Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1989, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1989, Blaðsíða 25
MÁNUDAGUR 8. MAÍ 1989. 25 Iþróttir Stóðhestastöðvarinnar. Knapi Rúna Einarsdóttir. DV myndir EJ dró til sín á þríðja þúsund áhorfendur: áhugi er á ;t í landinu hæstu einkunn 5 vetra stóðhesta • Fjögurra vetra stóðhestarnir voru sjö og komust tveir þeirra í ættbók. Meðaleinkunn þessara sjö stóðhesta var 7,70. Hæstu einkunn fékk Toppur frá F.yjólfsstöðum, undan Hrafni frá Holtsmúla og Seru frá Eyjólfsstöðum. Hann er í eigu Björns I. Stefánssonar. Toppur fékk 7,84 í aðaleinkunn, 7,81 fyrir hæfileika og 7,67 fyrir byggingu. • Reykur frá Hoftúnum, undan Ófeigi frá Flugumýri og Tinnu frá Hvoli, fékk 7,81 í einkunn. Fyrir hæfileika fékk Reykur 7,83, en fyrir byggingu 7,78. Hann er í eigu Vigdísar Guðnadóttur og systkina hennar. • Aðrir fjögurra vetra hestar voru Glæsir frá Sauðárkróki með 7,62 í aðal- einkunn, Bakkus frá Bakka með 7,45, Bláþráður frá Hrafnkelsstöðum með 7,76, Þokki frá Kílhrauni með 7,66 og Segull frá Sauðárkróki með 7,74. Þrír Þáttarsynir fenqu 1. verð- laun Sjö fimm vetra stóðhestar voru dæmd- ir þetta vorið og fengu sex þeirra 1. verð- laun. Þaö er mjög hátt hlutfall dæmdra stóðhesta. Þar af eru þrír hestanna syn- ir Þáttar frá Kirkjubæ. Meðaleinkunn var 8,06. Stígandi frá Sauöárkróki, und- an Þætti frá Kirkjubæ og Ösp frá Sauð- árkróki, stóð efstur og fékk 8,15 í eink- unn. Hann fékk 8,20 fyrir byggingu og 8,10 fyrir hæfileika. Eigandi Stíganda er Árni Árnason. • Þengill frá Hólum, undan Hervari frá Sauðárkróki og Þrá frá Hólum, fékk 8,07 í aðaleinkunn. Hann fékk 8,15 fyrir byggingu en 7,99 fyrir hæfileika. Hann er í eigu Kynbótabúsins á Hólum. • Kvistur frá Laufhóli fékk 8,04 í aðal- einkunn, 7,89 fyrir byggingu en 8,20 fyr- ir hæfileika. Hann er undan Kjarvali frá Sauðárkróki og Arabíu frá Laufhóh og' er í eigu Steingríms Vilhjálmssonar. • Goði frá Sauðárkróki fékk 8,02 í aðaleinkunn, 8,13 fyrir byggingu en 7,91 fyrir hæfileika. Hann er undan Þætti frá Kirkjubæ og Hervöru frá Sauðárkróki og er í eigu Sveins Guðmundssonar. • Kári frá Grund, undan Ófeigi frá Hvanneyri og Flugsvinn frá Bræðra- tungu fékk 8,01 í aðaleinkunn. Kári fékk 7,96 fyrir byggingu, en 8,06 fyrir hæfi- leika. Eigandi Kára er Hrs. Suðurlands. • Eldur frá Hólum fékk 8,01. í aðal- einkunn, 8,08 fyrir byggingu en 7,94 fyr- ir hæfileika. Hann er undan Þætti frá Kirkjubæ og Eldingu frá Hólum og er i eigu Stóðhestastöðvarinnar. • Háleggur frá Ási, undan Hrafni frá Holtsmúla og Ljósku frá Ási fékk 7,81 í aðaleinkunn, 7,94 fyrir byggingu og 7,67 fyrir hæfileika. Hann er í eigu Gísla Haraldssonar. • Aðrir dæmdir hestar voru: Fengur frá Reykjavík, undan Hrafni frá Holts- múla og Glóð frá Hafsteinsstöðum. Hann fékk 7,91 í aðaleinkunn, 7,75 fyrir byggingu en 8,07 fyrir hæfileika. Hann er í eigu Birgis Þorgilssonar. • Þokki frá Garði, undan Hrafni frá Holtsmúla og Moldu frá Ási, fékk 7,96 í aðaleinkunn, 7,83 fyrir þyggingu og 8,09 fyrir hæfileika. Hann er í eigu Jóns Karlssonar. • Einnig var Otur frá Sauöárkróki sýndur, en hann er með 8,21 í aðaleink- unn, 7,96 fyrir byggingu en 8,47 fyrir hæfileika. Hann er undan Hervari frá Sauðárkróki og Hrafnkötlu frá Sauðár- króki og er í eigu Sveins Guðmundsson- ar. -EJ AKreð Gíslason. • Sigurdur Gunnarsson. 