Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1989, Page 23
MÁNUDAGUR 8. MAÍ 1989.
23
íþróttir
Frétta-
stúfar
Nýkrýndir Norðurlandameist-
arar í körfuknattleik, Svíar,
sýndu það og sönnuðu um heig-
ina að þeir eru bestir Norður-
landaþjóða í körfuknattleik.
Landslið Svía lék gegn því
finnska í Gautaborg og lauk
leiknum meö yfirburöasigri
Norðurlandameistaranna, 87-64,
eftir að staöan í leikhléi hafði
vetið 42-34, Svium í vil.
í hði Svía var Henrik Evers
stigahæstur með 25 stig en bjá
Finnum var Pekka Markkanen
stigahæstur með 16 stig.
Svíar töpuðu hins
vegar í biaki kvenna
í Svíþjóð léku um helgina
kvennalandslið Svía og Finna í
blaki. Hart var barist og þurfti 5
hrinur til að knýja fram úrslit.
Finnar unnu fyrstu hrimrna
12-15, Svíar þá næstu, 15-13, og
þriðju hrinuna unnu sænsku
stúlkurnar einnig, 15-13. Staðan
var því 2-1 fyrir Svía að loknum
3 hrinum. En finnska liðið náði
góðum leik í tveimur síðustu
hrinunum og sigraöi í þeim, 4-15
og 13-15, og því samanlagt í leikn-
um, 2-3.
Stórsigur Svia gegn
liði Pólverja
Landshð Pólverja og
Svía, skipuð leik-
mönnum 21 árs og
yngri, léku um helg-
ina í Halmstad í Sviþjóð í und-
ankeppni Evrópukeppninnar í
knattspyrnu. Svíar höfðu
mikla yfirburði og sigruðu, 4-0,
eftir að staðan hafði verið 1-0
í leikhléi. 1310 áhorfendur
fylgdust með leiknum og með
sigrinu skutust Svíar að hhð
Englendinga í 2. riðli en báðar
þjóöimar hafa nú 5 stig að
lokmun 3 leikjum.
Lítil fyrirhöfn
hjá Steffi Graf
Vestur-þýska tenn-
isdrottningin Steffi
Graf hefur oft þurft
að hafa mikið fyrir
sigrum á hinum ýmsu mótum
og margir svitadropamir hafa
fallið tii jarðar þegar hún hefur
verið að innbyrða sigra.
Um helgina lauk í Hamborg í
Vestur-Þýskalandi opnu
kvennamóti og þar var Graf
komin í úrsht gegn Jönu No-
votnu frá Tékkóslóvakíu. Lítið
þurfti Graf að hafa fyrir þyí að
vinna sigur í úrslitaleiknum
því honum var aflýst eftir að
Novotna hafði ekki staöist
læknisskoðun.
m
Tvöfaldur sovéskur
sigur i fimleikum
Sovétmenn uröu í
tveimur efstu sætun-
um á Evrópumeist-
aramótinu í fimleik-
um karla er keppt var í fjöl-
þraut um helgina. Evrópu-
meistari varð Igor Korobchin-
sky og hlaut hann 58,100 stig.
Landi hans, Valentin Mogilnyi,
veitti honum harða keppni og
hlaut 58,050 stig. Flestir höfðu
veðjað á hann sem sigurvegara
fyrir keppnina en nokkur mis-
tök í gólfæfingum kostuðu
hann sigurinn. Þess má geta að
sænskur fimleikamaður, Jo-
han Jonasson, varð fjórði og
hlaut 57,800 stig. Er það besti
árangur sem sænskur fim-
leikamaður hefur náð í meira
en tvo áratugi á Evrópumóti í
fimleikiun þannig að Svíar
virðast vera i framfor í fimleik-
unum.
