Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1989, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1989, Page 4
4 MÁNUDAGUR 8. MAÍ 1989. Fréttir Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins: Stefnir í 3 milljarða króna halla ríkissjóðs Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að það stefni í 2,5 til 3ja milljarða halla ríkissjóðs á þessu ári en samkvæmt fjárlöguih er gert ráð fyrir um 600 milljóna króna tekjuafgangi. Hann segir enn fremur að halli ríkissjóðs fyrstu þrjá mánuðina sé 3,4 millj- arðar króna. „Þetta sýnir auðvitað betur en allt annaö hve ríkisstjórnin, og þá sérstaklega fjármálaráðherra, hef- ur farið af stað með fjárlögin í lausu lofti," segir Þorsteinn. Hann segist hafa látiö kanna fyrir sig hver staða ríkissjóðs væri eftir fyrstu þrjá mánuðina og hafi komið í ljós að ríkissjóður hafi verið rek- inn með 3,4 milljarða króna rekstr- arhalla á móti 2,4 milljarða króna halla á sama tíma í fyrra. „Þessar tölur eru ekki alveg sam- bærilegar þar sem í fyrra vantaði einn mánuð í staðgreiðslunni en á þessu ári vantar einn mánuð í sölu- skatti. Niðurstaða dæmisins er engu að síður afar óglæsileg." Að sögn Þorsteins hafa forsendur fjárlaga breyst í vetur. Gert hafl verið ráö fyrir að almennt verðlag hækkaði um 12 prósent á milli ára en í ljós sé nú að koma aö hækkun- in verði ekki undir 20 prósentum. Einnig hafi verið reiknað með 7 prósenta launahækkunum en þær séu þegar komnar í 9 til 10 pró- sent. Jafnframt hafi verið búist við að meðalverð á erlendum gjaldeyri myndi hækka um 7 prósent en nú þegar hafi gengið falhð um 17 til 18 prósent og umtalsvert gengissig sé augljóslega eftir. Loks segir Þorsteinn að launa- greiðslur ríkissjóðs séu orðnar 700 milljónir króna umfram áætlun, niðurgreiðslur búvara um 600 milljónir. Þá eigi ríkissjóöur eftir að greiða í verðjöfnunarsjóð sjáv- arútvegsins, um 200 til 300 milljón- ir í atvinnuleysistryggingasjóð, um 100 milljónir í niðurgreiðslu raf- orku til útflutningsfyrirtækja og um 200 milljónir til vegamála. „Þá fæ ég ekki betur séð en að óvissuþættirnir síðar á árinu séu ríkissjóði í óhag. Þess vegna sýnist mér stefna í 2,5 til 3 milljarða halla ríkissjóös á þessu ári.“ -JGH Borgarafundur 1 Kópavogi: Mikil mengunarhætta af fyrirhugaðri hraðbraut Hátt á annað þúsund manns sóttu almennan borgarafund í Kópavogi, sem bæjarstjómin boðaði til um málefni Fossvogsdals. Að sögn Val- þórs Hlöðverssonar bæjarfulltrúa var tilgangur fundarins aö kynna bæjarbúum sjónarmið bæjarstjóm- arinnar og hvað fyrirhugaðar hrað- brautarframkvæmdir kæmu til með kosta. Á fundinum töluðu Hallur Bald- ursson fyrir hönd samtaka um Hátt á annað þúsund manns sóttu almennan borgarafund í Kópavogi um málefni Fossvogsdals. Heimir Pálsson, forseti bæjarstjórnar, í ræðustól. vemdun Fossvogsdalsins, Heimir Pálsson, forseti bæjarstjórnar, Sig- mundur Guðbjarnason háskólarekt- or, Brynjólfur Jónsson skógfræðing- ur og Magnús Harðarson, formaður íþróttafélags Kópavogs. Ræðumenn fjölluðu um þann mikla kostnað sem brautinni fylgdi því vitaö er að þetta verður eitt dýrasta umferðarmann- virki á íslandi, upp á 2-3 milljarða. Sigmundur Guðbjarnason gerði að umtalsefni mengunarhættuna sem fylgdi umferð 50 þúsund bíla á sólar- hring. Búið var að stika út fyrirhugaða hraðbraut og að sögn Valþórs rak marga í rogastans þegar þeir sáu hve nálægt byggðinni brautin kæmi til með að liggja. Valþór benti einnig á aö samkvæmt teikningum mun hraðbrautin liggja þétt upp við tvo skóla, Fossvogsskóla í Reykjavík og Snælandsskóla í Kópavogi. -JJ Björgimarsveitm Skyggnir í Vogum: Verkakona á hundraðasta Bj ör gunars veitin Skyggnir hefur fest kaup á nýjum bíl til björgunar- starfa. Staðiö var fyrir söfnun með- al almennings í Vogum og víðar og bárust björgunarsveitinni margar góðar gjafir. Hæst ber þó 50 þúsund króna peningagjöf frá Erlendsínu Helga- dóttur sem verður hundrað ára í ágústmánuöi. Erlendsína hefur oft- lega fært björgunarsveitinni mikl- ar peningagjafir en hún styrkir líka fleiri hjálparstofnanir. Hún prjón- ar teppi og fleira sem hún gefur Rauða krossinum og Hjálparstofn- un kirkjunnar. Ekki er Erlendsína að útdeila neinum auði því hér er um aö ræða ellilífeyri hennar. Erlendsína var bóndakona marga áratugi en vann síðar í fiski fram á áttræðisaldur. Hún vann alla. daga sem vinnsla var, jafnt helga sem rúmhelga. Eins og aðrir fékk hún nætur- og helgidagaálag en sjálfri fannst henni það óverö- skuldaö því hún væri ekki eins dugleg og