Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1989, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1989, Qupperneq 40
40 MÁNUDAGUR 8. MAÍ 1989. Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti 11 ■ Bílar tíl sölu Pajero, langur, bensín, '88, til sölu, ekinn 24 þús., sérlega vel með farinn, aukahlutir: útvarp-stereo, dráttar- kúla, krómstál á brettum, listum og sílsum. Fullkomið þjófavarnarkerfi m/hreyfiskynjara. Verð 1670 þús., gott stgrverð. Bein sala, ekki skipti. Uppl. í síma 12630 og 15575. Scout 1973, uppgerður, upphækkað.ur, góður jeppi. Uppl. í síma 91-72829 eftir kl. 20. Willys, árg. ’54, til sölu, skoðaður ’89, ný blæja fylgir. Tilboð - Sala - Skipti. Sími 686628 og 74929. Til sölu hvitur Mercedes Benz 190E, árg. ’86, ekinn rúml. 50.000 km, mjög vel með farinn, centrallæsingar, topp- lúga og tvöfaldur dekkjagangur. Verð kr. 1450.000. Ath. góður staðgreiðslu- afsláttur. Upplýsingar í síma 91-44751 eftir kl. 20. Toyota Hiace '82, bensín, til sölu. Góð- ur bíll. Uppl. í síma 676062. Mercedes Benz 250 árg. 82 til sölu, ekinn 115 þús. km, skipti á ódýrari bíl koma til greina. Uppl. í síma 91-42415 eftir kl. 19. Audi 100 CC, árg. 1987, til sölu, ekinn 23 þús. km. Uppl. í síma 98-31224 eftir kl. 17. MMC L200 4x4 til sölu, árg. ’82, skoðað- ur ’89, vökvastýri, nýtt lakk, nýir demparar, fallegur bíll. Skipti koma til greina á ódýrari bíl sem mætti þarfnast lagfæringar. Uppl. í síma 91-45282. ■ Ymislegt ISKORT Ljósritun, plöstun, fjölritun. Ljósritum og plöstum vinnuteikningar sam- stundis. Plöstum t.d. landakort, mat- seðla, myndir, verðlista, sjókort, leið- beiningar, plaköt o.fl. Ljósritum allar stærðir af pappír frá A-6 til A-0. Minnkum - stækkkum. Fjölritum bæklinga, auglýsingar, dreifibréf, eyðublöð o.fl. Iskort hf., Ármúla 20, sími 678880. ■ Þjónusta Smókingaleiga. Höfum til leigu allar stærðir smókinga við öll tækifæri, skyrta, lindi og slaufa fylgja. Efna- laugin, Nóatúni 17, sími 91-16199. Vortorfæra Bílaklúbbs Akureyrar verð- ur haldin 27/5 kl. 14. Þátttaka tilkynn- ist fyrir 20/5 í síma 96-22499 á daginn (Stefán) og 96-26450 á kvöldin. B.A. Keppnin gildir til íslandsmeistara. Til sölu Dodge 350 ’83, 15 manna, vél 318 cub., ekinn 47 þús. mílur. Bíllinn er í góðu standi og lítur vel út. Bíllinn er til sýnis á Nýbýlavegi 32. S. 45477. t>ú kemst í flott form í Kramhúsinu. Stór- lækkað verð. 8 tímar á kr. 2.800, 14 tímar á kr. 4.600, 30 tímar á kr. 9.300. Tímabókanir standa yfir í símum 15103 og 17860. FLOTT FORM NÝJUNG '1 V'/7 , ^BERGVÍK Bergvik, Eddufelli 4, Reykjavík, kynnir nýjung í markaðstækni með aukinni notkun myndbanda. Hér á Islandi sem og annars staðar færist það í vöxt að fyrirtæki notfæri sér myndbandið til kynningar á vörum og þjónustu ýmiss konar. Við hjá Bergvík höfum full- komnustu tæki sem völ er á til fjölföld- unar og framleiðslu myndbanda á ís- landi. Við hvetjum ykkur, lesendur góðir, til að hafa samband við okkur og við munum kappkosta að veita ykkur allar upplýsingar varðandi fjöl- földun og gerð slíkra myndbanda. Við hjá Bergvík höfum bæði reynslu og þekkingu á þessu sviði og okkar markmið er að veita sem fjölþættasta þjónustu á sviði myndbanda. Bergvík, Eddufelli 4,111 Reykjavík, s. 91-79966. Fallegar neglur fyrir sumarið! Gervi- neglur, styrking á eigin nöglum (gel- silkiefni). Vandvirk þjónusta. Opið alla daga. Nánari upplýsingar á Cor- tex, Bergstaðastræti 28 A, sími 91-621920 og helgarsími 23431. ■ Lókamsrækt Tilboð. Vandað þrekhjól með tölvu- mæli, verð aðeins kr. 11.970 staðgr. Vaxtarræktin - frískandi verslun, Skeifunni 19, sími 681717. Sendum í póstkröfu. ljósakort á á veginn! Hraðakstur er orsök margra lysa. Miðum hraða við aðstæður, m.a. við ástand vega, færð og veður. Tökum aldrei áhættu! ^u^erðar Meiming_____ dv Nordbrandt mistækur Ljóðabækur Henrik Nordbrandt eru flestar löngu uppseldar og end- urútgáfa því vel þegin af mörgum. Þetta er níunda ljóöasafn hans af sextán og með þeim minnstu, birt- ist fyrst 1977. Þetta er samfelldur ljóðabálkur auk eins ljóðs fyrir og annars eftir. Hér segir frá húsi, miklu og hrörlegu í þorpi í Grikk- landi. Heil ætt hefur búið þar, sumt