Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1989, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1989, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 8. MAÍ 1989. 13 Fréttir Stykkishólmur: Gamalt hús í glæstum búningi Valdimar Hreiöaisson, DV, Stykkishólmi: Ekki er ýkja langt síðan svokallað Egilshús var þyrnir í augum gesta og gangandi í Stykkishólmi. Þetta gamla hús var að hruni komið, orðið sannkallaður hjallur og þurfti að grannskoða það lengi til að geta látið • sér detta í hug að þarna hefði ein- hvern tíma staðið virðulegt hús. Síð- an gerðist það að hópur fólks tók sig saman og endurreisti Egilshús í upp- haflegri mynd og var hvergi til spar- að til að komast sem næst uppruna- legu útliti hússins. Nú er búið að hefja Egilshús til fyrri vegsemdar og jafnframt hefur það fengið nýtt hlutverk. í þessu glæsilega gamla húsi er nú rekin gisti- og veitingasala sem þjónar fyrst og fremst ferðamönnum en þeim hefur farið ört fjölgandi í Stykkis- hólmi á undanförnum árum. Tíu tveggja manna herbergi eru í húsinu og er hægt að fá þessi herbergi ýmist sem svefnapokapláss eða með upp- búnum rúmum. Egilshús sf., sem rekur gisti- og Egilshús, fínt og fallegt. DV-mynd Valdimar veitingasöluna, er einnig með svefn- pokaaðstöðu í litlu félagsheimili í næsta húsi og þar er mögulegt að fá aðgang að eldunaraðstöðu. Aðstand- endur Egilshúss eru bjartsýnir hvað varðar sumarið. Pantanir eru teknar að berast og er allt útlit fyrir mikinn straum ferðamanna til Stykkishólms í sumar. Iðnsýning á Egilsstöðum Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstööum: Iðnsýning, sem haldin verður á Egilsstöðum 23. júní til 2. júlí í sum- ar, hefur hlotið nafnið Drekinn ’89. Þár munu fyrirtæki á öllu Austurl- andi sýna og kynna framleiðslu sína og þjónustu. Sýningin er haldin á vegum Átaksverkefnisins Egilsstað- ir-Seyðisíjörður og Atvinnuþróun- arfélags Austurlands. Nær 50 fyrir- tæki hafa þegar skráð þátttöku sína en framkvæmdastjóri sýningarinnar er Anna Ingólfsdóttir. Á vegum sömu aðila var dagana 22. og 23. apríl sl. haldið námskeið um sölu og markaðsmál fyrir stjóm- endur fyrirtækja og þátttakendur í sýningunni. Námskeiðið var vel sótt og ítarlegt. Leiðbeinandi var Magnús Pálsson rekstrarráðgjafi. Egilsstaöir: Burt með ruslið Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egiisstöðum: Framfarafélag Fljótsdalshéraðs hefur gefið út litprentaðan bækling þar sem fólk er hvatt til að bæta umgengni og leggja af þann ósið að henda rusli á víðavangi. Bækhngn- um hefur verið dreift á öll heimili í Austfirðingaljóröungi. Þar segir meðal annars: „Öll viljum við hafa snyrtilegt í kringum okkur og flestum líður bet- ur heima þegar búið er að taka til. Sama gildir um annað umhverfi okk- ar, garðinn, götuna, hverfið, bæinn eða sveitina. Öll skaðleg mengun á jörðinni er af manna völdum. Aht rusl í umhverfi okkar er frá okkur komið. Ef við öll hættum að fleygja rush út um allt líður ekki á löngu þar til umhverfið verður th fyrir- myndar. Vilji er allt sem þarf.“ Frá námskeiðinu um sölu og markaðssetningu á Egilsstöðum. DV-mynd Sigrún Teikning af flugvellínum með 2700 metra braut. Nýtt flugvallarhlað verð- ur vestan við flugstöðina. Teikningin er unnin hjá Skipulagsstofu Austur- lands. Egilsstaðir: Flugbrautin í 2700 metra Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstöðum: Sá flugvöllur, sem nú er í bygg- ingu á Egilsstööum, veröur með 2000 m langri braut en nú er hafmn undirbúningur að lengingu þeirrar brautar til suðurs um 700 metra. Búið er að kynna landeigendum máhð og mun Flugmálastjórn semja við þá um land undir þessa viðbótarlengingu. Þegar hún kem- ur til framkvæmda verður að færa þjóðveg 1 allmikið til suðurs. Ljóst er að ekki verður haflst handa við þessa viðbót fyrr en gerð hinnar 2000 m brautar er að fullu lokið. Nú er verið að vinna að jarð- vegsskiptum í siðari áfanga og lýk- ur því verki í sumar. Þá verður fylling að síga og jafna sig og er þvi ekki hægt að malbika og fullgera þá braut fyrr en sumarið 1991. Þeg- ar flugbrautin verður oröin 2700 metrar er hún nægileg fyrir allar farþegavélar við eðlilegar aðstæð- ur, að sögn Ingólfs Amarsonar, umdæmisstjóra Flugmálastjórnar á Austurlandi. (y)PIONEER 90Q HJÁOKKUR FINNAALLIR EITTHVAÐ VIÐ SITT HÆFI Verð frá kr. 12.800,- ÞAR SEM GÆÐI OG ENDING SKIPTA MALI VERIÐ VELKOMIN HLJOMBÆR HLJOM'HEIMILIS'SKRIFSTOFUTÆKI unTu^ HVERFISGÖTU 103 SI'MI 25999 - 17244 Isetning samdægurs Radíóþjónasta Bjarna SÍÐUMÚLA 17. SÍMI 83433

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.