Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1989, Qupperneq 24
24
MÁNUDAGUR 8. MAÍ 1989.
Iþróttir
TaliðaðPáhafi
selst fyrir metfé
- stóðhesturinn Pá seldur til Bandaríkjanna
ríkjamanninum Dan Slott fyrir
skömmu. Pá fékk 8,09 fyrir sköpu-
lag og 8,07 fyrir hæfileika á síðast-
liðnu sumri og aðaleinkunn 8,08.
Kaupverð hefur ekki verið gefið
upp en er talið vera með því hæsta
sem fengist hefur fyrir stóðhest á
íslandi. Bjami Þorkelsson, eigandi
Pás, sagðist sakna hestsins, en
kvaðst jafnframt eiga veturgamlan
hest undan honum svo hann væri
ekki alveg á flæðiskeri staddur.
Dan Slótt er áhugamaður um ís-
lenska hestinn og keypti töluvert
af hrossum, bæði geldingum og
kynbótahrossum, þegar hann var
hér á íslandi fyrir skömmu. Hann
er með stóran búgarð í Bandaríkj-
unum, en þar hafa íslendingar að-
stöðu þegar þeir fara á hestasýn-
inguna í Madison Square Garden,
enda er Dan Slott sennilega sa
maður sem á mestan þátt í því að
íslenski hesturinn er sýndur þar.
-EJ
Horfnir góðhestar:
Hvar er Óðinn
frá Berserkseyri?
Það kemur fyrir öðru hverju að hestamenn 'týna hestum sínum. Yfir-
leitt fmnast þeir þó aftur en of oft tapast hestar algjörlega. Sigurbjörn
Bárðarson hefur misst tvo hesta í vetur. Fálki, rauðskjótti klárinn hans,
drapst skyndilega í vetur en örlög Óðins frá Berserkseyri eru ekki kunn.
Óðinn var í girðingu í Skálmholtshrauni á bökkum Þjórsár í Ámessýslu
í október er hann hvarf og hefur ekki sést síðan.
Óöinn kom fram á sjónarsviöið í fyrrasumar á fjóröungsmótinu á Kald-
ármelum er hann varð í 2. sæti í B flokki gæðinga. Sigurbjörn keypti
hestinn en tapaði honura svo skömmu síðar.
Óöinn er bleikálóttur, kolóttur á fótura, dökkur á fax og er faxið jafnan
vinstra megin á hestinum. Ef einhver rekst á hest sem hann telur vera
Óðin er hann vinsamlegast beöinn um að ræða viö Sigurbjöm Bárðarson.
-EJ
• Hvar er Óðinn frá Berserkseyrí?
Einn hinna efnilegu stóðhesta an Eiöfaxa frá Stykkishólmi og Sif
landsins, Pá frá Laugarvatni, und- frá Laugarvatni, var seldur Banda-
• Pá frá Laugarvatni - og Bjarni Þorkelsson. DV-mynd ej
Lokasýningin í Reið-
höllinni tókst vel
frá Hofstöðum, Hrafns frá Holts-
múla og Ófeigs frá Flugumýri.
Sunnlenskir og norðlenskir ungl-
ingar sýndu ýmiss konar hlýðniæf-
ingar, krakkar úr Reiöskólanum í
Vestra-Geldingaholti léku sér á
hesti í taumi og hestamenn úr
Grana, Létti og Þjálfa á Norður-
landi sýndu norðlenska gæðinga.
Á milli hinna þyngri og tímafrek-
ari sýninga brá fyrir glensi og
gamni og vom trúðar jafnan til
staðar. Lína Langsokkur brá á leik
og Hafliöi Stefán Gíslason söng
hressilegt lag. Þeir Daníel Jónsson
og Sigurður Vignir Matthíasson
riðu um á hestinum Snata með
dúfur á öxl og lögðu Snata að lok-
um á hliðina. Úlfar Guðmundsson
áhættuknapi þeysti gegnum höll-
ina standandi á tveimur hestum og
einnig þeysti hann gegnum höllina
á Mansa sínum og dró Róbert Pet-
ersen á eftir sér á skíðum. Aöal-
steinn Aðalsteinsson renndi Berki
frá Kvíabekk á skeiö, sitjandi í
kerm og nokkrir knapar reyndu
með sér í hindmnarstökki. Gamm-
vökrum skeiöhestum var rennt
gegnum Reiðhöllina undir dynj-
andi tónlist. -EJ
Mikil reiðsýning var haldin í
Reiðhöllinni um síðustu helgi. Þar
fóm hestamenn hamförum, jafnt
einir sér og í hópum. Unglingar
settu svip sinn á sýningarnar, kyn-
bótahross og einnig voru góðir
gestir að norðan frá hestamannafé-
lögunum Létti, Grana og Þjálfa,
með gæðinga sína.
Sem fyrr hófst sýningin með
fánareið félaga í Félagi tamninga-
manna en síðan rak hvert atriðið
annað. Sýndir voru stóðhestar og
hryssur og nokkur afkvæmi Gáska
• Það var mikið neistaflug eftir skiðakappann Róbert Petersen, sem
var dreginn af Úlfari Guömundssyni á Mansa. DV-myndir E.J.
• Stígandi frá Sauðárkróki fékk hæstu einkunn fimm vetra stóðhesta á sýningu
Árleg stóðhestasýning 1 Gimnarsholti
Gvfurlegur
hrossaræk
- Stígandi frá Sauðárkróki fékk
Hin árlega sýning Stóðhestastöðvarinnar í Gunnarsholti var haldin laugardaginn
6. maí síðastliðinn í miklu vatnsveðri og roki. Dæmdir voru 16 hestar en sýndir 12
á aldrinum fjögurra til fimm vetra og að auki þrír eldri hestar. í fyrravor voru
aðstæður þó enn verri. Þá rigndi, blés og snjóaði. Tún í Gunnarsholti tættust upp
og bílar festust í forinni. Því var ákveðiö að bæta aðstöðuna og var sýningarvöllur
byggður síðastliðið haust og vígður nú. í tilefni dagsins riðu félagar í hestamannafé-
laginu Geysi í hópreið og einnig voru sýnd nokkur hross frá Kirkjubæ.
Kirkjubæjarbóndinn, Sigurður Har-
aldsson, var auðvitað í fararbroddi sýn-
ingarmanna. Enn á eftir að bæta við
aðstöðuna og er stefnt að því að byggja
nýtt stóöhestahús skammt frá sýningar-
velhnum.
Geysilegur áhugi er á hrossarækt í
landinu og voru áhorfendur á þriðja
þúsund, alis staðar af landinu. Margir
komu bílum sínum að sýningarvellin-
um en fleiri urðu að híma í rigningunni
á meðan stóðhestarnir voru sýndir. Þau
Rúna Einarsdóttir og Eiríkur Guð-
mundsson hafa verið umsjónar- og
tamningamenn hestanna í vetur og virt-
ust þeir vera við prýðilega heilsu og þau
líka. Það kom í hlut þeirra Eiríks og
Rúnu að sýna hestana í óveðrinu og
voru þau vægast sagt gegndrepa eftir
sýningarnar.
• Toppur frá Eyjólfsstöðum stóð efstur fjögurra vetra stóðhestanna. Knapi
Rúna Einarsdóttir.