Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1989, Blaðsíða 20
20
MÁNUDAGUR 8. MAÍ 1989.
íþróttir
• Charlton vann mikilvægan sigur á Wimbledon, 1-0, á Selhurst Park á laugardaginn var. Paul Williams úr iiði Charlton leikur á John Scales í Wimble-
don. Charlton berst fyrir veru sinni í 1. deild og virðist ætla að bjarga sér frá falli rétt eina ferðina enn.
Símamynd/Reuter
Enska knattspyman:
Meistaratitminn í
augsýn hjá Arsenal
- liöiö hefur átta stiga forskot á Liverpool. Botnbaráttan í algleymingi
Arsenal stefnir á sigur í ensku
deildarkeppninni í knattspymu en á
laugardag sigraði liðið Middles-
brough á útivelli. Liverpool, sem
veitir Arsenal harða keppni um titil-
inn, lék ekki í deildinni vegna undan-
úrslitaleiksins gegn Nottingham For-
est sem fram fór í gær á Old Trafford
í Manchester. Keppnin á botni deild-
arinnar er ekki síður spennandi og
er ljóst að úrslit ráðast ekki á þeim
vígstöðvum fyrr en í síðustu umferð
keppninnar.
Varamaðurinn tryggði
Arsenal dýrmætan sigur
Hart var barist í leik Middlesbrough
og Arsenal á Ayresome Park, heima-
velh Middlesbrough. Leikurinn hafði
mikla þýðingu fyrir bæði liðin, Ars-
enal að beijast um sigurinn í deild-
inni en Middlesbrough fyrir tilveru
sinni í deildinni. Leikurinn þótti op-
inn og skemmtilegur en baráttan var
í fyrirrúmi.
Martin Hayes, sem kom inn á sem
varamaður í síöari hálfleik, skoraði
eina mark leiksins. Hayes hafði ekki
verið inn á nema í þrjár mínútur er
hann skoraði markið af stuttu færi
tuttugu mínútum fyrir leikslok, góð
innáskipting þar.
Nott. Forest og Liverpool
mætast á miðvikudag
Arsenal hefur átta stiga forystu í
deildinni en hefur leikið tveimur
leikjum meira en Liverpool. Þessi
félög eiga eftir að mætast í innbyrðis
viöureign og eftir hana verður ljóst
hvort höið hreppir Englandsmeist-
aratitilinn í ár. Það eru eflaust marg-
ir áhugamenn um ensku knattspyrn-
una sen bíða spenntir eftir viðureign
Liverpool og Nott. Forest sem verður
á Anfield Road á miðvikudaginn
kemur. Arsenal varð síöast enskur
meistari 1971.
NorwichCity vann
kærkominn sigur
Norwich City, sem lengi var með for-
ystu í deildinni, vann kærkominn
sigur á heimavelli gegn Everton.
Dale Gordon skoraði eina mark
leiksins tveimur mínútum fyrir
ieikslok. Bæði liðin fengu góð tæki-
færi en markmenn liðanna vörðu vel
og voru bestu menn vallarins.
West Ham heldur enn í
vonina þó veik sé
West Ham vann sinn annan sigur i
röö er liöið sigraði Luton á heima-
velli sínum, Upton Park, í Lundún-
um. Alan Dickens skoraði sigurmark
West Ham á 15. mínútu leiksins.
West Ham komst þar með upp úr
botnsætinu en þar hefur liðið dvahð
um nokkurn tíma. West Ham á fjór-
um leikjum ólokið og á því enn
möguleika á að halda sæti sínu í
deildinni. Þrír af þessum leikjum eru
á útivehi þannig aö ekkert má út af
bera hjá liðinu.
Aðdáendur Newcastle létu
ófriðlega á St. James Park
Stuöningsmenn Newcastle létu
óánægju sína í ljós með að liðið væri
fallið í 2. deild, bæði fyrir utan leik-
vanginn skömmu fyrir leikinn gegn
Millwall og einnig meðan á leiknum
stóð. Lögreglunni tókst þó að halda
reiðum stuðningsmönnum New-
castle í skefjum meö höröum aðgerð-
um. Millwah náði forystunni með
marki frá Teddy Sheringham undir
lok fyrri hálfleiks og ætlaöi þá allt
að verða vitlaust á St. James Park í
Newcastle. John Anderson jafnaöi
fyrir Newcastle á 52. mínútu.
Markvörður Charlton tryggði
liðinu þrjú stig
Lundúnafélagið Charlton vann mik-
ilvægan sigur í botnbaráttunni á Sel-
hurst Park. Carl Leaburn skoraði
sigurmark leiksins á 12. mínútu en
þetta var hans annað mark á keppn-
istímabilinu. Fjórum mínútum síðar
varð hann að yfirgefa leikvanginn
vegna meiðsla. Markvöröur Charl-
ton, Bob Bolder, var annars hetja
liðsins í leiknum, varði oft vel en þó
aldrei betur en er hann varði víta-
spyrnu frá Dennis Wise þegar fimmt-
án mínútur voru til leiksloka.
19. mark Saunders á
tímabilinu gegn Aston Villa
Dean Saunders tryggði Derby sigur
gegn Aston Viha á Baseball Ground.
