Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1989, Blaðsíða 43
MÁNUDAGUR 8. MAÍ 1989.
43
Fólk í fréttum
Anna Sigurðardóttir
Anna Sigurðardóttir, forstöðu-
maður Kvennasögusafns íslands,
hefur nýlega samið bókina Allt
hafði annan róm áður í páfadóm
sem er saga nunnuklaustranna á
íslandi. Anna er fædd 5. desember
1908 á Hvítárbakka í Borgarfirði og
ólst þar upp. Hún var í Kvennaskó-
lanum í Rvík 1924-1926 og í náms-
dvöl í Þýskalandi 1929-1930. Hún var
á námskeiðum í ensku og í verslun-
arbréfaskriftum á ensku í Rvík.
Anna vann á bæjarsímanum í Rvík
1927-1929 og 1930 og var skrifstofu-
og vferslunarmaður í Rvík 1931-1939.
Hún var skrifstofumaður á Eskifirði
1939-1941 og enskukennari í Náms-
flokkum Eskiijarðar 1944-1947 og
unghngaskólanum á Eskifirði
1953-1957. Hún var stofnandi og for-
maður Kvenréttindafélags Eski-
íjarðar 1950-1957, skrifstofumaður
hjá Kvenréttindafélagi íslands
1958-1964 og í stjórn þess 1959-1969,
stofnandi og forstöðumaður
Kvennasögusafns íslands frá 1975.
Bókin Konur skrifa til heiðurs Önnu
Sigurðardóttur kom út 1980 og með-
al rita hennar eru Úr veröld kvenna,
Barnsfæðingar til foma, Ljósmæður
á íslandi, 1984, og Vinna kvenna á
íslandi í 1100 ár, 1985. Hún var m.a.
vegna þeirrar bókar og annarra
fræðistarfa sæmd heiðursdoktors-
nafnbót í sagnfræði af HÍ1986. Anna
giftist 29. maí 1938 Skúla Þorsteins-
syni, f. 24. desember 1906, d. 25. jan-
úar 1973, námsstjóra á Austurlandi.
Foreldrar Skúla voru Þorsteinn M.
Mýrmann, b. á Óseyri í Stöðvar-
firði, og kona hans, Guðríður Gutt-
ormsdóttir. Börn Önnu og Skúla eru
Þorsteinn, f. 22. nóvember 1940, hér-
aðsdómari á Selfossi; Ásdís, f. 30.
júní 1943, félagsfræðingur, gift Sig-
urði Karlssyni leikara, og Anna, f.
30. október 1948, fóstra, gift Barry
Wodrow, framkvæmdastjóra í Rvík.
Systkini Önnu eru Þorgrímur Víd-
alín, f. 19. nóvember 1905, er látinn,
prófastur á Staðastað, kvæntur Ás-
laugu Guðmundsdóttur: Hrefna, f.
28. október 1907, d. 21. maí 1908:
Guðmundur Axel, f. 28. aprO 1911,
d. 20. september 1931, lögfræðinemi:
Guðrún, f. 7. júlí 1912, gift Jóni Ei-
ríkssyni, lækni í Rvík: Margrét, f.
29. janúar 1914, gift Þórði Guð-
mundssyni, verslunarstjóra í Rvík:
Aðalheiður, f. 6. desember 1915, gift
Skarphéðni Magnússyni, verslun-
armanni í Rvík: Sigurmar Ásberg,
f. 18. apríl 1917, borgarfógeti í Ryík,
kvæntur Sólveigu Jónsdóttur: Ás-
laug, f. 27. janúar 1919, fóstra, gift
Hauki Hafstað, og Valborg, f. 1. fe-
brúar 1922, fyrrv. skólastjóri Fós-
truskólans, gift Ármanni Snævarr
hæstaréttardómara. Systur Önnu
samfeðra voru Kristín Lovísa, f. 23.
mars 1898, alþingismaður í Rvík,
gift Karh Bjarnasyni varaslökkvi-
liðsstjóra, og Margrét, f. 3. apríl 1901,
d. samadag.
Foreldrar Önnu voru Sigurður
Þórólfsson, skólastjóri á Hvítár-
bakka í Borgarfirði, og seinni kona
hans, Ásdís Margrét Þorgrímsdótt-
ir. Sigurður var sonur Þórólfs, b. á
Skriðnafelli á Barðaströnd, Einars-
sonar, skipstjóra og b. á Hreggstöð,-
um á Barðaströnd, Jónssonar, b. á
Hreggsstöðum, Einarssonar. Móðir
Jóns var Ástríður Sveinsdóttir,
systir Guðlaugs, langafa Páls, lang-
afa Ólafs Ólafsspnar landlæknis.
