Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1989, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1989, Blaðsíða 8
8 ' MÁNUDAGUR 8. MAÍ 1989. Viðskipti 100 milljóna hagnaður Essó Olíufélagið hf., Essó, ásamt dóttur- fyrirtækjum hagnaðist um 100 millj- ónir króna eftir skatta á síðasta ári. Velta Essó var rúmir 5 milljarðar á síðasta ári sem er tæplega 20 pró- senta aukning frá árinu áður en það er einmitt sama tala og verðbólgan nam á milli áranna. Fram kom á aðalfundi félagsins, sem haldinn Var á dögunum, að Olíu- félagið hf„ Essó, er langstærsta olíu- félag landsins með um 45,28 prósent af markaðnum. Um 280 starfsmenn unnu hjá félaginu á síðasta ári. Eigið fé Olíufélagsins ásamt dóttur- fyrirtækjum var í lok síðasta árs tæplega 2,2 milljarðar króna. í stjórn Essó sitja þeir Kristján Loftsson, for- maður, Magnús Gauti Gautason, Karvel Ögmundsson, Oddur Sigur- bergsson og Sigurður Markússon. -JGH Olíufélagið hf„ Essó, ásamt dótturfyrirtækjum var með um 100 milljóna króna hagnað á síðasta ári. Átta milljóna tap á stærstu fóðurstöðinni Þórhallur Ásmundss., DV, Sauðárkróki: Stærsta fóðurstöð landsins, Mel- rakki á Sauðárkróki, tapaði 8 milljón- um króna á síðasta ári. Fóðurfram- leiðslan í fyrra var 4200 tonn sem var 500 tonnum minna en áætlað var. Átta aðilar á sölusvæði Melrakka hættu loðdýrabúskap á síðasta ári, sjö í Skagafirði og einn í Húnaþingi. Engir hafa bæst í hópinn. Þær breytingar urðu á stjórn Mel- rakka á aðalfundi félagsins að Árni Guðmundsson tók við formennsku af Marteini Friðrikssyni og sæti Marteins í stjórninni tók Ágúst Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Út- gerðarfélags Skagfirðinga. .JGH THE CENTRAL INSURANCE LTO Ársreikningur 1988 32. REIKNINGSAR Tryggingamiðstöðin hf. Gott gengi á siðasta ári. Tryggingamiðstöðin græddi 40 milljónir Tryggingamiðstöðin hf. skilaöi um 40,5 milljóna króna hagnaöi fyrir skatta á síðasta ári. Reiknaðir skattar eru um 12,5 milijónir þann- ig aö endanlegur hagnaður fyrir- tækisins er um 28 milljónir króna. Hreinar tekjur af iðgjöldum á árinu 1988 námu um 580 milljónum króna en tjóngreiðslur námu hins vegar um 726 milljónum króna. Það vantaði því um 146 milljónir króna upp á að iðgjöld dygðu fyrir tjónun- um á síöasta ári. A árinu 1987 var þessi taia um 53 milljónir. Aðrar tekjur Tryggingamið- stöðvarinnar eru umboðslaun og ijármunatekjur. Hreinar tekjur af umboðslaunum námu um 43 millj- ónum og hvorki meira né minna en um 270 milljónum af fjármuna- tekjum. Skrifstofukostnaður var um 91 milljón króna. Tryggingamiðstöðin er þriöja stærsta tryggingafélag landsins, næst á éftir Vátryggingafélagi ís- lands hf. og Sjóvá-AImennum hf. Athyglisverö bók: Fyrsti íslenskaði töflureiknirinn Athyglisverð bók í íslensku við- skiptalífi kom út á dögunum. Það er bókin töflureiknirinn Plan Perfect sem er fyrsti íslenskaði töflureiknir- inn. Höfundur Plan Perfect bókarinnar er Matthías Magnússon en það er Tölvufræðslan sem gefur bókina út. Matthías er jafnframt höfundur Word Perfect bókarinnar sem notið hefur mikilla