'sMSm * • Þorgils Óttar leikur með lands- liðinu i A-Þýskalandi eftir viku. Svo til öruggt að Alfreð og Siggi Gunn f ari til Bidasoa Komu frá Spáni í nótt. Þorgils Óttar með landsllðinu. m m 9 Landsliösmennirnir í handknattleik, Alfreð Gíslason og Siguröur Gunnarsson, komu frá Spáni í nótt þar sem þeir litu á aðstæöur hjá spánska félaginu Bidasoa og ræddu við forráöamenn liðsins. Samkvæmt heimildum DV voru þeir félagar mjög ánægðir með aðstæður hjá félaginu og mjög líklegt er að þeir leiki báðir með félag- inu á næsta keppnistímabili. Þorgils Óttar leikur með landsliðinu „HSÍ-menn höfðu samband við mig og sögðust vera í vandræðum vegna ferðaiinnar til Austur- Þýskalands. Ég sagði þeira að ég gæti farið með liðinu til Austur- Þýskalands og lít raunar á það sem skyldurækni frekar en annað," sagði Þorgils Óttar Mathiesen, fyr- irliði landsliðsins, í samtali við DV í gærkvöldi. Eins og flestum er kunnugt hefur Þorgils Óttar lýst því yfir aö hann hyggist taka sér frí í sumar og ákveða að því loknu hvort hann verður áfram með landsliðinu. „Þessi ákvörðun mín hefur ekkert breyst og það er óá- kveðið hvort ég leik með landslið- inu áfram," sagði Þorgils Óttar ennfremur. Landsliðið í handknattleik held- ur í lok vikunnar til Austur-Þýska- lands og leikur þar tvo leiki gegn heimamönnum. Fyrri leikurinn fer íram í Magdeburg á laugardag og síðari leikurinn á sunnudag í Berl- in. Veröur leikur þjóðanna þar lokaatriði á mikilli íþróttahátíö þar í bæ. Vilja Valsmennfá2 miljónir fyrir Sigga? „Mín mál eru ekki komin á hreint ennþá og það verða nokkrir dagar þangað til þetta kemst á hreint," sagöi Sigurður Sveinsson, vinstri- handarskytta í Val, 1 samtali við DV í gærkvöldi þegar hann var spurður hvort hann væri ákveðinn í aö fara til vestur-þýska hðsins Dortmund. Valsmenn mimu ekki æstir í að losna við Sigurð og sam- kvæmt fréttum í þýskum fjölmiðl- um hafa Valsmenn farið fram á 70 þúsund mörk eða um 2 milljónir króna. > Forráðamenn Teka hafa spurt um Jóhann Inga Samkvæmt öruggum heimildum DV hefur spánska liöiö Teka, sem Knstján Arason leikur með, og spánska liðið Bidasoa, nokkurn áhuga á því að fá Jóhann Inga Gunnarsson þjálfara til liös við sig. Þjálfari liðsins, Javier Garcia Cu- esta, hefur tekið við spánska lands- hðinu og liðinu váhtar því þjálfara | eftir yfirstandandi tímabil. Jóhann Ingi sagðist í gærkvöldi ekkert hafa j heyrt frá spönsku hðunum. Júlíus áfram í Val? Allt útlit er fyrir að Valsmaðurinn j Júhus Jónasson verði áfram í Val. Forráðamenn franska liðsins Lille, j sem höfðu áhuga á að fá hann til j hðs við sig, hafa ekkert látiö í sér heyra í langan tíma og svo kann að vera að áhugi sé ekki lengur fyrirhendi. „Æthmaðurverðiekki bara áfram á skerinu," sagði Júhus | í samtali við DV í gærkvöldi. Páll norður? Páh Ólafsson, landsliðsmaður í KR, hefur sótt um starf á Akureyri, og I því er óvíst hvort hann leikur áfram með KR næsta vetur. „Ef ég fæ starfiö mun ég flytjast noröur en ef ég fæ þaö ekki mun ég leika | áfram meö KR,“ sagöi Páh í gær- kvöldi. Líklegt er talið að Páh gangi | í KA fari hann noröur. Einn af for- ráðamönnum KA sagði við DV á j dögunum að félagið hefði talað við Pál og nokkra aöra leikmenn en | Páll neitaöi því hins vegar í gær- kvöldi að KA hefði rætt við sig. -SK/JKS I • Jóhann Ingi - spönsk félög hafa sýnt honum áhuga. • Sigurður Sveinsson - fer hann til Dortmund á 2 milljónir? • Páll Ólafsson -færhann starfið norður á Akureyri?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.