Enska bikarkeppnin í knattspymu:
„Þessi úrslit hafa eflaust
glatt alla Englendinga“
- Liverpool sigraði Nottingham Forest, 3-1, og leikur til úrslita gegn Everton
„Það voru aöeins mínir menn sem
léku til sigurs í þessum leik. Þessi
sigur er mjög mikilvægur fyrir aha
í Liverpool eftir það sem gerðist á
Hillsborough," sagði Kenny Dalghsh,
framkvæmdasfjóri Liverpool, í gær
eftir að Liverpool hafði sigrað Nott-
ingham Forest í undanúrshtaleik
ensku bikarkeppninnar í knatt-
spyrnu með þremur mörkum gegn
einu. Liverpool leikur því til úrslita
gegn Everton á Wembley þann 20.
maí. Þetta er í þriðja skiptið á síð-
ustu fjórum árum sem Liverpool
kemst aha leið í úrshtin.
Leikmenn Liverpool virtust kunna
vel við sig á Old Trafford, heimavelh
Manchester United, þar sem leikur-
inn fór fram. Liverpool hafði mikla
yfirburði í leiknum gegn Forest í
gær. Og liðið fékk sannkallaða óska-
byrjun er John Aldridge skoraði
strax á 3. mínútu leiksins. „Ég held
að þessi úrsht hafi glatt alla Englend-
inga,“ sagði Aldridge eftir leikinn.
Neil Webb tókst að jafna metin á 33.
mínútu fyrir Forest með vinstri fótar
þrumufleyg af 20 metra færi og þann-
ig var staðan í leikhléi.
John Aldridge kom Liverpool á ný
yfir á 57. mínútu leiksins og Brian
Laws innsiglaði sigur Liverpool á 71.
mínútu er hann skoraði sjálfsmark.
Skömmu áður en leikurinn átti að
hefjast streymdu áhorfendur enn að
aðgönguhhðum Old Traifford og því
var brugðið á það ráö að fresta leikn-
um um 15 mínútur th að allir áhorf-
endur gætu komið sér fyrir með góðu
móti. Ahs voru 38 þúsund áhorfend-
ur á leiknum og er tahð að margir
hafi kosið að sitja heima eftir harm-
leikinn á Hillsborough, að margir
áhorfendur hafi einfaldlega ekki
treyst sér til að horfa á viðureign
þessara hða svo skömmu eftir slysið.
-SK
• John Aldridge sést hér fagna seinna marki sínu gegn Nottingham Forest á Old Trafford í gær. Aldridge skoraði tvívegis er Liverpool sigraði Forest, 3-1,
og liðið leikur gegn Everton i úrslitum bikarkeppninnar. Símamynd/Reuter
Evrópumótið í kraftlyítmgum:
Magnús hlaut silfur
Magnús Ver Magnússon frá Vestmannaeyjum hlaut silfurverðlaun í
sínum þyngdarflokki á Evrópumótinu í kraftlyftingum sem fram fór í
Finnlandi um helgina.
Magnús lyfti samtals 885 kg. Hjalti Árnason féh úr keppni í þyngsta
flokknum er hann reyndi við 342,5 kg í réttstöðulyftu og bronsverðlaun.
Það tókst ekki og Hjalti var þar með úr leik.
Litli bikarinn í knattspymu:
Stórsigur hjá FH
FH-ingar unnu um helgina stórsigur á hði Akumesinga í leik liðanna
í htlu bikarkeppninni í knattspymu. FH sigraði 4-0 og voru það þeir
Pálmi Jónsson (2) og Hörður Magnússon (2) sem skoruöu mörk FH.
Af öðrum úrslitum um helgina má nefna að Víðismenn sigruðu lið
Breiðabliks, 1-0, Stjarnan vann Selfoss á Selfossi, 0-1, og Keflavík’sigraði
Hauka í Hafnarfirði, 2-3. -SK
Hér sjást þeir kylfingar sem náðu draumahöggi allra kylfinga hér á landi á síðasta sumri, að fara holu i höggi. Um helgina voru þessir snjöllu
kylfingar heiðraðir og voru það Einherjaklúbburinn og Vangur h/f sem stóðu að verðlaunaafhendingunni. Eins og sjá má voru kylfingarnir á öllum aldri.
DV-mynd S