Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1989, Síða 9
MÁNUDAGUR 8. MAÍ 1989.
9
Utlönd
Báðir lýsa
yf ir sigri
Bæði fulltrúar stjórnarandstöðunn-
ar og stjórnarinnar í Panama lýstu
yflr sigri í morgun í kosningunum
sem ffam fóru þar í gær. Niðurstöður
liggja ekki fyrir en kosið var um for-
seta, varaforseta, þingmenn og sveit-
arstjórnarmenn.
Sendiráð Panama í Bandaríkjun-
um lýsti yfir því að kannanir bentu
til sigurs Guillermo Endara, forseta-
efnis stjórnarandstöðunnar. Sendi-
ráðið, sem Bandaríkjastjóm viður-
kennir sem fulltrúa stjórnar Eric
Dulvalles sem Noriega steypti af stóli
árið 1988, sagði að Endara hefði hlot-
ið 55 prósent atkvæða en frambjóð-
andi stjórnarinnar Carlos Duque,
39,5 prósent. En Duque lýsti þvi afur
á móti yfir að samkvæmt könnum
stjómvalda hefði hann hlotið tæp-
lega 51 prósent en Endara um 45 pró-
sent.
Arias Calderon, varaforsetaefni
stjómarandstöðunnar, lýsti yfir sigri
í gærkvöldi, nokkram klukkustund-
um eftir að kjörstöðum var lokað en
áður en tölur birtust. „Við erum full-
viss um að fólkið hefur kosið fulltrúa
Lýðræðisbandalagsins," sagði Cald-
eron. „Sigur okkar er óvefengjanleg-
ur.“ Calderon kvaðst byggja niður-
stöðu sína á upplýsingum fengnum
frá fulltrúum stjórnarandstöðunnar
á kjörstöðum víðs vegar um landið.
Fyrir kosningar ásakaði stjórnar-
andstaöan í Panama og Bandaríkja-
stjóm Noriega hershöfðingja, sem
margir segja einræðisherra í
landinu, um víðtæk kosningasvik til
að tryggja sigur frambjóðenda
stjómarinnar. Noriega var ekki í
framboði en margir telja að kosning-
amar hafi engu að síður snúist um
hvort hann haldi völdum sínum eður
ei.
Fulltrúar stjórnarandstöðunnar
sögðu að stjórn landsins hefði haft í
frammi kosningasvik í gær. Sögðu
þeir að m.a. hefði verið dregið að
1
studio-linie
„Sindbad
sæfari“
Á átta gullfallegum
diskum lýsir Björn Wi-
inblad þessari ævin-
týralegu sjóferð.
TIL GJAFA
TIL AÐ SAFNA
ROSENTHAL-
VERSLUNIN
Laugavegi 91,
s. 18400.
opna kjörstaði til að draga úr kjör-
sókn og að skortur hefði verið á kjör-
seðlum stjórnarandstöðunnar.
Góð kjörsókn var og mynduðust
langar biðraðir víða. Fólkið hrópaði
slagorð gegn Noriega og stjórninni
að fulltrúum stjórnarinnar þegar
þeir kusu í gær. En kosningarnar
fóru þó að mestu friðsamlega fram.
Reuter
Guillermo Endara, forsetaframbjóðandi stjórnarandstöðunnar i Panama,
veifar til stuðningsmanna sinna i gær en þá fóru fram kosningar þar í landi.
Simamynd Reuter
Lactacyd hársápan
fyrir viÓkvæmt smafölkið!
Lactacyd hársápan er kjörin fyrir
viðkvæman hársvörð bama. Sam-
setning hársápunnar stuðlar að
góðri rækt hársins og yinnur gegn
húðertingu.
Húðin er í eðli sínu súr og er það
vöm hennar gegn sýklum og
sveppum. Mikilvægt er að eðlilegt
sýmstig húðarinnar raskist ekki við
þvott. Þetta þarf að hafa í huga við
val á sápu.
Flestar tegundir „venjulegrar" sápu
hafa hátt sýmstig (hátt pH-gildi,
10-11) og vinna gegn náttúrulegum
vömum húðarinnar.
Lactacyd hársápan er mild og hefur
hina góðu eiginleika Lactacyd
léttsápunnar. Lactacyd hársápan
hefur lágt pH-gildi (5,2), áþekkt
náttúmlegu pH-gildi hársvarðarijis
og eflir þar með vamir hans.
í Lactacyd hársápunni em: Lacto-
semm sem gefur hársápunni lágt pH
gildi og inniheldur vítamín, steinefni
og eggjahvítuefni; lauryl súlföt sem
gera hana að virkri sápu; Lactabas
til næringar; Cocoamid MEA sem
er mýkjandi; propylenglycol sem
mýkir hárið og viðheldur raka þess;
rotvamarefni.
Lactacyd hársápan gerir hárið létt,
mjúkt og meðfærilegt.
Lactacyd hársápan fæst með og án
ilmefna í helstu stómiörkuðum og
að sjálfsögðu í næsta apóteki.
iJist-brocades
cöinaoa jðtsirtsibi
:;iimncMir.o