Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1989, Blaðsíða 42
42
MÁNUDAGUR 8. MAÍ 1989.
LífsstíU
Þrjú tonn af
mygluðu og slepj-
uðu kjöti í vinnsl-
ur og verslanir
„Þaö má teljast glópalán aö ekki
skyldi hljótast stórslys af,“ sagði
Jónas Þór Jónasson, starfsmaður
kjötvinnslunnar Skyndis á Grensás-
vegi, í samtali við DV.
Um miðjan apríl sendi Afurðasala
Sambandsins um 3 tonn af skemmdu
nautakjöti í verslanir og kjötvinnsl-
ur. Kjötiö kom frá sláturhúsinu á
Vopnafirði og var sent til Reykjavík-
ur með skipi í gámi sem trúlega hef-
ur bilað kæling í eða hreinlæti verið
ábótavant. Þegar kjötið kom til
Reykjavíkur var það orðið talsvert
myglað og slepjað.
„Þeir hjá Áfurðasölunni höfðu
samband við okkur og þeir sögðust
ætla að þrífa kjötið áður þaö yrði
sent til okkar,“ sagði Jónas.
„Þegar þessir tveir skrokkar, sem
ég pantaði, komu hér inn á gólf sá
ég strax að meðhöndlun þeirra var
alls ekki fulinægjandi. Kjötið var
mjög myglað og víða á því slepju-
blettir þar sem gerlagróður var
greinilega farinn að þrífast mjög vel.
Ég hringdi strax í Sambandiö og
heimtaði að kjötið yrði þegar í stað
tekið til baka. Mér var svarað þvi til
að ég skyldi bara athuga minn gang.
Dýralæknir væri í verkfalli og það
væru margir sem vildu fá þetta kjöt.
Jónas Þór Jónasson telur mildi að
ekki skyldi fjöldi manns veikjast í
kjölfar sölu skemmds nautakjöts frá
Sambandinu.
Fyrsta flokks
vara á fullu verði
Ég hef nótu því til staðfestingar að
hingað var þetta sent sem fyrsta
flokks vara á fullu verði og ég er
ekki sáttur við að menn séu að redda
sér frá þessu máli með lygum. Þetta
kjöt var ekki fellt í mati, hvað sem
dýralæknir Sambandsins segir.
í framhaldi af þessu fékk ég hingað
okkar eigin matvælafræðing sem
annast okkar innra eftirht og hann
kom hér og tók sýni.
Andrés Jóhannsson yfirkjötmats-
maður kom hingað líka og skoðaði
kjötið en fékkst ekki til þess að dæma
þetta ósöluhæft. Kjötið var síðan
endursent en mér finnst þetta sýna
að hið svokallaða innra eftirlit Sam-
bandsins er aðeins nafnið eitt og
starfar ekki sem skyldi. Þetta var
slys og menn verða að horfast í augu
við það án þess að skjóta sér undan
ábyrgð,“ sagði Jónas að lokum.
Milljónfalt gerlamagn
„Ég tók tvö sýni af umræddu kjöti
Svona leit skemmda kjötið út. Örin sýnir hvíta þykka mygluskán.
og gerlamagn á yfirborði þess var
milljónfalt umfram það sem eðlilegt
má teljast," sagði Hákon Jóhannes-
son, matvælafræðingur hjá Mat-
vælatækni, en það fyrirtæki annast
innra eftirlit hjá kjötvinnslunni
Skyndi h/f.
„Það er enginn vafi á að hér var
um gjörsamlega óneysluhæfa vöru
að ræða og ég lýsi undrun minni á
vinnubrögðum allra aðiia sem þetta
mál varðar,“ sagði Hákon.
Ekki náðist samband við Andrés
Jóhannesson yfirkjötmatsmann sem
veitti Sambandinu heimild til sölu á
umræddu kjöti. -Pá
Sambandið:
Fengum
grænt
ljós
„Nautakjöt batnar við geymslu,
það vita allir. Þetta kjöt hafði
aðeins of hátt gerlainnihald á
yfirborði en við fengum grænt
ljós á að selja það frá réttum yfir-
völdum og það hafa engar kvart-
anir borist,“ sagði Árni Jóhanns-
son, deildarstjóri Afurðasölu
Sambandsins, í samtali við DV.
Ámi sagði að um 25% af kjötinu
hefði verið skilað til Afurðasöl-
unnar eða um 600 kíióum af
þremur tonnum og því heföi
ýmist verið hent eða það sett í
vinnslu. í einu tilfelli, sem hann
vissi um, var heilbrigöisfulltrúi
kvaddur til og felldi hann kjötið
um einn flokk en í gámnum sem
skemmdist var kjöt í ýmsum
gæðaflokkum. Sú flokkun var lát-
in halda sér frá Afuröasölunni.
Fyrsta flokks kjöt var selt á fyrsta
flokks verði þrátt fyrir mjög skert
geymsluþol og hátt gerlainnihald.
Engin yfirborðssýni voru tekin
af kjötinu hjá Afurðasölunni,
hvorki af myglu né til gerlataln-
ingar. Kjötkaupmenn sem DV
hefur haft samband við segja aö
hér hafi innra eftirlit Sambands-
ins algjörlega brugðist og þurfi
að vinna traust viðskiptavinanna
á ný.