vinsælda. Plan Perfect er systurforrit Word Perfect. Fjölmargar skýringarmyndir og verkefni eru í bókinni. I henni má finna hugmyndir og ráð um þaö hvernig beita má ýmsum möguleik- um töflureiknisins á lausn hagnýtra verkefna. Bókin er 150 blaðsíður að stærð. -JGH Handboltasamningurinn handsalaóur. Frá vinstri Ólafur B. Thors, forstjóri Sjóvá-Almennra, Jón Hjaltalín Magnússon, formaóur HSÍ, og Einar Sveins- son, forstjóri Sjóvá-Almennra. Boltamenn tryggja sig Matthias Magnússon, höfundur Plan Perfect bókarinnar. Matthías er jafn- framt höfundur bókarinnar um rit- vinnsluforritið Word Perfect sem kom út fyrir nokkrum árum. DV-mynd S Samstarfssamningur á milh Sjóvá-Almennra og Handknattleiks- sambands íslands hefur verið undir- ritaður og handsalaöur. Samningur- inn gengur út á að Sjóvá-Almennar slysatryggir öll 10 landshð HSÍ við landsliösæfingar, í landsleikjum og á landsliösferðalögum. Jafnframt verður tryggingafélagið einn helsti stuðningsaðili heimsmeistarakeppn- innar árið 1985. -JGH Varaflugvöllur á Sauðárkróki: munur á 200 milljónum og 700 Þórhallur Ásrrumdsson, DV, Sauðárkröki: „Mér hefur verið skýrf frá þessari niðurstöðu og veit um óánægju bæj- arstjórnar Sauðárkróks með skýrsl- una og hlut Alexandersflugvallar þar en tel ekki rétt að ég aðhafist annað í máhnu en það að óska eftir því við höfunda skýrslunnar að þeir komi norður til viðræðna við bæjar- stjórn," sagði Steingrímur Sigfússon samgönguráðherra þegar varaflug- vallarmálið bar á góma á opnum stjómmálafundi í Miðgarði nýlega. Bæjarstjóm Sauðárkróks barst nýlega bréf frá flugmálastjóra, Pétri Einarssyni, en hún hafði óskað eftir nákvæmri úttekt á því hvað gerð Sauðárkróksflugvallar hefði kostað á núvirði. Niðurstaðan kemur fram í bréfi flugmálastjóra. Hún er 94 millj- ónir og er inni í þeirri tölu einnig malbikun flugvallarendans sem gerð var á árinu 1983. Bæjarfulltrúar á Sauðárkróki hafa bent á að kostnaður vegna lengingar Alexandersflugvallar upp í 2700 metra, eins og ráðgert er að varaflug- völlurinn á Egilsstöðum verði, sé stórlega ofáætlaður. Þeir segja það algjörlega út í hött að miða við að- stæður á Egilsstöðum þegar verið sé að áætla kostnað vegna lengingar Alexandersflugvallar. Hér séu að- stæður allt aðrar, t.d. mikill meiri- hluti efnis rétt við völlinn. Það sé því æði breitt bil frá tæpum 200 milljón- um upp í 700. Félagsstofnun stúdenta á Akureyri: Bygging fjölbýlis- húss er að hefjast Gyifi Kristjánascm, DV, Akureyri: , Jiörfin fyrir þessa byggingu eöa lausn á húsnæðisvanda stúdenta á Akureyri meö öörum hætti er geysileg. Grundvöliurinn fyrir því aö háskólinn hér á Akureyri geti vaxið og dafnað er að hér sé hús- næði fyrir stúdenta,“ segir Sigurð- ur P. Sigmundsson, formaöur Fé- lagsstofnunar stúdenta á Akureyri. Stjóm Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri hefur ákveðið að taka tilboöi tveggja fyrirtækja í bænum um byggingu fjölbýlishúss en þessi fyrirtæki eru SS Byggir og Möl og sandur. Tilboð þessara fyrirtækja í bygginguna hjjóðaöi upp á 66 milíjónir og á húsið að vera