Móðursystir Önnu var Guðrún,
móðir Tómasar Á. Tómassonar
sendiherra. Ásdís var dóttir Þor-
gríms, b. á Kárastöðum á Vatns-
nesi, bróður Davíðs, afa Brynleifs
Steingrímssonar, læknis á Selfossi,
og langafa Davíðs Oddssonar. Þor-
grímur var hálfbróðir Sigurbjargar,
langömmu Guðrúnar Agnarsdóttur
alþingiskonu og Ástríðar Thoraren-
sen, konu Davíðs Oddssonar. Þor-
grímur var sonur Jónatans, b. á
Marðarnúpi, Davíðssonar. Móðir
Jónatans var Ragnheiður, systir
Sigríðar, langömmu Ingibjargar,
móður Sigurjóns Péturssonar borg-
arfulltrúa. Ragnheiður var dóttir
Friðriks, prests á Breiðabólastað í
Vesturhópi, Þórarinssonar, sýslu-
manns á Grund í Eyjaílrði, Jónsson-
ar, ættföður Thorarensenættarinn-
ar. Móðir Friðriks var Sigríður Stef-
Anna Sigurðardóttir.
ánsdóttir, móðir Jóns Espólín
sagnaritara og systir Ólafs, stiftamt-
manns í Viðey, ættfóður Stephen-
senættarinnar. Móðir Ragnheiðar
var Hólmfríður Jónsdóttir, varalög-
manns í Víðidalstungu, Ólafssonar,
lögsagnara á Eyri, Jónssonar, ætt-
fóður Eyrarættarinnar, langafa
Jóns forseta. Móðir Þorgríms var
Guðrún Benjamínsdóttir, b. í
Túngaröi, Þórarinssonar. Móðir
Benjamíns var Steinunn Björns-
dóttir, systir Sigurðar, langafa Stef-
áns frá Hvítadal. Móðir Ásdísar var
Guðrún Guðmundsdóttir, systir
Guðbjargar, móður Jóns Ásbjörns-
sonar hæstáréttardómara.
Afmæli
Magnús Óskar Ingvarsson
Magnús Óskar Ingvarsson,
kennari við Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja, til heimihs að Sólheimum
á Bergi í Keflavík, varð fertugur á
laugardaginn.
Magnús fæddist í Reykjavík en
ólst upp í Sandgerði. Hann lauk
landsprófi við Gagnfræðaskóla
Keflavíkur 1965, stúdentsprófi frá
MR1969 og stundaði nám við HÍ til
1975. Magnús var kennari vð Gagn-
fræðaskóla Keflavíkur 1975-77, við
Fjölbrautaskóla Suðurnesja frá
stofnun hans, 1976, en þar kenndi
hann stærðfræði, líffræði og heil-
brigðisfræöi fyrstu árin en hefur
eingöngu kennt stærðfræði frá
1982.
Kona Magnúsar er Ingibjörg
Ágústa Guðnadóttir, húsmóðir og
nemi í FS, f. 22.5.1952, dóttir Þór-
unnar Kristínar Pálmadóttur, sem
lést 1977, og Guðna Guðmundsson-
arenhannlést 1974.
Börn Magnúsar og Ingibjargar
Ágústu eru Agnar Þór Magnússon,
f. 8.8.1969, og Þorgerður Magnús-
dóttir,f. 18.11.1974.
Bræður Magnúsar eru Jónas
Kristján Ingvarsson, f. í nóvember
1950, d. í mars 1953; Einar Valdimar
Ingvarsson, f. 21.11.1952, málmiðn-
aðarmaður og starfsmaður hjá ís-
lenskum aðalvertökum á Keflavík-
urflugvelh, búsettur í Sandgerði,
en sonur hans og Kolbrúnar Ás-
mundsdóttur er Ævar Örn, f. 24.4.
1986.
Foreldrar Magnúsar Óskars: Ing-
var Gísli Jónasson verkamaður, f.
8.12.1895, d. 1.10.1976, ogÞorgerður
Magnúsdóttir húsmóðir, f. 6.6.1925.
Ingvar Gísh og Þorgerður bjuggu
að Tjörn í Sandgerði og síðar að
Vallargötu 19 í Sandgerði þar sem
Þorgerðurbýrenn.