Ámi sagði að stöðugt væri unn-
ið að endurbótum á gæðamálum
Sambandsins. Hins vegar væru
ekki það skýrar línur í skynmati
á kjöti að skiptar skoðanir væru
ekki óalgengar. Dýralæknir sem
starfar hjá Sambandinu er ekki
þjálfaður sem kjötmatsmaður.
„Þetta var leiðindaóhapp og
þetta kemur ekki fyrir aftur,“
sagði Ámi. -Pá
Markmiðið er að keppa við stórmarkaðina
Ágúst Guömundsson, kaupmaöur I Vörðufelli. DV-mynd BG
„Við höfum lækkaö verð á bókstaf-
lega öllum vörum,“ sagði Ágúst Guö-
mundsson, kaupmaður í Vörðufelli í
Kópavogi, í samtali við DV. „Mark-
mið okkar er að keppa við stórmark-
aðina. Við viljum að fólk þurfi ekki
að gera sér ferð í stórmarkað til þess
að fá vörur á lægra verði."
Ágúst hafði forgöngu um aö þijár
verslanir hafa nú tekið höndum sam-
an og komið á fót því sem kallað er
Plúsmarkaður. Hinar verslanirnar
eru Straumnes í Breiðholti og Mat-
vörubúðin Grímsbæ í Fossvogi.
„Við höfum þegar lækkað flestar
algengar vörur frá íslenskum heild-
sölum og erum aðeins að byija með
sameiginlegan innflutning sem gerir
okkur kleift að lækka verðið enn
frekar. Þær vörur koma aðallega frá
Danmörku og Bretlandi," sagði
Ágúst. Hann lét vel af undirtektum
viðskiptavina og taldi viðskiptin hafa
aukist að miklum mun strax fyrstu
dagana sem þessi sértilboð voru í
gangi.
Má segja að við
stígum hálft skref
„Við verðum að fá hraðari sölu til
þess að vega upp tekjutap sem hlýst
af verðlækkuninni," sagði Ágúst.
„Auk þess höfum við samfara þess-
ari breytingu hætt að lána fólki í
mánaðarreikningi. Það hefur mælst
frekar vel fyrir. Best væri auðvitað
ef við gætum hætt að taka viö kredit-
kortum því að þessi gífurlega binding
fjármagns, sem á sér stað í verslun-
inni, er henni afar erfið. Það má því
segja að við stígum hálft skref með
lokun mánaðarreikninganna."
- Hvað með þátttöku fleiri versl-
ana í þessum Plúsmarkaði?
„Það eru að sjálfsögöu allir velkomn-
ir inn í þetta með okkur, að athuguðu
máli, ef þeir uppfylla þær kröfur sem
við setjum. Við erum samnefnari út
á við og setjum okkur strangar regl-
ur í verðlagningu sem þeir verða þá
að fara eftir.
Markmiðið er að okkar viðskipta-
vinir geti treyst því að þeir fái vörur
á sama verði eða lægra en í stór-
mörkuðunum," sagði Ágúst að lok-
um.
Plúsmarkaðirnir eru opnir á
venjulegum afgreiðslutíma frá 9 til
19 og til 20 á fostudögum. Á laugar-
dögum er opið í Vörðufelli til 18 en
til 16 í Grímsbæ og Straumnesi.
-Pá
Plúsmarkaðir:
Ódýrari en stórmarkaðir
Tegund Plúsmarkaður Algengtverði stórmörkuðum Munur í%
CocoaPuffs,340g 141,90 157 10%
Colgate, 75 ml 72 74 3%
Sykur, 1 kg 49,75 49
ORAfiskib. 1/1 dós 219 210 4%
Homeblestkex 69,50 77 11%
Riverhrísgrjón,454g 61 58 5%
ORA maís,1/2dós 99 104 5%
iVA þvottaefni 102 110 7%
Libby'stómatsósa 96 99 3%
Samtals: 910,15 938 3%
Lausleg verðkönnun í Vörðufelli í
Kópavogi, einum Plúsmarkaðanna,
leiddi í ljós að verðlag er þar almennt
3% lægra en algengt stórmarkaða-
verð.
Mesti munur fannst á Homeblest
súkkulaðikexi en það kostar 69,50
krónur í Vörðufelli en 77 krónur er
algengt verð í stórmörkuðum. Kjöt-
fars i Vörðufelli kostar 249 krónur
kílóið meðan algengt verð er 320-350
krónur annars staðar. Mjólkurlítr-
inn í Vörðufelli kostar 58,50 sem er
ögn lægra en almennt gerist.
Kíló af dönsku salti sem Plúsmark-
aðirnir flytja inn kostar 23 krónur
sem er nær helmingi ódýrara en ís-
lenskt salt. í Vörðufelli fást innflutt-
ar maísbaunir í dós sem kosta 77
krónur meðan Ora maís kostar 99
krónur. Munurinn er þarna 28,5%
Staðhæfingar aðstandenda Plús-
markaðanna um að þeir ætli að vera
samkeppnisfærir við stórmarkaði í
verði virðist samkvæmt þessu eiga
við nokkur rök að styðjast.
„Við erum að færa stórmarkaðs-
verðin inn í íbúðahverfin og við-
tökurnar hafa verið ótrúlega góðar
það sem af er,“ sagði Einar Viðar,
verslunarstjóri í Straumnesi í Breið-
holti, sem er einn af Plúsmörkuðun-
um. Hann sagði að lækkunin hefði
veriö samræmd þannig að sama verð
ætti að vera á flestum eða öllum vör-
um í þessum þremur verslunum.