Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1989, Blaðsíða 7
IjAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 1989.
7
Fréttir
Oskar Sigurösson, vitavörður á Stórhöfða:
Getur verið þreytandi
- að vakna á þriggja tíma fresti
„Það getur verið þreytandi að
vakna á þriggja tíma fresti allan sól-
arhringinn allt árið. Ég er búinn að
vera í þessu starfl í 24 ár. Ég er ekki
alltaf einn og þarf því ekki að vakna
á öllum tímum. Ég hef tekið mér
þessi veiýulegu frí á sumrin. Annars
má segja að ég sé hér öllum stimd-
um,“ sagði Óskar Sigurðsson, vita-
vörðmr og veðurathugunarmaður á
Stórhöfea á Heimaey.
Allir landsmenn hafa heyrt Stór-
höfða nefndan í veðurlýsingum í út-
varpi. Veðurathugunarstöð var fyrst
komið upp í Vestmannaeyjum árið
1877. 1921 var stöðin flutt að Stór-
höfða og þar hefur hún verið síðan.
Stórhöfði er um 120 metra yfir sjó. i
veðurfréttum virðist sjaldan vera
logn á Stórhöfða.
„Það er logn fáa daga á ári. Það
munar tveimur vindstigum hvað er
hvassara hér en á sjónum. Vindstigin
sem eru gefin upp á Stórhöfða segja
því ekki alltaf rétt til um vindinn hjá
sjómönnunum. Eins er mim lygnara
í kaupstaðnum þar sem þar er gott
skjól vegna fjallanna."
Fyrsti vitinn var byggður á Stór-
höfða 1906. Hann var með olíuljósum.
Síðan voru ljósavélar notaðar og nú
er notast við rafmagn. Óskar sagði
að það hefði verið hrein bylting að
fá rafmagnið. Bilanir heyra nú nán-
ast sögunni til og öryggi sjófarenda
því mun meira en áður var.
„Það er aldrei að vita hvenær menn
eru að nota ljósin frá vitanum og því
er nauðsynlegt að hægt sé að treysta
homnn,“ sagði Óskar Sigurðsson.
-sme
DV-mynd BG
X
,fljá ÓS fást sterkar og fallegar
hellur tíl að gera hvers kyns stéttir og
bflastæði. Ég mæli með hellunum frá
ÓS og byggi þau meðmæli á
reynslunni. Þær eru framleiddar úr
öldu hráefni og góðir kantar gera það
verkum að allar línur verða reglulegar.
Hellunum er pakkað í plast og þeim
ekið heim í hlað. í fáum orðum sagt:
Gæðavara og góð þjónusta.“
Markús Guðjónsson,
skrúðgarðyrkjumeistari,
eigandi Garðavals.
Suðurhrauni 2, 210 Garðabæ
Símar 65 14 40 og 65 14 44
TÖKUM
UPP
DÓSIR
- að sjálfsögðu!