Ingvar Gísh var sonur Jónasar
Tjörvasonar, b. á Sperðli, Jónsson-
ar, Jónssonar, Vilhjálmssonar,
Jónssonar á Esjubergi, Þorleifsson-
ar. Móðir Ingvars Gísla var Pálína
Einarsdóttir, b. í Gröf í Hruna-
mannahreppi, Gíslasonar. Móðir
Pálínu var Kristgerður Jónsdóttir,
b. á Tumastöðum i Fljótshhð, Páls-
sonar á Uxahrygg, ættfoður Uxa-
hryggjarættarinnar, Grímssonar.
Móðir Kristgerðar var Þuríður
Árnadóttir, b. á Lambafelh undir
Eyjafjöllum.
Þorgerður var dóttir Magnúsar,
sjómanns í Bolungarvík, bróður
Til hamingju með afmælið
80 ára 60 ára
Sigríður Kristjánsdóttir, Vogabraut 3, Hafharhreppi, A-Skafta- fellssýslu. Ragnheiður Jónsdóttir, Vogatungu 25, Kópavogi. Jakobína Kristjánsdóttir, Hnitbjörgum, Hlíöarhreppi, N-Múla- sýslu.
50 ára
Erla Ingibjörg Sigurðardóttir, Hörgatúni 7, Garöabæ.
75 ára
Sigurður Guðmundsson, Hvassaleiti 12, Reykjavík. 40 ára
Ólafia Magnúsdóttir, Deildartúni 5, Akranesi. Margrét Andrésdóttir, Hellukoti, Stokkseyri. Guðrún Hansdóttir, fyrrverandi luisfreyja á Garðsstöðum i Ógurhreppi í Norður-ísafjaröarsýslu, nú á Elliheimílinu á ísafirði. Guðný Jóukimsdóttir, Skúlagötu 78, Reykjavík. Ingibjörg Auðunsdóttir, Eikarlundi 4, Akureyri. Guðroundur Pétursson, Heiðarvegi 24, Reyðarfiarðarhreppi, S- Múlasýslu. Pétur Ágústsson, Klapparbergi 4, Reykjavík. Jón Kjartan Baldursson, Tjamargötu 1, Miöneshreppi, GuB- bringusýslu. Kristín Vilhelmsdóttir, Víöihlíö 7, Reykjavík. Brynja Friðfinnsdóttir, Núpasíðu 7, Akureyri.
70 ára
Guðrún Jóhanna Einarsdóttir, Laugarnesvegi 84, Reykiavík. Guðný Björnsdóttir, Laugarvegi 30, Siglufirði. Þörunn Ásgeirsdóttir, Bárugötu 17, Akranesi. Eyjólfur Sigurðsson, Skipasundi 75, Reykjavík. Peter Kvaran, Sólheimum 23, Reykiavík. Anna Ringsted, Þórustöðum 4, Öngulsstaöahreppi, Eyjafiarðarsýslu. Aðalsteinn Sigurgeirsson, Móasíðu 8D, Akureyri. María Hauksdóttir, Grænaási 2A, Njarðvík.
Elínar, móður Hannibals Valdi-
marssonar. Magnús var sonur
Hannibals, b. á Neðri-Bakka í
Langadal, bróður Hafliða, afa Sól-
veigar, móður Jóns Baldvins
Hannibalssonar. Hannibal var son-
ur Jóhannesar b. á Kleifum í Skötu-
firði, bróður Hafliða, afa Jóns Bald-
vinssonar, fyrsta formanns Al-
þýðuflokksins, og langafa Ingigerð-
ar, móður Þorsteins Pálssonar. Jó-
hannes var sonur Guðmundar
sterka á Kleifum, Sigurðssonar,
forföður Ólafs Þ. Þórðarsonar og
Sverris Hermannssonar. Móðir
Elínar var Sigríður Arnórsdóttir,
prests í Vatnsflrði, Jónssonar,
bróður Auðuns, langafa Jóns, föð-
ur Auðar Auðuns. Móðir Sigríöar
var Guðrún Magnúsdóttir, b. á
Neðri-Bakka, Jónssonar.
Magnús Oskar Ingvarsson.
Andlát
Katrín Viðar
Katrín Viðar, hljóðfærakaup-
maður og píanókennari, lést í
Landakotsspítala 27.4. sl.
Katrín fæddist í Reykjavík 1.9.
1895 en ólst upp á Akureyri til árs-
ins 1908 er faðir hennar lést ogfjöl-
skyldan flutti aftur til Reykjavíkur.
Hún lauk prófi frá VÍ og stundaði
síðan nám í píanóleik í Berlín í tvö
ár. Katrín var píanókennari í fjölda
ára en rak jafnframt hljóðfæra-
verslun í Reykjavík um árabil. Hún
var formaður Skautafélags Reykja-
víkur um skeið.
