiðslukennari, Kristbjörg, f. 18. júní 1935, leikkona, gift Guömundi Steinssyni rithöf- undi, Matthías, f. 19. desember 1936, læknir, kvæntur MarceUu Iniguez lækni og Kristjana Hanna, f. 17. júh 1944, d. 2. október 1984. Foreldrar Finnboga vom Jens Kjeld, smiður í Innri-Njarövík, og kona hans, Jóna Guðrún Finnboga- dóttir. Jens var sonur Matthíasar Elduvík, útvegsb. í Funningsbotni á Austurey í Færeyjum, og konu hans, Jóhönnu Elduvík, f. Johanns- en. Jóna Guðrún var dóttir Finn- boga Þórðar, útvegsb. í Tjamarkoti í Innri-Njarðvík, bróður Guömund- ar, afa Hauks Helgasonar, aðstoðar- ritstjóra DV. Finnbogi var sonur Guðmundar, b. í Tjarnarkoti, Gísla- sonar. Móðir Guðmundar var Guð- rún Jónsdóttir, b. í Grímsfjósum í Stokkseyrarhreppi, Bjarnasonar, og konu hans, Guðrúnar Helgadóttur, b. í Brattsholti, Sigurðssonar, bróð- ur Jóns, afa Jóns forseta. Móðir Jónu var Þorkehna, systir Margrétar, móður Jóns M. Guðjóns- sonar, fyrrv. prests á Akranesi. Þor- kehna var dóttir Jóns b. í Hópi í Grindavík, bróður Tómasar, afa Guðlaugs Þorvaldssonar ríkissátta- semjara. Jón var sonur Guðmund- ar, b. á Úlfsstöðum í Landeyjum, Bjarnasonar, og konu hans, Jórunn- ar ljósmóður Jónsdóttur, b. á Álfta- hóli, Guðmundssonar. Móðir Þor- kehnu var Guðrún Guðbrandsdóttir á Vestri-Geldingalæk á Rangárvöll- um, Jónssonar, b. á Gaddastöðum á Rangárvöllum, Sveinssonar. Móðir Guðrúnar var Ehn Jónsdóttir, b. á Vatnsskaröshólum í Mýrdal, Þor- steinssonar, b. á Sólheimum í Mýrd- al, Þorsteinssonar, b. og smiðs á Vatnsskarðshólum, Eyjólfssonar. Móðir Þorsteins Þorsteinssonar var Finnbogi G. Kjeld. Karítas lj ósmóðir J ónsdóttir, klausturhaldara á Reynistað, Vig- fússonar, og konu hans, Þórunnar Hannesdóttur Scheving, sem síðar giftist Jóni Steingrímssyni eld- presti. Móðir Jóns var Ehn Jóns- dóttir, b. á Hvoh, Eyjólfssonar, bróð- ur Þorsteins á Vatnsskarösshólum. Móöir Elínar var Valgerður, lang- amma Jóns Helgasonar, prófessors og skálds í Kaupmannahöfn. Val- gerður var dóttir Sigurðar, b. í Steig í Mýrdal, Ámasonar, og konu hans, Þórunnar Þorsteinsdóttur ljósmóð- ur, systur Þorsteins á Sólheimum. Afmæli Hjalmar S. Sigmarsson Hjálmar S. Sigmarsson, b. að Hóla- koti í Hofshreppi í Skagafirði, er sjö- tugurídag. Hjálmar fæddist í Svínavallakoti í Unadal í Skagafirði. Hann kvæntist 9.5.1954 Guðrúnu Hjálmarsdóttur húsmóður, f. 23.12. 1928, dóttur Hjálmars Pálssonar, b. að Kambi, og Steinunnar Hjálmars- dótturhúsmóður. Hjálmar og Guðrún eiga tíu börn. Þau eru Steinunn, gift Hafsteini Ragnarssyni og eiga þau þrjú börn; Kristjana Hjálmarsdóttir, gift Valdi- mar H. Birgissyni og eiga þau tvö börn og eitt barnabam; Guömund- ur, kvæntur Heiðdísi Andradóttur og eiga þau eitt barn; Hahdór, kvæntur Huldu Gísladóttur og eiga þau tvö böm; Guðrún, gift Grétari Jakobssyrú og eiga þau þrjú börn; Ingibjörg Ásta, gift Siguröi Þorleifs- syni og eiga þau þrjú böm; Jakobína Helga, gift Þórami Þórðarsyni og eiga þau þrjú börn; Guðfinna Hulda, gift Herði Ragnarssyni og eiga