Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1989, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 8. MAÍ 1989.
Fréttir
Bændur á Skaga og í Fljótum
óttast mikið kal á túnum
Þórhallur Ásraundsson, DV, Norðurl. vestra;
„Mér sýnist allt benda til þess að
þetta verði kalár og á einstaka svæð-
um geti kalið orðið mjög mikið. Veðr-
átta hefur verið dæmigerð, svell
komu snemma á og síðan kom snjór
ofan á, sem kom í veg fyrir bráðnun.
Víða eru svell búin aö liggja á túnum
í meira en þrjá mánuöi en það er
hámark, sem við teljum að grös haldi
lífl,“ sagði Bjarni Guðleifsson ráðu-
nautur en hann hefur ferðast víða
um Norðurland og tekið hnausa. Nið-
urstaðna úr þeim rannsóknum er að
vænta innan skamms.
Vitað er að bændur á Skaga og í
Fljótum eru mjög uggandi því svell
hafa legið á túnum síðan í janúar. í
Austur-Húnavatnssýslu kemur
Svínadalurinn næst Skaganum hvað
hættu á kali snertir en annars er
útlit fyrir að sýslan sleppi nokkuð
vel.
í Vestur-Húnavatnssýslu eru þrír
staðir aðallega í hættu, svæði í Vest-
urhópi, Miðfirði og Hrútafirði. Sýnu
verst er ástandið á Ströndum. Þar
kom klaki snemma og enn er þar
allt á kafi í fónn. Útlit er þó mun
betra á Norðurlandi vestra þegar á
heildina er litin en á Norðurlandi
eystra.
Svavar Gestsson menntamálaráðherra bjartsýnn ef samið verður strax:
„Þad verður allt keyrt á fullu
oq skólaárið mun bjargast“
Svavar Gestsson menntamála-
ráðherra sagöi í morgun að skólaá-
rið bjargaðist ef samningar tækjust
á milli ríkisins og háskólamanna
hjá ríkinu þessa sólarhringana.
Að sögn Svavars byrja skólar
strax ef samið verður þessa sólar-
hringana.„Það verður allt keyrt á
fullu og skólaárið mun bjargast."
Dragist verkfallið eitthvað á lang-
inn úr þessu telur Svavar að allt sé
í upplausn og skólaárið í hættu.
„Það sem nemendur voru búnir að
læra þegar verkfallið skall á verður
samt viðurkennt meö einhverjum
hætti. Það er ljóst.“
Náist samningar í dag eða á
morgun streyma nemendur í skól-
ana og kennsla hefst. Stúdentar
munu taka sín stúdentspróf og aðr-
ir framhaldsskólanemar fara líka í
sín próf. Samræmdu prófin svo-
nefndu í níunda bekk grunnskól-
ans eru þó úr sögunni og það fyrir
löngu.
Svavar heldur þessa dagana stöð-
uga fundi með skólamönnum.
Hann verður til dæmis á fundi með
fræðslustjórum í hádeginu í dag.
Um þaö hvort skólar hefjist fyrr
í haust eða að möguleiki sé á að
kenna lengur í júní, vildi Svavar
ekki tjá sig um í morgun. „Þa
ýmsir kostir til skoðunar di
verkfallið á langinn. Ég vil líti
þá ræða núna, en ákvarðanir'
hins vegar teknar strax og í
liggur fyrir.“
Gunnar Martin Úlfsson við DV-seglskipið sem er farið að taka á sig mynd í bílskúrnum heima hjá honum. Gunnar er ákveðinn í að leggja í heimsmets-
siglingu sína milli Reykjavíkur og Akraness um miðjan júní. DV-mynd Brynjar Gauti
DV-skipið tekur á sig mynd
„Bygging skipsins gengur sam-
kvæmt áætlun. Ég er búinn að líma
þijú lög af DV á skrokkinn og hef
snúið skipinu við. Nú klára ég að
byggja grindina áður en ég held
áfram að klæða með dagblaðspapp-
ímum. Það geri ég síðan þar til skip-
iö verður mannhelt," sagði Gunnar
Martin Úlfsson í samtali við DV.
Eins og DV skýrði frá á dögunum
ætlar Gunnar að sigla á papírssegl-
skipi milli Reykjavíkur og Akraness
og komast þannig í Heimsmetabók
Guinnes. Gunnar vann af fullum
krafti við skipið í bílskúrnum heima
hjá sér þegar DV leit viö í gær. Hann
sagöist halda að tímaáætlunin stæð-
ist en hann stefnir á að leggja í’ann
um miðjan júní.
„Ég tek mest af þverböndunum úr
þegar ég hef klárað skrokkinn nema
þar sem mastrið verður. Þar verð ég
að styrkja skipið sérstaklega. Mastr-
ið verður líklega úr pappahólkum en
seglið verð ég að hafa úr taui. Það
verður gamaldags þversegl frekar en
nútímasegl. Ég þarf bara að kynna
mér hvemig það er útbúið og hvem-
ig á að sigla með það.“
í tengslum viö siglinguna ætlar
Gunnar að safna fé í minningasjóð
Úlfs Gunnarssonar, föður síns, sem
var yfirlæknir við sjúkrahúsið á
ísafirði. Mun féð þá ganga til nauð-
synlegra tækjakaupa. En hvemig
hafa viðbrögðin verið?
„Þau hafa bara verið góð hingað
til. Manni er strítt svolítið af sínum
nánustu en það er nauðsynlegt að
hafa eitthvert glens í kringum þetta.“
-hlh
Akureyrarbær mun að einhverju
Jeyti koma framhaldsskólanem-
endum tll aðstoðar varðandi
sumarvinnu
Akureyri:
Vel horfir
með sumar-
vinnuna
Gj® Knstjánsson, DV, Akureyri:
„Viö gerðum athugun á því
hvernig ástandið væri hjá nem-
endum framhaldsskólanna varð-
andi sumarvinnu. Þessi athugun
var gerð með aðstoð rektora
Menntaskólans og Verkmennta-
skólans, og gróf niöurstaða er
þannig að um 70% nemendanna
em búin að fá vinnu í sumar eða
loforð um vinnu.“
Þetta sagði Þorleifur Jónsson,
starfsmaður atvinnumálanefhd-
ar Akureyrai'bæjar, er DV spuröi
hann um útlit með sumarvinnu
fyrir framhaldsskólanema á Ak-
ureyri.
„Okkur létti mjög mikið við að
fá þá vitneskju að atvinnuástand-
ið er raunverulega ekki verra hjá
framhaldsskólanemum en þaö
hefur verið undanfarin ár. Það
er staðreynd aö það er allt annað
ástand hér en á Reykjavíkur-
svæðinu þar sem er alvarlegur
samdráttur, við erum mun betur
sett hér,“ sagöi Þorleifur.
Rætt haföi verið um að Akur-
eyrarbær myndi að einhverju
leyti koma framhaldsskólanem-
endum til aðstoðar varðandi
sumarvinnu ef ástandiö reyndist
vera jafhslæmt og menn hugöu.
Þorleifur sagöi aö til þeirrar aö-
stoðar þyrfti ekki að'koma sam-
kvæmt þessum niðurstöðum,
nema e.t.v. gagnvart 15-16 ára
nemendum. „Það eru alltaf
vandamál gagnvart unglingum á
þeim aldri sem eru hættir aö vera
böm en eklci orðnir fullorðnir,“
sagði Þorleifur.