Fyrri maður Katrínar var Einar
Viðar, f. 15.8.1887, d. 28.5.1923,
bankaritari og söngvari í Reykja-
vík. Foreldrar Einars voru Indriði
Einarsson, rithöfundur, alþingis-
maður og skrifstofustjóri fjármála-
deildar Stjórnarráðsins, og kona
hans, Martha María Guðjohnsen
húsfreyja.
Einar og Katrín eignuðust tvær
dætur: Jórunni Viðar, f. 7.12.1918,
tónskáld og píanóleikara í Reykja-
vík, ekkja eftir Lárus Fjeldsted for-
'stjóra og eignuðust þau þrjú börn,
Lárus Fjeldsted. framkvæ'mda-
stjóra í Reykjavík, Katrínu
Fjeldsted, lækni ogborgarráðs-
manns í Reykjavík, og Lovísu
Fjeldsted, sellóleikara í Reykjavík;
Drífa Viðar, f. 5.3.1920, d. 19.5.1971,
cand. phil., barnakennari og rithöf-
undur í Reykjavík en maður henn-
ar, sem einnig er látinn, var Skúh
Thoroddsen læknir og eignuðust
þau fjögur börn, Einar Thorodds-
en, lækni í Reykjavík, Theodóru
Thoroddsen, meinatækni í Reykja-
vík; Guðmund Thoroddsen mynd-
hstarmann og Jón Thoroddsen, rit-
Katrín Viðar.
höfund og þýðanda.
Seinni maður Katrínar var Jón
Sigurðsson, f. 15.5.1895, d. 16.1.
1979, skólastjóri Laugarnesskólans
í Reykjavík. Foreldrar Jóns voru
Sigurður Magnússon, b. á Hjartar-
stöðum í Eiðaþinghá, og síðari
kona hans, Ragnhildur Einarsdótt-
ir frá Hafursá í Skógum.
Foreldrar Katrínar voru Jón
Steindór Jónsson Norðmann,
kaupmaður á Akureyri, f. 28.1.
1858, d. 1.6.1908, og kona hans, Jó-
runn Einarsdóttir frá Hraunum, f.
16.5.1871, d. 11.9.1961.
Jón var sonur Jóns Norðmanns,
prests á Barði, Jónssonar, b. á
Krakavöhum, Guðmundssonar,
bróður Vatnsenda-Rósu, og Sigríð-
ar, langömmu Sigurðar Nordals og
Valtýs Stefánssonar. Móðir Jóns
var Guðrún Guðmundsdóttir, b. í
Lönguhlíð, ívarssonar, bróður
Björns, afa Bjargar, ættmóður
Kjarnaættarinnar, langömmu
Friðriks Friðrikssonar æskulýðs-
leiðtoga. Bjöm var einnig langafi
Stefáns, afa Davíðs Stefánssonar
frá Fagraskógi. Móðir Jóns Norð-
manns var Margrét sem talin var
laundóttir Jóns Þorlákssonar,
prests og skálds á Bægisá.
Móðir Jóns Steindórs var Katrín,
systir Margrétar, móður Jóns Þor-
lákssonar forsætisráðherra. Önnur
systir Katrínar var Guðrún, amma
Sigurðar Nordals. Katrín var dóttir
Jóns, prests á Undirfelli, Eiríksson-
ar og konu hans, Bjargar, systur
Ragnheiðar, ömmu Einars Bene-
diktssonar skálds. Björg var dóttir
Benedikts Vídalíns, stúdents á
Víðimýri. Móðir Bjargar var Katr-
ín Jónsdóttir, biskups á Hólum,
Teitssonar og konu hans, Margrét-
ar Finnsdóttur, biskups í Skálholti,
Jónssonar, ættfóður Finsenættar-
innar.
Jórunn var dóttir Einars Bald-
vins, alþingismanns á Hraunum í
Fljótum, Guðmundssonar, b. á
Hraunum, Einarssonar, bróður
Baldvins þjóðfrelsismanns. Móðir
Einars var Helga Gunnlaugsdóttir,
b. í Neðra-Ási, Björnssonar, og
konu hans, Margrétar Gísladóttur,
konrektors á Hólum, Jónssonar,
bróður Katrínar á Víðimýri. Móðir
Jórunnar var Kristín, systir Gísla,
afa Einars Olgeirssonar. Kristín
var dóttir Páls, prests og skálds á
Völlum í Svarfaðardal, Jónssonar,
og konu hans, Kristínar Þorsteins-
dóttur, systur Kristínar, ömmu
Bjarna Jónssonar vígslubiskups.