Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1989, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1989, Qupperneq 15
MÁNUDAGUR 8. MAÍ 1989. 15 „Ef þú bara giftist" Allir viðurkenna, að skattheimta er nauðsynleg til að standa undir margvíslegri þjónustu í þjóðfélag- inu. Fæstir eru hins vegar fyllilega ánægðir með framkvæmd hennar og hvernig byrðunum er skipt milh manna. Og því miður finnast sann- arlega dæmi um óréttlæti og mis- munun í skattalöggjöf okkar. Hér skal bent á eitt slíkt dæmi, sem ber að leiðrétta. Millifærsla persónuafsláttar Árið 1985 var sett í lög um tekju- skatt og eignarskatt ákvæði, sem heimilar millifærslu ónotaðs per- sónuafsláttar milh hjóna. Þannig getur framteljandi bætt 80% af ónotuðum persónuafslætti maka við persónuafslátt sinn og fengið þannig verulega lækkun á tekju- skatti. Sama gildir um karl og konu í óvígðri sambúð að uppfyhtum ákveðnum skilyrðum. Kvennalistakonur voru andvígar þessu ákvæði á sínum tíma og vildu heldur nýta það fé, sem þannig er fært á milli, th hækkunar á barna- bótum, enda í 'mörgum tilfellum einmitt um það að ræða, að annað foreldrið er tekjulágt eða tekjulaust vegna þess að það helgar sig umönnun eigin barna. Hvað með einstæða foreldra? Auk þess bentum við á, aö með þessu ákvæði væri gert upp á milli sambúðarforma, þar sem það nýtt- ist aðeins hjónum eða karii og konu í viðurkenndri sambúð. Hvað með systkini á sama heimih með sömu skiptingu tekna? Hyað með óskylda aðila af sama kyni? Og hvað með einstæða foreldra, sem búa með uppkomnum börnum sínum? Þessi rök og önnur voru léttvæg fundin í þinginu, sem samþykkti þessa lagabreytingu með miklum meiri hluta. í þjóðfélaginu virtist nokkuð almenn ánægja með þetta ákvæði, sem sannarlega kemur sér vel á heimilum með verulega mis- skiptar tekjur. „Efsonurinn væri eiginkona“ Nú hefur hins vegar runnið upp fyrir mörgum það óréttlæti, sem KjaUaiinn Kristín Halldórsdóttir þingkona Kvennalista felst í því að gera á þennan hátt upp á milli sambúðarforma. Um þetta hefur að vísu ekki mikið ver- ið ritað, en þeim mun meira rætt, einkum meðal einstæðra mæðra, sem upp th hópa berjast í bökkum og eiga bágt með að sjá réttlætið í því, að nýting ónotaðs persónuaf- sláttar þurfi að helgast af kynferð- islegu sambandi karls og konu. í kjallaragrein í DV í okt. sl. benti Herbert Guðmundsson á, að hann og sonur hans mundu borga u.þ.b. 125 þús. kr. hærri beina skatta það árið en ef sonur hans væri eigin- kona hans og aðstæður að öðru leyti hinar sömu. Herbert hafði rætt máhð ítarlega við ríkisskatt- stjóra og fengið skrifleg svör við ýmsum spurningum ásamt út- reikningum, sem hann sendi al- þingismönnum til þess að vekja athygli þeirra á óréttlætinu. Eftir 16 ekki meir Skattalöggjöfm tekur að sönnu tillit til aðstæðna einstæðra for- eldra með því að þeir fá töluvert hærri barnabætur en foreldrar í sambúð. En barnabætur faha niður við 16 ára aldur, og þá eru í flestum tilfellum nokkur ár þangað til þess- ir einstaklingar eru orðnir sjálfum sér nógir, hvað þá að þeir séu þess megnugir að leggja eitthvað til heimilisins. Flest ungt fólk stundar nú nám fram eftir aldri til undirbúnings lífsstarfl sínu og nýtur á meðan margs konar stuönings frá foreldr- um, svo sem ókeypis fæðis og hús- næðis eða beinnar fjárhagslegrar aðstoðar. Slíkt þykir öllum sjálf- sagt, en er misjafnlega auðvelt eftir aðstæðum. Mörgum einstæðum foreldrum er það erfitt og jafnvel ókleift. Frumvarp Kvennalistans Það mundi auðvelda einstæöum foreldrum að styðja börn sín til náms og annars undirbúnings und- ir líflð, ef þeim væri heimilt að nýta ónotaðan persónuafslátt barna sinna, sem eiga hjá þeim lög- heimili, en einmitt það leggja kvennahstakonur til í frumvarpi, sem til umfjöllunar er á Alþingi. Fengist það samþykkt væri það stórt skref í réttlætisátt. Kristín Hálldórsdóttir Þessi rök og önnur voru léttvæg fundin í þinginu, sem samþykkti þessa lagabreytingu með miklum meiri hluta. „Nú hefur hins vegar runniö upp fyrir mörgum það óréttlæti, sem felst 1 því að gera á þennan hátt upp á milli sam- búðarforma.