þeir sem yngri væru og því hætti hún störfum. -JJ varð að sæta „Ef ekkert verður aö gert þá kom- um við til með að þurfa að sæta lagi með aö sigla inn í Þorlákshöfn í sum- ar vegna grynninga. Það er mjög bagalegt fyrir skip með farþega og bíla,“ sagði Jón Reynir Eyjólfsson, skipstjóri á Herjólfi, í samtali við DV. „Nýlega þurftum við að bíða í nokkurn tíma eftir að félli að, og ég veit að þetta ástand er líka slæmt fyrir togarana sem sigla þarna inn. Það hefur safnast mikill sandur við hafnarkjaftinn og fyrir utan. Þetta á rætur sínar að rekja til gífurlegs sandmagns frá Ölfusá sem berst vestur með ströndinni. Ég tel líka að slæmt veður í vetur eigi þama þátt í ástandinu. En það er ljóst að ef ekkert verður að gert þá munum við þurfa að bíða á tímabilinu kl. 11.00- 13.00 þá daga sem stórstreymt er - þá er um að ræða 3-4 daga í mán- uöi,“ sagði Jón R. Eyjólfsson. -ÓTT I dag mælir Dagfari Það sem aldrei sást Jæja. Þar fengum við það beint í smettið. Það sem enginn sér sást ekki þama úti í Sviss. Látum kyrrt liggja ef einhver af þessum útlend- ingum hefði drullast til að gefa okkur eitt stig, svona til þess að vera jafn Hund-Tyrkjanum, þó ekki væri farið fram á meira. En eitt stórt núll er að sjálfsögðu slík móðgun við íslensku þjóðina aö undir þvílíku verður ekki setið þegjandi. Að vísu er hægt að taka fram strax 1 upphafi aö lagið Það sem enginn sér átti ekkert erindi þarna í Júróvisjón. Það áttu náttúr- lega allir að sjá strax í byijun. En það fór sem fór. Lagiö sem tapaði hér heima aö dómi almennings var valið til þess að koma fram sem okkar lag í Júróvisjón. Höfundur lagsins, kunnur maður af Hánefs- staðaætt og hefur til að bera bein í nefinu eins og fleiri úr þessari ætt: En viti menn. Hvorki Hánefs- staðaættin ellegar lagiö reyndist til vinsælda þama úti í Lúsann. Það var ekki einu sinni svo að lagið væri púaö niður, nei, nei. Það var þagað í hel. Gjörsamlega. Ekki eitt atkvæöi hvað þá meira. Algjör þögn um þetta lag sem hefði sómt sér svo vel á Austfjöröum að Ingi heitinn T. heföi verið stoltur af. En þessi lýður í útlendu dómnefndun- um hafði hvorki heyrt Inga T. elleg- ar Valgeir. Vissi ekki einu sinni að höfundur væri af Hánefsstaðaætt og þekkir þar af leiðandi ekki til þess að Tommi Árna vinnur í Seðlabankanum og nagar ekki blý- anta allan daginn heldur skrifar nafnið sitt á bankóseðla sem gilda allt til þess kvölds þeir voru gefnir út. Allt ber þetta að sama brunni þegar grannt er skoðað. Þetta er ekkert annað en stríðsyfirlýsing í garð okkar íslendinga frá hinum svokölluðu Evrópuþjóðum. Svo era þessar þjóðir að gera því skóna að við íslendingar sjálfir göngum í Evrópubandalagið. Heyr á endemi. Fyrr má nú rota en dauðrota. Hafi einhvern tímann komið til tals að gánga í þetta bandalag þá era allar forsendur gjörsamlega brotnar með úrslitum þessarar atkvæða- greiöslu. Við eigum ekkert sameig- inlegt með Evrópuþjóðum sem greiða okkur ekki atkyæði í söng- lagakeppni. Eins og áður hefur ver- ið drepið á var að vísu lagiö hundlé- legt en það er nú bara okkar heima- mál. Sóley, Sóley hans Gunna Þórðar þótti of gott til að sendast til Lúsann og allt í lagi meö þaö. Við sendum nú ekki endilega okkar besta í ostalandið. Þá hefðum við sent Stormskerið og Hrafn á krám- ar ef þær era þá til þama í Sviss, því aö kráarráp þeirra félaga á ír- landi í fyrra skilaði okkur þó alla vega í 16. sætið og við þóttumst góðir með þaö. Aðrar þjóðir bæði fyrir ofan okkur og neðan. Það er ekkert annað en hver sú þjóö sem lifir á sel og hval má búast við þeg- ar dægurlagakeppni er annars veg- ar. En í neðsta sætinu getum við ekki setið. Það er alveg af og frá. Að vísu hefur þessi keppni alltaf verið að dala frá því við byrjuðum að taka þátt. Þið munið þegar Gleðibankinn fór til Bergen ásamt helftinni af yfirstjórn Ríkisút- varpsins til þess eins að taka við verðlaununúm sem að vísu runnu okkur úr greipum fyrir óskiljanleg mistök annarra dómenda. En þá var sigurinn í höfn, svona næstum því. Síðan hefur allt farið niður á viö svona hægt og hljótt en aldrei höfum við íslendingar verið íjær sigri en síðasta laugardagskvöld. Þetta verður auövitað til umræðu á næsta Noröurlandaráðsþingi því við höfum ekkert að gera í því sam- starfi ef þessir asskotar geta ekki einu sinni greitt okkur atkvæði í svona raulkeppni. En þegar á allt er litið þá er bara málið það, að það sem aldrei átti aö sjást í Lúsann það sást og heyrð- ist og því fór sem fór. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.