þau tvö börn; Haraldur Árni og hann á eitt barn, og Hjálmar Höskuldur, kvæntur Svanfríði Gróu Guðnadótt- ur. Hjálmar á sjö systkini. Þau eru Guðmundur, átti Unu Þorgilsdóttur; Ingólfur, átti Halldóru Márusdóttur; Finnbogi, átti Hjördísi Gunnars- dóttur; Sigurbjöm, átti Guðmundu Eðvarðsdóttur; Vilhelm, átti Vald- ísi; Jakob, átti Sólveigu Magnús- dóttur, og Valgarð, átti Mörtu. Foreldrar Hjálmars vom Sigmar Þorleifsson, b. í Svinavallakoti í Unadal í Skagafirði, síðast útgerðar- maður á Hofsósi, f. 15.10.1889, d. 27.2.1968, og kona hans, Kristjana Sigríður Guðmundsdóttir, húsmóö- ir þar, f. 27.6.1888, d. 11.3.1944. Kristjana var dóttir Guðmundar, b. í Svínavallakoti, Kristjánssonar, b. að Snorragerði í Sléttuhlíð, Guð- mundssonar, b. að Skarðdal, Þórð- arsonar, b. í Dalabæ, Gamahelsson- ar. Móðir Guðmundar í Skarðdal var Þuríður Bjarnadóttir. Móðir Kristj- áns í Snorragerði var Sigríður, dótt- ir Þorfinns Þorlákssonar og Guð- rúnar Þórarinsdóttur. Móðir Guð- mundar í Svínavallakoti var Mál- fríður Jónsdóttir, vinnukona að' Lambanes-Reykjum. Móðir Kristj- önu var Jakobína Jóhannsdóttir. Sigmar var sonur Þorleifs, b. að Hrauni á Hofsströnd, Pálssonar, b. í Auðnum í Ólafsfirði, Jónssonar, b. á Vatnsenda, Steingrímssonar, b. á Burstabrekku, Steingrím?sonar, b. að Þverá í Ólafsfirði, Oddssonar, b. að Reykjum í Ólafsfirði. Móðir Steingríms á Þverá var Guðrúp Steingrímsdóttir, b. á Reykjum, Þorgrímssonar. Móðir Steingríms á Burstabrekku var Guðrún Magnúsdóttir, b. á Þór- oddsstöðum, Hálfdánarsonar, og Sesselju, dóttur Brands, hreppstjóra Hjálmar S. Sigmarsson í Skeiði í Fljótum, Guðmundssonar og Guðnýjar Sigfúsdóttur, b. á Skeiði, Sveinssonar. Móðir Jóns á Vatnsenda var Sig- ríður Magnúsdóttir, b. á Ósbrekku, Andréssonar. Móðir Páls var Guðrún Hahdórs-' dóttir, b. í Garði í Ólafsfirði, Ingi- mundarsonar, b. í Garði, Jónssonar. Móðir Þorleifs var Þuríður Bjamadóttir, b. á Staðarhóli, Ara- sonar, b. í Leyningi, Sveinssonar, prests á Knappstöðum, Jónssonar í Tungu í Stíflu, Jónssonar. Móöir Sigmars var Margrét Ing- ólfsdóttir, hins sterka, b. í Naustum og víðar, Sigmundssonar og konu hans, Ingibjargar Benjamínsdóttur. Ingi Kristinn Stefánsson Ingi Kristinn Stefánsson tannlækn- ir, Seiðakvísl 28, Reykjavík, er fer- tugurídag. Ingi fæddist í Neskaupstað og ólst þar upp hjá fósturforeldrum sínum, Ingveldi Sveinsdóttur og Kristni Olsen, vélstjóra á Neskaupstað, en Kristinn var ömmubróðir Inga. Ingi lauk stúdentsprófi frá MA 1968 og tannlæknaprófi frá HÍ1974, en tannlækningaleyfi öðlaðist hann 1975. Hann var aðstoðartannlæknir hjá Ólafi G. Karlssyni 1974-77 en hefur síðan starfrækt eigin stofu. Ingi kvæntist 13.9.1969, Valgerði Jónu Gunnarsdóttur, söngkennara í Reykjavík, f. 10.6.1948. Foreldrar hennar: Gunnar Bjömsson, hús- vörður í Reykjavík og Ragnheiður Jónsdóttir baijkaritari. Börn Inga og Valgerðar eru Gunn- ar Trausti, Jón Kristinn og Hanna Ragnheiður Foreldrar Inga: Stefán Sigbjörns- son sjómaður, f. 16.3.1924, og Anna María Guðmundsdóttir Bachmann, verslunarkona á Akureyri, f. 1.1. 