tilbúið til notkunar 1. október í haust. Húsið, sem mun rísa við Skarðs- hlíð, verður fjölbýlishús á þremur hæöum. I því verða 14 einstaklings- herbergi, 4 paríbúðir, fjórar 2ja herbergja íbúðir og tvær 3ja her- bergja íbúðir. „Þörfm fyrir húsnæði fyrir stúd- enta hér í bænum er svo mikil aö það er ljóst að hér er aðeins um aö ræða fyrsta áfanga í byggingarmál- um okkar,“ sagði Siguröur. „Viö þurfum strax aö byggja annað hús en ætlum að koma þessu af staö fyrst." Sigurður sagði að 85% kostnaöar- ins viö byggingu hússins kæmi í gegnum húsnæðismálakerfið en 15% þyrfti Félagsstofnun stúdenta að fjármagna. Félagið stundar alhliða tryggingar en sérsvið þess tengist mest sjávar- útvegi. -JGH Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækurób. 14-15 Vb.Ab,- Sp.Lb Sparireikningar 3jamán. uppsögn 14-17 Vb 6mán. uppsögn 15-19 Vb 12 mán. uppsögn 15-16,5 Ab 18mán. uppsögn 32 Ib Tékkareikningar.alm. 3-8 Vb.lb,- Ab.Sp,- Lb Sértékkareikningar 4-17 Vb Innlan verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1-2 Vb 6mán. uppsögn 2-3 Allir nema Úb Innlánmeð sérkjörum 23.5-27 Lb.Bb,- Úb.Vb,- Sb Innlángengistryggð Bandaríkjadalir 8,75-9 lb,V- b.Ab.S- Sterlingspund 11,75-12 Sb.Ab,- Vb.Bb Vestur-þýskmörk 4,75-5,5 Ab Danskarkrónur 6,75-7,5 Bb.Sp ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv.) 25-27.5 Lb Viðskiptavixlar(forv.) (1) kaupgengi Almennskuldabréf 26.5-30 Lb.Úb Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir . Hlaupareikningar(vfirdr.) 28,5-31 Lb Utlan verðtryggð . Skuldabréf 7.25-9.25 Lb. Utlán til framleiðslu Isl. krónur 25-29,5 Lb SDR 9,75-10 Lb Bandaríkjadalir 11,75 Allir Sterlingspund 14,5-14,75 Sb Vestur-þýsk mörk 7,75-8 Allir nema Húsnæðislán 3,5 Sb Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 33,6 MEÐALVEXTIR Överðtr. mai 89 27,6 Verðtr. mai 89 7,9 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala maí 2433 stig Byggingavísitala maí 445stig Byggingavisitalamaí 139 stig Húsaleiguvísitala 1,25% hækkun 1. april VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 3,783 Einingabréf 2 2,109 Einingabréf 3 2.475 Skammtímabréf 1,307 Lífeyrisbréf 1,902 Gengisbréf 1.697 Kjarabréf 3,767 Markbréf 1,998 Tekjubréf 1,666 Skyndibréf 1.146 Fjölþjóðabréf 1.268 Sjóðsbréf 1 1,817 Sjóðsbréf 2 1,493 Sjóðsbréf 3 1,286 Sjóðsbréf 4 1,070 Vaxtasjóðsbréf 1.2770 HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Sjóvá-Almennar hf. 278 kr. Eimskip 340 kr. Flugleiðir 162 kr. Hampiðjan 158 kr. Hlutabréfasjóður 122 kr. Iðnaðarbankinn 147 kr. Skagstrendingur hf. 247 kr. Útvegsbankinn hf. 134 kr. Verslunarbankinn 134 kr. Tollvörugeymslan hf. 103 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaup- gengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnu- banki kaupa viðskiptavlxla gegn 31% ársvöxtum og nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðarbankinn, lb=lðnaðar- bankinn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánari upplýsingar um peningamarkað- inn birtast i DV á fimmtudögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.