“ Laun fyrir menntun - hvers vegna? Mig hefur oft furðað á því hvers vegna fólk skilur ekki að sómasam- leg greiðsla þarf að koma fyrir það að hafa lagt á sig langt háskólanám í sjálfs sín þágu og þjóðarheildar- innar. Mun ég reyna að svara því í mæltu máli hvers vegna menn þurfa að fá greiðslu fyrir langt skólanám. 1. Meðan á langskólanámi stendur, sem er 4-6 ár að loknu stúdents- prófi, hafa menn lítil sem engin laun en safna frekar skuldum. Aö loknu prófi eru menn því 25-26 ára gamlir. Sé um sérnám að ræða bætast viö 2-3 ár. 2. Vegna þess að starfsævi er mun styttri hjá þeim sem ljúka há- skólanámi heldur en þeirra sem fara út í atvinnulífið strax að loknu grunnskólanámi, fram- haldsskólanámi eða iðnnámi er nauösynlegt að bæta upp launa- missinn með hærri launum. 3. Laun þurfa að vera verulega hærri en meðallaun til þess að launatap vegna þess sem greinir í 1. og 2. náist. Kjallariim Gísli G. ísleifsson lögfræðingur Bilið aldrei brúað Við sjáum alls staðar í kringum okkur hverju launamismunurinn á fyrstu starfsárunum veldur. Nær- tækt er að nota mitt eigið dæmi í þessu skyni. Þegar ég útskrifaðist úr háskóla 25 ára, að verða 26 ára, var ég eignalaus en skuldlítiil vegna'mikillar vinnu með námi. Synir mínir þrír, sem voru 25-27 ára fyrir tveimur árum, áttu tveir íbúðir og bíl en sá yngsti var ennþá við framhaldsskólanám og störf og átti ekki eignir en hinir tveir eru iðnaðarmenn. í dag á einnig sá yngsti, nú 26 ára, íbúð. Þessi frá- sögn mín er ekkert einsdæmi slík dæmi er að finna allt í kringum okkur. En við sjáum í hendi okkar að ekkert réttlæti er í því að halda þeim sem lagt hefur á sig háskóla- nám - því að háskólanám er erfið vinna - á svo lágum launum að hann fái aldrei náö að brúa launá- bil það sem ég hef lýst hér að ofan. Sú skoðun hefur heyrst og ekki síst nú á verkfallstímabilinu að háskólamenn séu afætur sem hafi fengið pám sitt ókeypis og greitt af láglaunahópum. Því er til að svara að nemendur í háskóla greiða af tekjum sínum skatta eins og annað fólk og að námi loknu því meira sem þeir eru hærra launað- ir. Sem betur fer geta ahir komist í þennan „afætuhóp" þar sem menntun er ekki lengur forréttindi útvaldra heldur tiltæk öllum sem hafa til þess vhja og áhuga að fást við það. Hvað með söluskattinn? Að lokum smáhugleiðing um það hvernig ríkið getur greitt starfs- mönnum sínum hærriiaun. í blöð- um má lesa þessa dagana að ríkis- sjóður hafi verið rekinn með 800 milljón króna afgangi fyrstu 3 mán- uði ársins, einkum vegna betri heimtu á söluskatti. Jafnframt má lesa það í blöðum að 3,1 mhljarður króna sé gjald- fallinn og útistandandi af sama skatti. - Hvenær gerðist það að ekki var lengur refsivert að taka fé ófrjálsri hendi úr eigin vörslu? Hvernig væri að láta þá sem ekki skila söluskatti vita að nú yrði við- urlögum þeim sem fjárdrættinum fylgja beitt. Fengi ríkissjóður þá ekki þessa milljarða sem hægt yrði að nota til þess að greiða sómasam- leg laun þegar það er nú einnig haft í huga að ríkið tekur sennilega um % af greiddum launum th baka í beinum og óbeinum sköttum? Reykjavík, í verkfalli 30. apríl 1989 Gísli G. Isleifsson lögfræðingur „Sú skoðun hefur heyrst og ekki síst nú á verkfallstímabilinu að háskóla- menn séu afætur, sem hafi fengið nám sitt ókeypis og greitt af láglaunahóp- um.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.