1930. Foreldrar Stefáns: Sigbjörn Bene- dikt Sveinsson, trésmiður á Fá- skrúðsfirði, og kona hans, Helga Sigurbjörg Stefánsdóttir húsmóðir. Foreldrar Önnu Maríu: Guð- mundur Jónsson, b. á Hrauni á Reyðarfirði, og kona hans, Guðrún Jónína Olsen húsmóðir. Ingi Kristinn Stefánsson. Brúðkaups- og starfsafmæli Ákveðið hefur verið að birta á afmælis- og ættfræðisíðu DV greinar um einstaklinga sem eiga merkis brúðkaups- eða starfsafmæli. Greinarnar verða með áþekku sniði og byggja á sambærilegum upplýsingum og fram koma í afmælisgreinum blaðsins en eyðublöð fyrir upplýsingar afmælisbarna liggja frammi á afgreiðslu DV. Upplýsingar varðandi brúðkaups- eða starfsafmæli verða að berast ættfræðideild DV með minnst þriggja daga fyrirvara. Það er einkar mikilvægt að skýrar, nýlegar andlitsmyndir fylgi upplýsingunum. Til hamingju með afmælið 90 ára Ásmundur Jónasson, Unufelh 31, Reykjavík. 24. apríl Sleitustöðum II, Hólahreppi. Sigurgeir Júlíusson, Norðurvegi 29, Hrísey. Emilia Kristjánsdóttir, Skeggjagötu 14, Reykjavík. 70 ára 40 ára Jóhanna Jónsdóttir, Víðihvarami 13, Kópavogi. Hún verður að heiman á afraæhsdaginn. 60 ára Óli B. Gunnarsson, Holtagötu 12, Akureyri. Jón Sigurðsson, Auður Björnsdóttir, Kjarrmóum 26, Garöabæ. Guðrún Ólafsdóttir, Búagrund l, MosfeÚsbæ. Óli Ólafsson, Beykilundi 2, Akureyri. Sigríður Eysteinsdóttir, Fjólugötu 21, Reykjavík. Margrét Eðvalds, Unufehi 44, Reykjavik. Rannveig Jósepsdóttir. Rannveig Jósepsdóttir Rannveig Jósepsdóttir, fyrrv. starfsmaður hjá Gefjun á Akureyri, til heimihs að Helgamagrastræti 17, Akureyri, er hundraö ára í dag. Rannveigfæddist á Eyrarlandi við Akureyri ogólst þar upp í foreldra- húsum fyrstu níu árin en fór á tí- unda árinu í sveit að Kroppi í Eyja- firði og ílengdist þar hjá Davíð Jóns- syni, b. og hreppstjóra að Kroppi, og konu hans, Sigurlínu Jónsdóttur húsfreyju. Rannveig var hjá þeim hjónum fram undir tvítugt en fór þá í kaupavinnu að Fjósatungu tvö sumur. Þá var hún í vist hjá Pétri Péturssyni, kaupmanni á Akureyri, og konu hans, Þórönnu Pálmadótt- ur. Rannveig hóf síðan störf hjá ullar- verksmiðjunni Gefiuni 1926 og starf- aði þar í rúm fiörutíu ár. Dóttir Rannveigar er Freyja Jó- hannsdóttir en hún starfaði í fiölda ára hjá fataverksmiðjunni Heklu á Akureyri. Rannveig býr hjá dóttur sinni en þær mæðgur hafa ætíð haldið saman heimili. Rannveig var yngst fiögurra systkina. Systkini hennar voru Hasnína, sem lést í barnæsku; Lau- fey, lengi húsfreyja í Eyjafirðinum, og Jóhann, lengi b. að Hömrum við Akureyri. Foreldrar Rannveigar voru Jósef- ína Guðmundsdóttir og Jósep Jó- hannsson, b. að Naustum og Höm- rum. Tilmæli til afmælisbama Blaðið hvetur afmælis böm og aðstandendur þeirra til að senda því myndir og upplýsingar um frændgarð og starfssögu þeirra. Þessar upplýsingar þurfa að berast í síðasta lagi þremur dögum fyrir af mæbð. Munið að senda okkur myndir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.