flutt burtu, annað dáið. Roskin kona, sem ræður fyrir húsinu, rifj- ar þetta upp fyrir erlendu pari sem gistir þarna, „sögumanni" ljóðsins og konu hans. Þetta umhverfí er eins og svo oft endranær hjá Nord- brandt, myndrænt og draugalegt í þeim skilningi að það einkennist af hlutum sem minna á horfið fólk, auk þess eru hlutimir sérkennileg- ir fyrir Miðjarðarhafsbotn. En skjótt kemur í ljós að þetta hús er ekki mjög efniskennt, þaö er um- fram allt táknrænt. Hitt er kannski ekki eins einhlítt hvað það táknar. í ljóðaúrvali Nordbrandts, sem birtist á íslensku í vetur, voru eitt eða tvö ljóö úr þessu safni. Lítum á eitt hinna, þar sem sögumaður tekur mið af trúarsetningum kristninnar- og íslams - um að sköpunarverk guðs eigi að þroskast til æ meiri fullkomnunar til að nálgast skaparann. Af þessu álykt- ar hann að' guð hljóti að vera um- fram allt hégómlegur, fyrst sköp- unin hefur þann tilgang að hann geti séð sjálfan sig. En þá kemur næsti liður, sköpunarverkið er ekki svo fagurt að það geti verið spegill, öllu heldur hlýtur það þá að vera spéspegill, eða brandari. Og hve hátt guð er hafinn yfir lífið birtist í því að það sem guði er gam- ansemi, það eru þjáningar og dauði saklausra. Þessi guðfræði er burð- argrindin í ljóðinu, en birtist í ein- stökum dæmum, sem eru þrungin ömurleika og beiskju, í skarpri andstöðu við „kírnni” guðs. Það er og dæmigert fyrir Norbrandt að byrja ljóðið á sérkennilegu fyrir- bæri frá Miðjarðarhafsbotni, í þessu tilviki setningu á arabísku og óvenjulegri trúarafstöðu. „’Ana ’al haqq“, siger sufieme: „Jeg er Gud“. Og dette er for dem den hojeste erkend- else fordi Gud skabte Verden som en verden af spejle til at beskue sin egen skonhed i. Nár jeg ser ham aflevere en af sine sædvanhge spoge- fuldheder i form af „News Week“ en enke der roder i skralde- spandene efter noget spisehgt eher en kattekilhng, som landsbyens seksárige drenge har overladt til sultedoden, bliver jeg overbevist om at Gud er humorist, ikke æstet. Daflskarbókmenittir Örn Ólafsson Og nár jeg griner, griner huset ti gange hojere og længe efter at jeg selv er holdt op. Du er vist en rigtig filur, Gud. Du kan sgu selv være dig selv. Eins og sjá má er hreint engin tilbeiðsla í þessu ljóði, og ekki í bókinni þrátt fyrir tith hennar. Sögumaður efast ekki um tilveru guðs en hefur andúð á honum, ein- mitt vegna þess hve hátt hann er hafinn yfir sorgir og þjáningar manna. Nissen flytter med er danskt orð- tak og merkir eitthvað á þá leið, að þótt fólk flytjist i nýtt hús losni það samt ekki við margt sem mest fór í taugarnar á því á gamla staðn- um. Frásögn þessi er nýtt verk, og hefur að sumu leyti svipað svið og ljóðabókin, hér talar skáldið eink- um um hús, sem hann hefur búið í, í Tyrklandi, Danmörku, Marokkó og víðar. Það er stundum gaman að minningabrotum frá því fyrir tuttugu-fimmtán árum. En þau blandast hugarórum ýmsum, og þá mætti nú búast við því að skáldið færi á flug. Því miður er það bara bamalegasti sósuhúmor, minnir helst á Línu langsokk eða Ole Lund Kirkegárd (höfund bókanna Fúsi froskagleypir, Ottó nashyrningur o.s.frv.) T.d. er bemskuhús sögu- manns svostórt að faðir hans verð- ur að nota fahbyssuskot th að kaha á hann, það er í laginu eins og pýra- mídi á hvolfi, sænski herinn gerir innrás í þaö th að siðvæða Dani og banna ofbeldismyndir í sjónvarp- inu o.s.frv. Þessi bók er nærri því eins slæm og reyfarinn sem Nord- brandt sendi frá sér fyrir sex árum. Svona er það stundum, hafi manni tekist vel upp á einu sviði, með góðum gáfum og þrotlausri þjálfun, þá er oft eins og hann haldi að hann geti fyrirhafnarlaust gert eins vel á öðm. Henrik Nordbrandt: Guds hus (Ijóð, end- urútgáfa, 41 bls.) Henrik Nordbrandt: Nissen flytter meðd (frásögn, 129 bls.) Gyldendal 1989 Tilboð. Lyftingasett og pressubekkur með fótatæki, verð aðeins kr. 11.900 staðgr. Vaxtarræktin - frískandi verslun, Skeifunni 19, sími 681717. Sendum í póstkröfu. Tilboð. Róðrarvél í hæsta gæðaflokki, verð aðeins 14.915 staðgr. Vaxtar- ræktin - frískandi verslun, Skeifunni 19, sími 681717. Sendum í póstkröfu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.