Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1989, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1989, Side 31
MÁNUDAGUR 8. MAÍ 1989. 31 Fréttir Kleifarvatn: Sama verð á veiðileyfum og Silungsveiðin er hafm í mörgum veiðivötnum, þar sem hægt er að koma niður færi en vegna kulda eru sum vötn ennþá á ís. En veiðimenn kalla nú ekki allt ömmu sína í veið- inni og setja upp húfur og vettlinga ef þarf. „Það verður reynt um leið og hægt er í Kleifarvatni því þeir eru til væn- ir þar,“ sagði Sigurður Bergsson, for- maður Stangaveiðifélags Hafnar- fjarðar, ,og bætti við „ dagurinn er seldur á 600 kr. og hálfur á 400 kr. Sumarkortið seljum við á 2500 kr. og við seljum veiðileyfið á sama og í fyrra, enginn hækkun hjá okkur. Við viljum fá fleiri veiðimenn til að koma og veiða í vatninu," sagði Sigurður í lokin. Silungsveiðin getur oft verið góð eins og þessi mynd sýnir með sér, 40 silungaráland. DV - mynd Sveinn í Elliðvatn ætla margir að renna fyrstu veiðidagana, en dagurinn er seldur á 640 kr. og hálfur á 420. Sum- arkortið eru seld á 5900 kr. „Þetta er allt að koma hérna við vatnið og veiðimenn eru farnir að fá bleikjuna til að taka, þó ekki sé hlýtt eins og er,“ sagði tíðindamaður okkar við vatnið í vikunni. Veiðimenn munu víða renna næstu daga fyrir silung, eins og í Hlíðar- vatni í Selvogi, þar hefur verið reynt með litlum árangri ennþá, þó er ein og ein bleikjan sé farinn að veiðast. Dagurinn kostar 1000 kr. hjá Ár- mönnum. í Geitabergsvatn í Svínadal er dag- urinn seldur á 600 kr. og sumarkort á 4000 þúsund. í Eyrarvatn í Svínad- Verkamannabústaðir á Fáskrúðsfírði: Lægsta tilboði tekið Ægir Kristmsson, DV, Fáskrúðsfiröi: Nú eru hafnar framkvæmdir við seinni áfanga nýbyggingar verka- mannabústaða við Garðaholt. Þrjú tiiboð bárust í verkið. Það lægsta var frá Þorsteini Bjarnasyni húsasmíða- meistara, um 12,8 milljónir króna eða 92,8% af kostnaðaráætlun og var því tekið. í þessum áfanga verða þrjár íbúðir, ein þriggja herbergja og tvær tveggja herbergja. íbúðirnar eiga að afhend- ast fullbúnar í febrúar-mars 1990. Byrjunarframkvæmdir við verkamannabústaði við Garðaholt. DV/mynd Ægir Vistheimili í Ölfushreppi Regína Thorarensen, DV, Selfossi: Berta G. Björgvinsdóttir, Hlíðar- tungu í Ölfushreppi í Árnessýslu, rekur heimili fyrir andlega fatlað fólk í góðum húsakynnum sem eru glæsileg á að líta. Berta hefur alltaf haft áhuga á að vinna að líknarmál- um og hefur gert það í mörg ár ásamt manni sínum, Tómasi Högnasyni, og taka þau sex til sjö manns í sambýli. Það er fólk á öllum aldri og eru tvö pláss laus. Ég fékk að sjá húsakynnin og fólk- ið sem dvelur þar og er það ánægt með dvöl sína á staðnum. Húsið er yflr 3002 að stærð með nýbyggðri, stórri sólstofu. Það á eftir að klæða neðri hæðina að utan með stáli en efri hæðin, þar sem vistfólkið býr, er fullfrágengin. Þau hjónin fara með sitt fólk í sund á Selfössi og fara einnig dagsferðir yfir sumarinánuðina að sjá helstu staði Suðurlands. Álfheimar á Selfossi. DV-mynd Kristján Einarsson DaghemúlLð Selfossi: Kostnaður innan viðmiðunarverðs ráðuneytisins Regina Thorarsnsen, DV, Selfossi: Ég fór nýlega að skoða nýja dag- heimilið Álfheima við Sólvelli á Sel- fossi og hitti ég þar fyrst fyrir mat- ráðskonurnar Guðbjörgu Ólafsdótt- ur og Jónu Jónsdóttur, sem matreiöa þarna fyrir 50 manns góðan, hollan mat. Ingibjörg Stefánsdóttir fóstra er forstöðukona þessa fallega dagheim- ilis og greinilegt að hún nýtur þess að hugsa um 40 börn. Á yngri deild- inni, 2-6 ára, eru 20 börn og á skóla- dagheimilinu eru einnig 20 börn frá 6-9 ára allan daginn. Ingibjörg hefur fimm konur sér til hjálpar og eina fóstru, húsmæður, sem eru búnar að koma upp sínum börnum. Þær eru góður vinnukraftur og góður andi ríkir hér. Ég átti einnig tal við byggingafull- trúa Selfossbæjar, Bárð Guðmunds- son, um dagheimilið. Það er 518,7 m2 og lóðin er 5520 m2. Húsið kostaði um 30 milljónir en eftir er að fullgera lóðina og kaupa leiktæki. Áætlað er að kostnaður við húsið, lóðina og leiktækin verði 40 milljónir og er það undir viðmiðunarkostnaði mennta- málaráðuneytisins enda eru hér dug- legir fagmenn og flinkir. í fyira al kostar dagurinn frá 400 kr. til 1000 kr, sumarkortið er á 8000 þúsund. í Þórisstaðavatn í Svínadal er dagur- inn frá 400 kr til 800 kr, sumarkortið er á 5000 þúsund. -G.Bender M. Benz 500 SE árg. '83, einn með öllu. M. Benz 260E árg. '88 og M. Benz 200 árg. '88. Toyota Corolla árg. '88, 3ja dyra, ekinn 10.000. Sprinter 20 fet árg. '83, isskápur, eldav., svefnherbergi. Sprite Major árg. '87, verð aðeins 580.000. ATH. HJÁ OKKUR SELUR ÞÚ HJÓLHÝSIÐ. BÍLASALA GUÐFINNS ÞAR SEM ÞÚ FÆRÐ JEPPANA SÍMI 621055 FISHER AvaOt í tararbroddi IMSWS, LOkSI VS. KMLSI VS... \TJRI) SEM ALUR RAÐA Vl» L&IFISHER HQ myndbandstski Inníheldur m.a.: ★ VHS - Pal ★ HQ — betri mynd ★ 30 minni ★ 4 tíma upptökumöguleika ★ 14 daga upptökumínní með 4 mögulegum dagfærslum ★ Þráðlausa 13 liða Qarstýringu ★ Skyndíupptöku ★ Vegur aðeins 7,2 kg. SÝNING IFISHER seæcc Kaupféiag Húnvetninga, Blönduósi, 8. maí. Kaupfél. Skagfirðinga, Skagfirðingabúð, 9. maí. 1H1ENS31 Hljómver, Akureyri, 10. og 11. maí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.