Saunders hefur verið iöinn viö kol-
ann í vetur og skoraö 19 mörk. Hann
var keyptur á tímabilinu frá Ox-
ford.
Hvorki gengur ié rekur
hjá Manchester United
Hvorki gengur né rekur hjá Manch-
ester United þessa dagana. í siðustu
ellefu leikjum hefur liðið aðeins
tvisvar borið sigur úr býtum.
Beardsmore skoraði mark United en
Glen Cockerill og Rodney Wallace
gerðu mörk Southampton.
Chelsea og Manchester City hafa
áunnið sér rétt til þátttöku í 1. deild
á næsta keppnistímabili. Chelsea
vann raunar deildina með miklum
yfirburðum. Blackburn, Watford,
Crystal Palace og Swindon keppa
hins vegar um þriðja sætið sem gefur
sæti í 1. deild.
Bournemouth skoraði þrjú
mörk á fimmtán mínútum
Þess má geta aö í viðureign Manch-
ester City og Bournemouth á Mane
Road á laugardag var staðan 3-0 fyr-
ir Manchester City er fimmtán mín-
útur voru til leiksloka en rétt fyrir
leikslok jafnaði Luther Blissett fyrir
Bournemouth og þar við sat.
-JKS
A England
/ Úrslit /
1. deild:
Charlton-Wimbiedon..........1-0
Middlesbrough-Aston Villa ....2-1
Newcastle-Mhlwah............1-1
Norwich-E verton............1-0
Southampton-Man. Utd........2-1
West Ham-Luton..............1-0
2. deild:
Barnsley-Portsmouth.........1-0
Birmingham-Hull.............1-0
Blackburn-Walsall...........3-0
Brighton-Ips wich...........0-1
Chelsea-Bradford............3-1
Leeds-Oldham................0-0
Leicester-Crystal Palace....2-2
Man. City-Bournemouth.......3-3
Plymouth-Oxford.............3-1
Swindon-Stoke...............3-0
Watford-Shrewsbury..........0-0
WBA-Sunderland..............0-0
3. deild:
Blackpool-Huddersfield......2-1
Bolton-Brentford............4-2
Bristol Rovers-Fulham.......0-0
Cardiff-Preston.............0-0
Chester-Gillingham..........2-0
Mansfield-Chesterfield......3-1
Notts County-Southend.....2-0
Reading-Bristol City........1-2
Sheff. Utd-Swansea..........5-1
Wigan-Bury..................1-0
Wolves-Northampton............3-2
4. deild:
Cambridge-Torquay...........3-0
Carlisle-Wrexham............1-2
Colchester-Exeter...........4-0
Crewe-Halifax............. 2-2
Doncaster-Tranmere..........0-0
Hartlepool-Bumley...........2-2
Hereford-York...............1-2
Lincoln-Leyton Orient.......0-1
Rochdale-Peterborough.......0-0
Scarborough-Grimsby.........2-3
Scunthorpe-Darlington...... 5-1
Stockport-Rotherham.........1-3
X.
England
l.deild:
Arsenal....35 21 9 5 68-32 72
Liverpool ....33 18 10 5 55-24 64
Norwich....36 17 10 9 46-42 61
Nott.Forest.34 16 12 6 57-38 60
Tottenham ..37 15 12 10 60-45 57
Derby......37 16 7 12 38-33 55
Coventry...36 14 11 11 44-39 53
Millwall...37 14 10 13 46-51 52
Wimbledon .36 14 8 14 47-42 50
Man. Utd...35 12 12 11 46-30 48
QPR........35 12 11 12 39-33 47
Everton....35 11 12 12 44-43 45
Southampt. .37 10 14 13 51-65 44
Aston Villa.,37 9 12 16 44-55 39
Charlton...36 9 12 15 41-54 39
Middlesbro..37 9 12 16 44-60 39
Luton......37 9 11 17 41-52 38
Sheff. Wed. ..35 9 11 15 31-47 38
West Ham....34 8 8 18 31-53 32
Newcastle ...37 7 10 20 32-61 31
2. deild:
Chelsea....45 28 12 5 93-48 96
Man. City ....45 23 12 10 76-52 81
Blackburn...45 22 11 12 74-57 77
Watford....45 21 12 12 70-48 75
Crystal. P. ...44 21 12 11 66-48 75
Swindon....45 20 15 10 66-51 75
Barnsley...45 19 14 12 63-57 71
Ipswicll...45 21 7 17 69-61 70
WBA........45 17 18 10 64-41 69
Leeds......45 17 15 13 56-47 66
Sunderland.45 16 14 15 58-58 62
Bournemth .45 18 7 20 53-62 61
Stóke........44 15 13 16 55-69 58
Bradford...45 13 16 16 51-58 55
Oxford.....45 14 12 19 62-66 54
Leicester..45 13 15 17 54-61 54
Oldham.....45 11 20 14 73-70 53
Plymouth....45 14 11 20 55-66 51
Portsmouth.45 13 12 20 51-59 51
Brighton...45 14 8 23 55-64 50
Hull.......45 11 14 20 52-67 47
Shrewsbury45 8 17 20 37-64 41
Birraingb. ...45 8 11 26 30-72 35
Walsall....45 5 16 24 40-77 31