Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1989, Blaðsíða 48
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 8. MAÍ 1989.
Evrópusöngvakeppnin:
íslendingar
fengu ekkert
stig í Sviss
íslensku þátttakendurnir hrepptu
neðsta sætið í Evrópusöngvakeppn-
inni, Eurovision, sem fram fór í
Lausanne í Sviss á laugardagskvöld.
íslenska lagið, Það sem enginn sér
eftir Valgeir Guðjónsson, fékk ekkert
stig. Mun það vera í eitt af örfáum
skiptum í sögu þessarar keppni sem
lag fær ekkert stig.
Fyrir nokkrum árum lentu Norð-
menn í sömu stöðu en réttu úr kútn-
um nokkru seinna með því að vinna
keppnina. Þannig að ekki er öll von
úti enn.
• Sigurvegari varð júgóslavneska
hijómsveitin Riva með lagiö Rock
me. í öðru sæti urðu Englendingar
og þar á eftir Danir og Svíar.
Að ári verður sönglagakeppnin
haldin í Júgóslavíu. Hvort íslending-
ar endurheimta 16. sætið þá er óvist
en víst er að leiðin liggur ekki lengur
niður á viö. -hlh
Skólaskákmótið:
JHelgi og Héðinn
unnu glæsilega
Úrslitakeppni skólaskákmótsins
fór fram að Laugum í Dalasýslu um
helgina. Héðinn Steingrímsson bar
sigur úr býtum í eldri flokki, hlaut 9
vinninga sem er fullt hús stiga. í
yngri flokki sigraði Helgi Áss, sem
hlaut 8,5 vinninga af 9 mögulegum.
Þetta eru óvenju glæsilegir sigrar
hjá þessum ungu og stórefnilegu
skákmönnum því í skólaskákmótinu
taka þátt allir bestu skákmenn
yngstu kynslóðarinnar í landinu.
S.dór
Eskiflörður:
Þriggja ára
drengur slapp
ótrúlega vel
Þriggja ára drengur á Eskifirði
slapp án meiðsla er bifreið, sem hann
var í, rann niður um 100 metra
brekku. Fallhæðin er um 40 metrar.
Drengurinn fór inn í bifreið foreldra
sinna og skömmu síðar rann hún
niður brekkuna. Vitað er að bifreiðin
var í gír - en ekki er víst hvort hand-
bremsan var á.
/#Ðrengurinn fékk marblett en slapp
að öðru leyti. Bifreiðin, sem er lítið
skemmd, stöðvaðist á sterkri girð-
ingu og trjám. -sme
Kj arasamnlngar háskólamanna:
Engir samningar
höfðu náðst í nótt
Á fjórða tímanum í nótt var
samningafundi háskólamanna og
ríkisins frestað að ósk háskóla-
manna. Þá hafði fundurinn staðið
vel á annan sólarhring. Þegar fund-
inum var frestað í nótt hafði í raun
ekki náðst samkomulag um nein
atriði sem verið er að ræða ura. Þaö
er því allt undir enn og fundurinn
sem boðaður var í morgun er því
alger úrslitafundur. Þeir sem DV
ræddi við sögðu að brugðið gæti til
beggja vona á þessum fundi.
Guðlaugur Þorvaldsson ríkis-
sáttasemiari sagði í morgun að
hann þyrði engu að spá um niður-
stöðuna. Málið allt'væri á afar við-
kvæmu stigi.
Samkvæmt heimildum DV er
óvissan í þessu máli alger. Venju-
lega er gengið frá einu atriði á fæt-
ur öðru í kjarasamningum þar til
launaliðurinn einn er eftir. Um
hann er alltaf samið síðast. Ekkert
siíkt hefur gerst í þessum samning-
um, öil atriði samninganna eru enn
undir, Ýmsu nýju hefur verið velt
upp í umræðum um helgina en
ekkert af því hefúr orðið að sam-
komulagsatriði, enn sem komið er
að minnsta kosti.
Ástæðan fyrir því að samninga-
menn háskólamanna óskuðu eftir
hléi í nótt er sú að þeir vildu halda
með sér fund og ræða það sem gerst
hefur, enda var fundað í mörgum
hópum á ýmsum stöðum um helg-
ina. Hvort samningar takast í dag
eða næstu daga ræðst því af þeirri
ákvörðun sem tekin verður á þess-
um fundi samningamanna há-
skólamanna.
Guðlaugur Þorvaldsson ríkis-
sáttasemjari hefur lýst því yfir að
ef nú slitnar upp úr samningum
muni hann ekki kaUa til nýs samn-
ingafúndar, nema annar hvor
deiluaðila óski eftir því, fyrr en eft-
ir tvær vikur. Samkvæmt lögum
ber honum að gera það.
Á laugardaginn var haldinn sér-
stakur ríkisstjórnarfundur vegna
kjaradeilunnar. Steingrímtm Her-
mannsson forsætisráðherra og
Svavar Gestsson menntamálaráð-
herra hafa eftir þann fund lýst yfir
bjartsýni um að deilan sé að leys-
ast.
S.dór
Hjónin Halldór og Bibba fluttu búferlum af Brávallagötunni á Arnarnesið um helgina. Bibba hefur löngum haidið
því fram við Halldór að meiri líkur væru á að fá þekkta gesti í heimsókn þegar maður býr í fínni hverfum. Reyndin
var sú að fyrsta kvöldið kíkti menntamálaráðherra, Svavar Gestsson, við hjá þeim heiðurshjónum. Fór vei á með
þeim Bibbu og Svavari enda eru þau bæði áhugafólk um islenska tungu, hvort á sinn hátt. F.v.: Edda Björgvins-
dóttir, Svavar Gestsson og Bessi Bjarnason á sviði íslensku óperunnar. DV-mynd Brynjar Gauti
Strokufanginn:
Á bak við
lás og slá
Konan, sem strauk úr Kvennafang-
elsinu síðastliðinn fóstudag, er aftur
komin á bak við lás og slá. Lögreglan
í Reykjavík handtók konuna á laug-
ardagskvöld. Hún var ílutt í Síðu-
múlafangelsið þar sem hún var af-
hent fangelsisyfirvöldum. -sme
Reykjavik um helgina:
19 innbrot og
27 árekstrar
Nítján innbrot voru framin í
Reykjavík um helgina. Sex aðrir
þjófnaðir voru kærðir til lögreglu.
Tuttugu og sjö árekstrar urðu í
Reykjavík. Slys varð í þremur þeirra.
Tveir drukknir ökumenn lentu í
árekstrum. Tíu ökumenn voru tekn-
ir grunaðir um ölvun við akstur. Ell-
efu skemmdarverk voru unnin á bíl-
um. Þeir voru ýmist rispaðir, máln-
ingu sprautað á þá eða speglar brotn-
ir. Þá voru ellefu rúður brotnar.
-sme
LOKI
Sá er munurinn á nýja og
gamla O-flokknum að sá
gamli fékk fullt af atkvæðum!
Veðrið:
Er og verður
á norðan
Nú hefur norðanáttin tekið völd-
in. í dag og á morgun gefur hún sig
hvergi. Vindar verða hægir og bjart
verður víða.
Voðurspér DV eru ákki
bygaðar t> upplýsioaum
frí Voðurstof u fslands.
Þser aru fengnar erlondls
I gognum veðurkorta-
BÍIALEIGA
v/Flugvallarveg
91-61-44-00